Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 4
V I ÐT A L
4 PR ESSAN
Rmmtudagurinn 26. ágúst 1993
*B
czti
Svikulir
þingmenn
„Ég hélt aðþingmenn, sem
eru kosnir á þing vœru skuld-
bundnir til að sinna starfi sínu
út kjörtimabilið. Þingmenn,
sem gefa kost ásérá lista ein-
hvers flokksins, hljóta að verða
að virða sína kjósendur en
hlaupa ekki brottefannað
starf freistar. Þetta geristþó.
Yfirgaf ekki Albert Guð-
mundsson sinnflokk í miðjum
klíðum? Og nú er Eiður
Guðnason hlaupinn brott.
Báðir til aðgegna sendiherra-
störfum. Ég held að við œttum
að láta það vera að mœta á
kjörstað t nœstu kosningum.“
Ádolf í DV.
Eiður Guðnason, alþingis-
maðun
„Það er mjög algengt að
menn hverfi frá þing-
Konurá
rangri
hillu
„Ég nefni ekki Kvennalista í
stjómmálum því hann er orð-
inn til af misskilningi. Hlut-
verk kvenna er annað. Maður
og kona eru eitt og eiga að
vera það. Ég man ekki betur,
en það sé haft eftir Páli post-
ida, að kona eigi að vera
tnanni undirgefin ogþá skal
Éað vera svo.“
jörn Egilsson í Morgun-
blaðinu.
Anna Ólafsdóttir Bjöms-
son, þingkona Kvennalista:
„Ummæli Bjöms minna á
þegar þingmaður nokkur
missti það út úr sér að staður
konunnar væri bak við elda-
vélina. Hvorki konur né karl-
ar vilja svo takmarkað at-
hafnafrelsi. Þörfin fyrir
Kvennalista er augljós á
meðan enn em til menn sem
vilja gera konur sér undir-
gefnar. Það er ekki karla að
ákveða hlutverk kvenna
mennsku og hægt er að
nefna mörg dæmi um slíkt.
Ég sé ekkert athugavert við
að ég láti nú af störfum sem
þingmaður og snúi mér að
öðmm verkefrium. Ágætt er
þó til þess að vita að einhver
kysi heldur að ég sæti áffarn
á þingi.“
■ II
Máttlaus
áróöur
„Talandi um fyrirmyndarfólk
í MA þá getur Víkverji ekki
hjá því komist að nefna, að
hann hefurþað fyrir satt að
reykingar fcerist nú í vöxtaft-
ur hjá unglingum hér á landi.
Sjálfurþóttist hann hafa tekið
eftir þessu ogfékk það staðfest
hjá konu sem starfar hjá
Krabbameitisfélaginu. Getur
virkilega verið að það þyki aft-
ur orðiðfínt að reykja? Er
áróðurinn ekki nógu hnitmið-
aður og ógeðslegur lengur eða
er hann e.t.v. bara oflítill?
Hvað skyldi valda þessari ógti-
vœnlegu þróun?“
Víkverji Morgunblaðsins.
Þorvarður ömólfsson,
framkvæmdastjóri Krabba-
meinsfélags Reykjavíkun
„Reykingar unglinga fóm til
skamms tíma jafht og þétt
minnkandi hér á landi, jafn-
vel svo athygli vakti víða um
fœr Svembiorn I. Baldvinsson döQ-
shrársfjóri innlendrar dagshrár-
deildar Sjónvarpsins
Fyrirað leyfa vöskutn
drengjum að spreyta sig
við stjórnun umrœdu-
þátta sjónvarps.
heldur kvenna sjálfra og þær
hafa valið sér ýmis hlutverk í
samfélaginu, meðal annars í
stjómmálum. Fylgi Kvenna-
listans sýnir svo ekki verður
um villst að hann varð ekki
til af misskilningi.“
heim. örfá síðustu árin hafa
komið ffarn vísbendingar
um að þessi þróun hafi
stöðvast og reykingar jafhvel
aukist meðal ungs fólks. Sé
svo er vonandi um að ræða
tímabundna breytingu og
engan vegin algilda. Fáum
unglingum þykir innst inni
„fint“ að reykja, hvað sem
halda mætti að lítt athuguðu
máli. Þetta höfum við í
Krabbameinsfélaginu ítrekað
fengið staðfest. Hvort áróð-
urinn gegn reykingum er
samt nógu „hnitmiðaður og
ógeðslegur" eða mætti vera
meiri, má vissulega vera til
umhugsunar okkur og öðr-
um sem vinna að tóbaks-
vörnum. Almennt til íhug-
unar bendi ég á fáeina áhrifa-
þætti sem vafalaust ýta undir
reykingar ungs fólks: Óhag-
stæða tísku í lífsstíl og lífsvið-
horfum, mikla og almenna
áfengisneyslu meðal ung-
linga og óbeinan áróður fyrir
reykingum í kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum.“
Sveinn Baldursson tölvunarfræðingur er einn þeirra sem hefur geimverur og ferðir um himinhvolfið að
óhugomóli og vellir þeirrí spurningu fyrir sér, ó ráðstefnu um geimverur í Háskólabíói nú um helgina,
hvort ferðalög milli sólkerfa séu möguleg. Honum finnst skrítio fólk sem aldrei leiðir hugann að geim-
verum og fljúgandi furðuhlutum.
