Pressan - 26.08.1993, Page 2
FYRST O G FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
PÁLMIGESTSSON Nær öruggt að hann fær aðalhlutverkið í uppfærslunni á
Gaukshreiðrinu. LOUISfl MflTTHÍflSDÓTTIR Amerísk verðlagning og því kosta
myndirnar um tvær milljónir króna.
Pálmi Gestsson í
Gaukshreiörinu
Þjóðleikhúsið ætlar í vetur
að færa upp sýningu á Gauks-
hreiðrinu sem Milos Forman
gerði ódauðlegt á hvíta tjald-
inu. Myndin var gerð 1975
eftir sögu Ken Kesey og fékk
alla fimm stóru óskarana. Það
hefur verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu eftir því
hver fengi hlutverk sjúklings-
ins sem Jack Nicholson lék
svo eftirminnilega um árið.
Nú er nær öruggt að Pálmi
Gestsson hljóti þetta eftirsótta
hlutverk en um tíma stóð til
að Ingvar E. Sigurðsson léki
hlutverkið. Hann þótti hins
vegar of ungur.
Verk Louisu
kosta sitt____________
Islendingar sem hafa hug á
að kaupa vel á yfirlitssýning-
unni á verkum Louisu Matt-
híasdóttur mega búast við að
grynnki verulega í veskinu.
Við heyrum nefhilega að verð
myndanna sé ekki beinlínis
miðað við þær tölur sem al-
gengar eru á listaverkamark-
aði hérlendis. Louisa mun
hafa gert samning við banda-
rískt gallerí um sölu á verkum
sínum og um leið í reynd
ffamselt verðlagningu þeirra í
hendur þess. Það er því
bandarískt markaðsverð, en
ekki íslenskt, sem gildir. Þeir
sem til þekkja segja að algengt
verð á myndum hennar sé í
kringum tvær milljónir króna.
Raxi semur viö
amríkana
Hinn þekkti ljósmyndari
Mary Ellen Mark og eigin-
maður hennar Martin Bell,
kvikmyndaleikstjóri, voru
stödd hérlendis í sumar í
tengslum við ljósmyndasýn-
ingu hennar á Kjarvalsstöð-
um. Meðan á dvöl þeirra stóð
nutu þau gestrisni góðra vina
sinna, ljósmyndaranna Einars
Fals Ingólfssonar, Ragnars
Axelssonar og Páls Stefáns-
sonar, sem meðal annars
buðu þeim í vélsleðaferð á
Mýrdalsjökul. Martin Bell,
sem þekktur er í heimalandi
sínu fýrir heimildamyndagerð
og frumsýndi nýverið fýrstu
leiknu kvikmynd sína við
prýðilegar undirtektir þar
vestra, hreifst mjög af fegurð
og fjallasýn á jöklinum. Hann
hafði þegar séð myndaseríu
Raxa, sem hann tók á Græn-
landi, og hrifning hans var slík
að sú hugmynd kviknaði að
gera heimildamynd um harð-
neskjulegt líf ísbjarnaveiði-
manna á Grænlandi. Gífur-
lega kostnaðarsamt er að ferð-
ast um landið en þegar hefur
verið búin til nákvæm áætlun
sem hljóðar upp á einhverjar
milljónir króna, og hún send
amerískri sjónvarpsstöð með
það í huga að hún fjármagni
gerð kvikmyndarinnar. Hug-
myndin hefur fengið mjög já-
kvæð viðbrögð en ekki hefur
enn verið gengið endanlega
frá samningum. Heyrst hefur
að Raxi hafi í huga að gefa út
bók með myndum sínum og
mun hann væntanlega njóta
stuðnings Mary Ellen Mark
við vinnu sína.
Frikki og Dýriö
meö bar
Senn líður að því að nýr
vínveitingastaður bætist í bar-
flóru borgarinnar. Með haust-
inu hyggjast verslunareigend-
urnir Friðrik Weisshappel og
Dýrleif Ýr Örlygsdóttir,
ásamt Andrési Magnússyni
fyrrum blaðamanni, opna bar
að Bergstaðastræti 1, sem
mun bera sama nafn og tísku-
verslun Friðriks og Dýrleifar,
Frikki og dýrið - Kaffibar.
