Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 38
I ÞROTTI R
38 PRESSAN
Fimmtudagurínn 26. ágúst 1993
Keppnistímabilið hefst um næstu helgi í ítölsku deildinni
Skandalakreppan veldur
verðhjöðnun í boltanum
Um næstu helgi hefst knatt-
spyrnutímabilið á Ítalíu sem
án efa er eftirtektarverðasta
deildarkeppni í heimi. Þrátt
fyrir að oft áður hafi verið
meiri ljómi yfir deildinni (sem
beðið hefur nokkur afhroð
vegna almennrar kreppu á
Ítalíu) þá verður margt for-
vitnilegt þar á boðstólum.
Síðasta sumar voru öll pen-
ingamet slegin þegar 1. deildar
liðin eyddu sem svarar 26
milljörðum króna í að kaupa
35 erlenda leikmenn í þessari
lúxusdeild allra lúxusdeilda. I
ár hefur markaðurinn verið
mun rólegri. Þegar verslunar-
tímanum lauk höfðu aðeins 9
nýir útlendingar verið keyptir
til Ítalíu. Um leið hafa öll liðin
lagt sig fram um að lækka
kostnað og fá samninga við
leikmenn færða niður. Það
hefur auðvitað kostað þján-
ingar fyrir stjörnurnar en því
•íttiður virðist metnaður ftala
hafa farið fram úr kaupgetu
þeirra í fyrra. Talið er að inn-
kaupalistinn í ár sé um tífallt
ódýrari en í fýrra, eða aðeins
2,2 milljarðar króna.
Skandalakreppa ftala hefur
líklega farið fram hjá fáum en
til hennar má rekja vandann í knatt-
spyrnunni. Rausnarlegir styrktaraðilar
eru flestir í vondum málum og hafa til
dæmis fornfræg lið eins og Roma og
Tórínó orðið að fara yfir fjárhagsstöðu
sína með forráðamönnum deildarinnar
til að fá botn t það hvort þau hafi yftr
höfuð efni á atvinnumönnum. Roma
I^eypti Argentínumanninn Abel Balb frá
Udinese á meðan Tórínó keypti
Úrúgvæmanninn Enzo Francescoli frá
Cagliari. Áhöld voru um hvort liðin ættu
fýrir þessum leikmönnum.
Risar eins og AC Mílan, sem rekið er
af fjölmiðlakónginum Silvio Berlusconi,
og Juventus, sem rekið er af Fíat, hafa í ár
eytt í leikmenn aðeins broti þeirrar upp-
hæðar sem þau notuðu í fýrra. Á móti
má benda á að sömu leikmennirnir
verða aðeins keyptir einu sinni og þessi
markaður er dæmdur til að vera breyti-
legur frá ári til árs.
„Eyðslutíminn er lið-
inn“
Margir telja að samdrátturinn núna sé
varanlegur. „Mörg liðanna eyddu gífúr-
legum fjárhæðum í leikmenn
sem stóðu ekki undir vænting-
um,“ sagði forseti Písa, Romeo
Anconetani, sem telur að kaup-
æðistíminn komi ekki aftur.
Á hinn bóginn voru auðvitað
reiddar fram stórar upphæðir.
Inter Mílan borgaði 1,3 miljarð
króna fyrir Denis Bergkamp sem
kom frá Ajax. Wim Jonk fýlgdi
með í þeim kaupum sem ábót.
Af kaupum má nefna: Cagliari
keypti Panamamanninn Dely
Valdes, Svíinn Jonny Ekström
fór til nýliðanna í Reggiana og
Brasilíumennirnir Gerson og
Caucho fóru til Lecce. Juventus
keypti króatíska framherjann
Zoran Ban og hollenski fram-
herjinn Marciano Vink fór til
Genova.
Eins og áður verða 58 útlend-
ingar skráðir til leiks í ítölsku I.
deildinni en aðeins mega vera
þn'r inná í einu. AC Mílan verður
hins vegar með 6 leikmenn á
launaskrá og Inter með 5. AC
Mílan hefur fengið Brian
Laudrup til liðs við sig sam-
kvæmt lánssamningi frá Fioren-
tína sem féll í 2. deild í fyrsta
skipti. Einnig fékk AC Mílan
Rúmenann Florin Raduciou.