Höldum í framtfðinni til annarra sölkerfa
Erindi þitt snýst um ferðalög
milli sólkefa. Hvemig ferðalög
ertu að tala um?
„Geimferðir í geimskipum.
Annars vegar velti ég upp
þeim möguleika fyrir mann-
kynið í framtíðinni og hins
vegar þeim möguleika að aðr-
ir íbúar í vetrarbrautinni séu á
ferðalagi um hana. Þó ég sé
ekki eðlisfræðingur reyni ég
að nota þá eðlisfræði sem
flestir þekkja til að draga
ályktanir."
Byggir þú á einhverjum
rannsóknum?
„Óhjákvæmilega tek ég af-
stæðiskenningu Einsteins með
í reikninginn en hún segir
meðal annars að ljóshraðinn
sé sá hámarkshraði sem merki
eða hlutur getur ferðast um á.
Það á eftir að koma í ljós
hvort kenningin standist tím-
ans tönn og að gefhu ákveðnu
frelsi í hugsun má því ætla að
við getum skipt ferðalögum
milli sólkerfa í tvennt; í ferða-
lög undir ljóshraða og ferða-
lög yfir ljóshraða. Fræðilega er
þegar hægt að sættast á að
ferðir undir ljóshraða séu
mögulegar á milli sólkerfa en
enn sem komið er hefur
mannkynið ekki fundið leið til
að fara í slíka för yfir ljóshraða
og eru eðlisffæðingar almennt
á þeirri skoðun að það sé ekki
hægL Ég mun reyna að draga
fram í dagsljósið það sem
mælir með og það sem mælir
á móti því að mannkynið
muni nokkum tíma geta ferð-
ast á milli sólkerfa, að ein-
hverjir frá öðrum hnöttum
ferðist um himingeiminn nú
þegar og á hvaða hraða þeir
hinir sömu ferðast. Þeir sem
velta þessum möguleikum
fyrir sér eru almennt litnir
homauga en á stundum finnst
manni vísindin hafa getið af
sér ný trúarbrögð. Prestar í
hvítum kuflum hafa tekið við
af þeim í svörtu kuflunum. Ég
er ekki meðmæltur takmörk-
unum og því mega ráðstefiiu-
gestir eiga von á að ég reyni að
skammast eitthvað út í eðlis-
fræðina fýrir það hvað hún er
íhaldssöm.“
Hefur þútrúáað einhverjar
verur séu áferðinni?
„Ég er bjartsýnismaður og
hefr trú á mannkyninu og
leyfi mér því að trúa á tilvist
menningar á jörðinni næstu
árþúsundir. Áð því gefnu er
engum vafa undirorpið að við
munum í ffamtíðinni halda til
annarra sólkerfa og leita að lífi
á öðrum hnöttum. Eftir
stendur sú spurning hvort til
em aðrar vitsmunavemr í al-
heiminum en ef svo er hljóta
þær að hugsa á svipaðan hátt
og við; þær em drifhar áffam
af forvitni og þær munu leita
að Iífi annars staðar. Að því
gefnu að þekkingarleit vísind-
anna taki engan endi ber að
beina huganum að því hvort
til em tæknivædd samfélög úti
í geiminum og hversu Iangt
þau eru komin. Svo er aftur
komið að því á hvaða hraða
þessar verur ferðast, yfir eða
undir ljóshraða.“
Þú kemur alltaf að sömu
spumingunni aftur.
„Mannkynið er bundið á
klafa trúarinnar á takmörk
ljóshraðans. Ég mun reyna að
draga fram þær þversagnir
sem myndast þegar menn
gera ráð fyrir því að hægt sé að
fara hraðar en ljósið og ef til
vill draga fram í dagsljósið
gamlar þversagnir sem settar
hafa verið ffam og hafa verið
leystar síðar. Þversögnin um
ljóshraðann gengur út á það
að orsakalögmálið muni
bresta en það er eina haldreip-
ið sem hinn vestræni nútíma-
maður hefur en hann gerir
ráð fyrir því að tíminn líði ffá
fortíð til nútíðar og að lokum
til ffamtíðar — og að atburðir
gærdagsins hafi áhrif á atburði
dagsins í dag. En ekki öfugt.
Og að tímavélar séu ekki til.
Þetta gæti allt eins verið allt
upp í loft og við getum þá
hugsað okkur að við gætum
ferðast eins hratt og við vilj-
um. Einnig gætum við hugsað
okkur þann möguleika að
ferðast aftur í tímann. En
þetta eru allt spekúlasjónir og
fæstir vísindamenn þora að
hugsa almennilega um þær.“
Þú ert tölvunarfrœðingur.
Hvaðan kemur þessi áhugi
þinn á vemmfrá öðmm heimi?
„Þetta er einfaldlega áhugi á
hinu óþekkta sem er mér í
blóð borinn. Venjulegu fólki
kann að finnast fólk sem veltir
þessum hlutum fýrir sér svo-
lítið skrítið. Mér er öfugt farið;
fólk sem veltir þessu ekki fyrir
sér er eitthvað skrítið."
Til er töluverður hópur fólks
hérlendis sem hefur ýmist haft
huglceg kynni af geimverum
eða raunvemleg. Hefurðu sjálf-
ur haft einhver kynni af geim-
vemm eða þekkir þú dcemi þess
að einhver hafi náð sambandi
við þœr?
„Sjálfur hef ég ekki verið í
sambandi við geimverur en
óbeint hef ég haft kynni aí
fólki sem telur sig hafa hafi
hugsamband við geimverur.
Engan hef ég hitt sem telur sig
hafa hitt slíka veru í þrívídd.
Áhugi minn stafar því ekki af
persónulegri reynslu heldur
miklu ffemur af forvimi.“
Telma L. Tómasson
.d .éjÉJ .5;.r Sigurbjöm Bárðarson hestamaður
„Allt hans líf er keppni. Harkan er feiknarleg en
hann missir aldrei stjórn á skapi sínu - nema það
henti! Hann er kátur og hefur góða návisL Á andar-
taki sálgreinir hann bæði hesta og menn. Hann er
úrræðagóður, agaður og vinnusamur reglumaður. I
félagsmálum er hann fillögugóður og fylginn sér. Is-
lensk hestamennska á honum mikið að þakka.“
Ragnar Tómasson lögmaður, hestamaður og ná-
inn vinur. „Sigurbjörn er skemmtilegur félagi, léttur
í skapi og mikill húmoristi. Hann er feikna skipu-
lagður í starfi og hefur mikinn sjálfsaga. Það er mjög
golt að vinna með Sigurbirni enda lítur hann á alla
sina samstarfsmenn sem jafningja,“ segir Hafliði
Halldórsson tamningamaður, kunningi Sigur-
bjarnar til margra ára. „Hann er hress, duglegur,
drífandi og ákaflega bóngóður. Sigurbjörn er góður
drengur," segir Guðlaug Steingrímsdóttir verslun-
ar- og hestakona sem þekkir Sigurbjöm vel úr fé-
lagsstörfum. „Hann er geysilegur íþróttamaður og
það er sama hverju hann lekur þátt í, hann er alltaf í
keppni. Sigurbjörn er mikill vinur vina sinna, sér-
staklega þegar illa stendur á og hefur reynst mér sér-
staklega vel. Hann er ákaflega heill maður,“ segir
Erling Sigurðsson hestamaður, en hann er góður
vinur Sigurbjamar og hefur unnið mikið með
honum.
Bóngóður og agaður - eða
ofharður í viðskiptum?
Sigurbjörn Bárðarson sló í gegn á heims-
meistaramótinu í Hollandi; varb stigahæstur
keppenda og kom heim meb þrenn gullverb-
laun.
„Hann heldur of fast um budduna og má ekki
gleyma að lifa lífinu - en kannski er það að breyt-
ast. Þá elskar hann súkkulaði, grátt gaman og
hrekki. Hann er ekki góður í umferðarreglunum
og afleitur í ættfræði söluhrossa," segir hesta-
maðurinn og góðvinurinn Ragnar Tómasson.
„Sigurbjöm er gífurlega klókur í viðskiptum og
tapar aldrei. Því em það alltaf einhverjir aðrir
sem sitja eftir með sárt ennið, eins og auðvitað
gengur og gerist í viðsldptum,“ segir tamninga-
maðurinn Hafliði Halldórsson sem þekkir Sigur-
björn vel og hefur unnið mikið með honum í
gegnurn árin. Það eina sem ég get sett út á í fari
Sigurbjamar er að hann getur stundum verið
helst til of harður í viðskiptum,“ segir hestakon-
an Guðlaug Steingrímsdóttir. Sigurbjörn er
hreint með ólíkindum striðinn. Hann hefði sleg-
ið í gegn í Hrekkjalómafélaginu. Sigurbjöm hef-
ur gert ýmsu fólld skráveifu og menn bíta aftur
og aftur á agnið hjá honum vegna þess hve hann
er alltaf trúverðugur,“ segir Erling Sigurðsson
vinur og samstarfsmaður.