Andrés kemur inn sem fjár-
mögnunaraðili en Friðrik og
Dýrleif munu sjá um að reka
staðinn. Þau eru ekki með
öllu ókunnug kráarmálum en
Friðrik starfaði um langt skeið
sem barþjónn á Bíóbarnum
og Dýrleif vann á barnum í
N1 og síðar í Veitingahúsinu
22. Ráðgert er að vígja kaffi-
barinn 1. október en sá dagur
varð fyrir valinu af tveimur
ástæðum; barinn er í húsi
númer 1 sem stendur við
Laugaveg 11 og eigandinn
sem leigir þeim húsnæðið er
fæddur 1.11.
Nú þegar Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, hefur sagt lausri
prófessorsstöðu sinni við Há-
skóla íslands vakna vitanlega
upp spurningar um hver tekur
við starfinu og koma allnokkur
nöfn til greina. Fyrsta ber að
nefna ágæta starfsfélaga inn-
an félagsvísindadeildarinnar,
stjórnmálafræðingana Hannes
Hólmstein Gissurarson og
Gunnar Helga Kristinsson.
Báðir virðast koma sterklega til
greina einkum vegna þess að
þeir hafa verið afar afkasta-
miklir á ritvellinum; Hannes
hefur gefið út doktorsritgerð
sína, sjö bækur og fjöldan all-
an af blaðagreinum en Gunnar
Helgi hefur gefið út bækling
um Evrópumál, var einn af
þremur höfundum bókarinnar
Atvinnustefna á íslandi og gaf
auk þess út doktorsritgerð
sína. Ritstörf og ötul rannsókn-
arstörf gefa umsækjendum
aukna von um skipan í stöð-
una. Einnig má leiða getum að
því að Svanur Kristjánsson,
sem settur var í umrædda pró-
fessorsstöðu þegar Ólafur
Ragnar hvarf til stjórnmála-
vafsturs, sæki um stöðuna.
Hann hefur hins vegar ekki lát-
ið mikið af rituðu efni frá sér
frekar en Ólafur Þ. Haröarson,
sem enn hefur ekki lokið dokt-
orsritgerð sinni eða verið iðinn
við skrif og rannsóknarstörf.
Líkur hins fyrrnefnda eru ágæt-
ar vegna langrar starfsreynslu
sinnar en ólíklegt mun vera að
hinn síðast nefndi komi til
greina. Þá má nefna til sögunn-
ar Jón Orm Halldórsson, sem
hefur sérhæft sig í stjórnmál-
um þriðja heimsins, en ekki er
víst að hann hafi hug á um-
ræddu starfi. Stöðciveitingar
hafa ávallt valdið nokkrum usla
innan deildarinnar en skemmst
er að minnast rimmu þeirra
Hannesar og Gunnars Helga
þegar skipa átti í lektorsstöðu
fyrir nokkrum árum. Hafði
Hannes betur í það skiptið. Nú
má gera ráð fyrir að þeir verði
helstu keppinautar á ný, komi
ekki til einhver utanaðkomandi,
og þykja afköst Hannesar
styrkja stöðu hans meðan
Gunnar Helgi er líklegri til að
hafa fleiri atkvæði á bak við sig
innan deildarinnar. Endanlegt
ákvörðunarvald er þó í höndum
Ólafe G. Einarssonar, mennta-
málaráðherra, en sagan hefur
kennt okkur aö ákvarðanir
hans hafa oftar en einu sinni
komiö mönnum í opna skjöldu.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
sagt prófessorsstöðu sinni við
félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands lausri og er það mál
manna að helstu keppinautar
um skipun í stöðuna verði
stjórnmálafræðingarnir Hannes
Hólmsteinn Gissurarson og
Gunnar Helgi Kristinsson.
Kvenlegar breyt-
ingar á Aöalstóð-
inni
Mikilla breytinga er að
vænta á Aðalstöðinni. Eins og
PRESSAN hefur þegar greint
frá stendur til að mýkja upp
stöðina, gera kvenlegum sjón-
armiðum hátt undir höfði,
þar á meðal heilsu. í byrjun
september mun önnur Górill-
an Davíð Þór Jónsson taka
upp þráðinn í guðfræðinám-
inu þar sem ífá var horfið. En
ekki er vitað um afdrif hinnar
Górillunnar Jakobs Bjamars
Grétarssonar. Áhrif Davíðs
Þórs munu þó ekki hverfa
með öllu af Áðalstöðinni því
betri helmingur hans Elín
Ellingsen, systir kvikmynda-
stjörnunnar Maríu Ellingsen,
mun taka við morgunþáttun-
um af eiginmanninum ásamt
Katrínu Snæhólm Baldurs-
dóttur sem á nú að heita þar
dagskrárstjóri. Þá hefur það
verið gjört heyrinkunnugt að
Guðríður Haraldsdóttir, sú
sem var íýrst til að koma hin-
um skelegga gagnrýnanda
Kolbrúnu Bergþórsdóttur á
framfæri, muni strax í haust
hefja umíjöllun sína um bók-
menntir. En eins og venja er
mun hún fjalla um bók-
menntir eins og henni einni er
lagið, þ.e.a.s. ekki of hátíðlega.
Þá mun miðillinn Jóna Rúna
Kvaran ganga til liðs við Aðal-
stöðina að nýju með einhvers-
konar fjölskylduvænan þátt.
„Kiddi sleggja" í
framboö
Ef Steingrímur J. Sigfusson
býður sig ekki fram til for-
mennsku hjá Allaböllum má
fasdega reikna með því að það
geri Kristinn H. Gunnarsson,
„Kiddi sleggja", ffá Bolungar-
vík. Hann er í eins konar per-
sónulegri herferð gegn Ólafi
Ragnari Grímssyni og þótt
hann eigi sáralitla möguleika á
kjöri er hann ekki ffáhverfur
hugmyndinni. Eins og hann
viðurkennir reyndar sjálfur
hefur hann engu að tapa og
allt að vinna.
Halldór Blöndal í
varaf ormanninn
Enn magnast sú skoðun að
Halldór Blöndal geti vel
hugsað sér að gefa kost á sér til
varaformennsku í Sjálfstæðis-
flokknum á landsfundinum í
haust. Það er talið mundu
styrkja stöðu Davíðs Odds-
sonar og skapa meiri ffið um
formennsku hans ef hann
fengi sér við hlið landsbyggð-
armann af kalíberi Halldórs, í
stað Reykjavíkurmannsins
Friðriks Sophussonar. 1 því
sambandi er minnt á hversu
óþreytandi Víkverji Morgun-
blaðsins hefur verið við að
kalla Halldór hinn nýja lands-
byggðarforingja Sjálfstæðis-
flokksins.
RAGNAR AXELSSON flmerísk sjónvarpsstöð kannar möguleika á fjármögnun heimildamyndar um ísbjarnaveiðar á Grænlandi. DÝRLEIF ÝR ÖRLYGSDÓTT1R Opnar bar sem á að heita Frikki og Dýrið
ásamt Friðriki Weisshappel og Andrési Magnússyni sem fjármagnar ævintýríð. DAVÍO pOR JÓNSSON Hverfur í guðfræðina en eiginkonan tekur við. JÓNfl RUNfl KVARAN Verður með fjölskylduvænan
þátt á flðalstöðinni. KRIST1NN H. GUNNARSSON Vill í framboð gegn fjandvini sínum, Ólafi Ragnari. HALLDÓR BLÖNDAL Landsbyggðaforingi Víkverja líklegur í varaformanninn í haust.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Svavar Gestsson hefur alltafkomið
mérfyrir sjónir sem hálfgerður ónytj-
ungur, sem aldrei hefurglatt mannlegt
hjarta, ekki unnið eitt einasta cerlegt
þarfaverk í þágu lands ogþjóðar, ekkert
nema óhróður og mannvonska. “
Baldur Hermannsson, í hlekkjum Hrafnsins.
Framboðsræðan
„Satt að segja langar mig ekkert mikið til að verða formaður.“
Steingrimur J. Sigfússon, afi.
Einar Vilhjálmsson endurborinn
„Ég hreinlega missti kúluna í öllum þremur köstunum — stífnaði upp
og missti kúluna hreinlega í útkastinu milli löngutangar og vísifingurs.“
Pétur kúla Guömundsson, afsakanafræöingur.
Fíllinn var þá tröll
„Illt er fýrir hinn góða dreng, Þorkel Helgason, að eiga slíkt
tröll sem Sighvat Björgvinsson að einkavin."
Ólafur Ragnar Grímsson, fjölmiðlasjúklingur.
Kynóöur læknin
„Við skoðun á sjúklingi kemur fram
áberandi kyndeyfð.“
Úr læknaskýrslu.
Oa tunalið er ostur!
„Það er tilvi
íltká fkcJttU ÓOÍHÍHH
„Þá daga sem Shimon Peres heimsækir
Island höfum við, íslensk þjóð, einstakt
tækifæri til að sýna bæði Guði og mönn-
um að við hötum ekki, heldur elskum
ísraeL"
Guömundur Öm Ragnarsson, Síonlsti.
Ivijun að þessir þrír umsjónar-
menn koma frá Ríkisútvarpinu.“
Siguröur G. Valgeirsson, magasínstjóri
Sjónvarpsins.
^jóðlcflur titatyœftiitgur
„Uppáhaldsmaturinn er grjóna-
grautur og lifrarpylsa.“
Guölaugur Þór Þóröarson, SUS-ari.
S K I L A B O Ð
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
PRESSAN 3
f ins og þegar hefur
komið fram standa miklar
breytingar fyrir dyrum á
Stöð 2. Meðal þess sem tek-
ur stakkaskiptum með
haustinu er fféttastofan sem
fær nýtt útlit og verður
„settið“ vígt 19. september
næstkomandi. Fréttaþulur
það kvöld verður Edda
Andrésdóttir en hún hefur
nú snúið aftur til starfa að
loknu barnsburðarleyfi og
mun í vetur
annast lestur
frétta. Af
mannaráðn-
íngum a
Bylgjunni er
það að segja
að Katrín
Baldursdóttir fféttamaður í
sumarafleysingum hefur
verið fastráðin til starfa og
sömu sögu er að segja af
Emi Þórðarsyni sem unnið
hefur á Bylgunni í sumar...
V,
etrardagskrá Bylgj-
unnar hefur verið ákveðin
að mestu og eru breytingar
ekki stórvægilegar. Sigur-
steinn Másson hverfur að
vísu af vettvangi í haust er
hann heldur
til náms í
París. Hall-
g r í m u r
Thorsteins-
son, sem
hefur að
mestu verið
fjarverandi í sumar, kemur
til með að keppa við Þjóðar-
sálina síðla dags, en hann
verður einn á ferð að þessu
sinni. Samkvæmt heimild-
um blaðsins fór hann þess
óformlega á leit við Helgu
Guðrúnu Johnson, fyrrum
fréttamann, að koma til
samstarfs við sig en úr því
hefur ekki orðið. Aðrar
breytingar á dægurmála-
deild Bylgjunnar felast eink-
um í tilfæringum á því
starfsfólki sem þegar er til
staðar. Þannig mun Anna
Björk Birgisdóttir koma í
stað Jóns Axels og Gulla
fvrir hádegi og Helgi Rúnar
Oskarsson mun demba
tónlist og kjaftagangi yfir
landsmenn effir hádegi...
A,
iökin á milli stjómar-
flokkanna í fjárlagagerðinni
í haust verða eflaust einna
hörðust í kringum land-
búnaðarmálin, eins og
reyndar þegar er farið að
sýna sig. Eitt félag innan Al-
þýðuflokksins, Félag frjáls-
lyndra jafn-
aðarmanna,
hyggst í
næstu viku
h a 1 d a
„kennslu-
stund í land-
búnaðar-
fræðum“ fyrir almenning
og teflir fram sem kennur-
um nokkrum kanónum,
þeim Kristjáni Jóhannssyni
hjá Hagfræðistofnun, ein-
um höfunda skýrslunnar
umdeildu, Sigurði Líndal
lagaprófessor, Þórarni V.
Þórarinssyni hjá VSl og
Guðmundi Ólafssyni hag-
fræðingi, sem reyndar er
ekki síður kunnur fyrir
skoðanir sínar á kvikmynd-
ÞAÐ ER BJART YFIR...
Venjuleg þriggja þrepa sjálfskipting
Nissan síbreytiskipting (N.CVTJ Háþróuö sjálfskipting
N.CVT Háþróuð Nissan
sjálfskipting með tölvustýrðri
kúplingu, sem gefur mjúkt
þrepalaust viöbragð. Býður uppá einstaka
sparneytni og fyrirhafnarlausan akstur.
NYJA BILNUM FRA NISSAN
IMIS5AIM
ÞETTA ER AUÐVITAÐ BÍLL ÁRSIIMS 1993, GLÆIMÝR OG SPRÆKUR
BEIIMT UR KASSAIMUM
STQRSÝ8MING UM
HELGB8MA FRÁ
KL. 14-17
UERIÐ VELKOMBN.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföi 2,112 Reykjavík
Sími 674000
VERÐ AÐEINS 855.000.- KR. STGR
Fólk meö viti les smóa letrib og notar öryggisbeltin alltaf