Þeir Fiorin og Brian koma í stað
Ruud Gullit og Frank Rijkaard sem
hafa verið vörumerki liðsins ásamt
Marco Van Basten undanfarin ár.
Ástæðan fýrir brottför Gullits mun ein-
faldlega vera sú að þetta ríkasta félag
heims var að lækka launakostnað sinn,
en hann fékk um 160 milljónir frá félag-
inu á ári auk ýmissa hlunninda! Gullit
fer ekki langt en hann mun leika með
Sampdoria. Auk þess má nefna að heyrst
hefúr af atvinnuleysi meðal knatspymu-
manna á Italíu og gengur nú rnargur
kappinn með betlistaf á milli liða.
Sigurður Már Jónsson
Hln hliðin á HHI í Stuttgart
„Hve mörg dóppróf hafið
þið farið í á þessu ári?“ var það
fýrsta sem vestrænum blaða-
mönnum datt í hug að spyrja
kínversku stúlkumar þrjár sem
urðu í þrem fýrstu sætunum í
3000 metra hlaupi á heims-
meistaramótinu í Stuttgart sem
lauk um síðustu helgi.
Flestum viðstöddum fannst
spumingin lítt við hæfi en kín-
Kínverskar stúlkur sópuðu til sín
verðlaununum í hlaupagreinum á HM
í Stuttgart.
versku stúlkumar létu sig hafa
það að svara — sögðust hafa
farið í þrjú dóppróf á árinu; eitt
á vegum Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins, eitt á vegum Al-
þjóða Ólympíunefndarinnar og
eitt á vegum kinverskra yfir-
valda. Það er kannski ekki
nema von að fréttamenn hafi
verið tortryggnir: orðrómur er
um að í Kína sé mikið af þjálf-
urum frá fýrrum Austur-Þýska-
landi og aílir vita hvemig þjálf-
unaraðferðimar vom þar. Kín-
verskar hlaupakonur sópuðu
síðan til sín verðlaunum, hirtu
fjögur gull í hlaupagreinum og
sýndu fádæma yfirburði. Það
vafðist hins vegar fýrir mönn-
urn að líta á þær sem sjálfstæða
einstaklinga enda kom svona
tilkynning ffá þeim efúr hlaup-
ið: „Allir þrír verðlaunahafamir
frá Kína segja að þetta sé sam-
eigjnleg yfirlýsing efúr hlaupið“!
Og síðan upphófust miklar
vangaveltur um hvort kín-
versku stúlkurnar réðu við að
taka með sér sigurlaunin sem
eru nýr Mercedes Benz en
flutningskostnaður bílsins til
Kína nemur um fjórföldu verði
bílsins. I fréttaúlkynningu Kín-
verja stóð: „Yunxia Qu (sem
vann 3000 metra hlaupið) hef-
ur ekki bílpróf og ætlar því að
gefa föður sínum bílinn“.
Þeim sem fylgjast með í
frjálsum íþróttum kemur ár-
angur Kínverja ekki svo mjög á
óvart. Á heimsmeistaramóti
unglinga í fýrra hirtu Kínveijar
8 af 19 verðlaunum. Þá þegar
fóm menn að sjá fýrir árangur
þeirra í Stuttgart
Engar aukagreiðslur
en Lewis í lúxus
Það vakú mikla athygli þegar
Nourredine Morcelli, sem tal-
inn var sigurstranglegastur í
1500 metra hlaupi, sagðist ekki
ætla að keppa nema fá veruleg-
ar aukagreiðslur fýrir. Fannst
mönnum þetta fádæma dóna-
legt hjá Marokkómanninum
sem vanalega fer um 3,3 millj-
ónir króna fýrir hvert hlaup.
Morcelli fannst greinilega ekki
duga að fá nýjan Mercedes
Benz úr verksmiðjunum í
Stuttgart sem verðlagður var á
2,2 milljónir króna. Hann hélt
því þar að auki ffam að menn
eins og Carl Lewis fengju greitt
og því fannst honum ekki
nema eðlilegt að hann fengi
einhveija umbun fýrir að verða
heimsmeistari. Alþjóða fijáls-
íþróttasambandið neitaði því
að Lewis fengi nokkrar auka-
greiðslur en síðar kom í ljós að
umbun hans var öðruvísi. Á
meðan venjulegir keppendur
máttu hírast í spartískum þjálf-
unarbúðum lifði Lewis, ásamt
Carl Lewis dvaldi á besta hótelinu á
meðan aðrir voru í íþróttabúðum.
fáeinum útvöldum úr banda-
ríska liðinu, í vellystingum
praktuglega á Hótel Graf Zep-
pelin.
Reyndar er önnur ástæða
fyrir því að hægt er að hafa
samúð með Morcelli. Alþjóða
ffjálsíþróttasambandið (IÁAF)
fær nefnilega sem svarar 4,2
milljörðum króna fyrir sjón-
varpsrétúnn ffá HM og á með-
an sjónvarpsstöðvar eru úlbún-
ar að borga þessa upphæð á
tveggja ára fresti eru þeir á
grænni grein. Það er ekki nema
von að fijálsíþróttamennirnir
vilji hlut í gróðanum.
Otrúlegur sprettur
Johnsons
Einhver ótrúlegasú árangur á
HM er hlaup Michaels John-
sons á lokaspretú 4X400 metra
hlaupsins. Þar var tíminn
Michael Johnson hljóp 400 metrana í
boðhlaupinu á besta tíma sem náðst
hefur, eða 42,94 sek. Það jafngildir
að hver 100 metra sprettur var á
10,74 sek. sem dugað hefði honum til
sigurs í flestum hlaupum hér heima.
mældur hjá honum og reyndist
vera 42,94 sek. Aldrei í sögunni
hefúr náðst svo góður tími í 400
metra hlaupi. Auðvitað nýtur
Johnson þess að fá fljúgandi
start en þetta jafngildir því að
hann hlaupi hvem 100 metra
sprett á sem svarar 10,74 sek.
Hann vinnur nánast öll 100
• metra hlaup á Islandi út á
þennan árangur! Sem minnir
okkur á dapran árangur íslend-
inga sem aldrei virðast ná að
bæta sín persónulegu met þegar
kemur að stómiótum en það er
önnur saga.
HVERAGERÐI
Til sölu eða leigu.
Laust nú þegar.
3 svefnherbergi.
Stærö 118 fm + bílag. 45fm.
Upplýsingar í sima: H. 98 -34191
V. 98 - 34151 (símsvari).
IiUDDSKÓLI RAFriS QEIRDALS
NUDDNÁM
★ V/2 árs nám, alls 1.500 stundir. Skiptist í þrjá þætti:
1. Nuddkennsla, 500 stundir, ein önn.
2. Starfsþjálfun, 500 stundir, má taka 3 mánuði til 2 ár
að Ijúka því.
3. Bókleg fög, 500 stundir, má taka fyrir meðfram eða
eftir nuddkennslu, en sé endanlega lokið 2 árum eftir að
nám hefst.
★ Sækja má um að læra nuddkennslu á eftirfarandi tímum:
A. Dagskóli, 1. sept. - 31. nóv., kl. 9-16 alla virka daga.
B. Kvöld- og helgarskóli, 1. sept. - 14. des., mánudaga
til fimmtudaga kl. 17.30-21.15 og aðra hvora helgi
kl. 9-18, báða daga.
C. Dagskóli, 10. jan. - páska, kl. 9-16 alla virka daga.
D. Kvöld- og helgarskóli, 10. jan. - maí, mánudaga til
fimmtudaga kl. 17.30-21.15 og aðra hvora helgi
kl. 9- 18, báða daga.
Inntökuskilyrði: Gagnfræða-/grunnskólapróf.
Útskriftarheiti: Nuddfræðingur.
Réttur: Sjálfstætt starf, réttur til að opna eigin stofu
og auglýsa.
Viðurkenning: Viðurkennt af Félagi íslenskra nuddfræð-
inga.
Upplýsingar og skráning í
símum 676612 og 686612 alla virka daga.
Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík.