Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 14
L
F R E T T I R
14 PRESSAN
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
Formaður Félags bókager^prmanna sagði ypp störfum:
RANNSOKN A GREIÐSLUM
TIL FORMANNSINS
Á trúnaðarmannaráðs-
fundi í Félagi bókagerðar-
manna (FBM) í síðustu viku
var samþykkt að fjögurra
manna nefnd skyldi kanna
viðskipti Þóris Guðjónsson-
ar, fráfarandi formanns, við
félagið síðustu tvö árin. Þór-
ir sagði af sér formennsku í
félaginu fyrir rúmum hálf-
um mánuði og voru per-
sónuleg vandamál tilgreind
sem ástæðan, en í raun mun
hann hafa verið þvingaður
til að segja af sér. Samþykkt-
in á trúnaðarmannaráðs-
fundinum er til komin
vegna þráláts orðróms um
óreiðu í fjármálum félagsins,
sem rekja megi til Þóris og
er rætt um meint misferli í
því sambandi.
Umdeildar VISA-úttektir
á feröalögum og veit-
ingahúsum
FBM er fjárhagslega sterkt
félag og elsta fagfélag lands-
ins og er hér því um talsverð
tíðindi að ræða. Þórir hafði
verið formaður félagsins síð-
ustu 5 árin, en fyrstu vís-
bendingarnar um óreiðu og
hugsanlegt misferli komu
upp 1990-1991. Þá komu
fram háværar kröfur á
stjórnarfundi um að for-
maðurinn „færi í frí“.
Nú leikur ekki síst grunur
á að Þórir hafi misnotað
VISA-kort í nafni félagsins
og blandað saman einka-
neyslu og útgjöldum félags-
ins, einkum þá í sambandi
við tíð ferðalög og úttektir
vegna hótelgistinga og
reikninga veitingahúsa og
verslana. Þórir og útvaldir
stjórnarmenn hafa á meðal
óbreyttra félagsmanna
gjarnan gengið undir nafn-
inu „Ferðaklúbburinn".
Einn viðmælenda blaðsins
sagði að VISA-úttektirnar
væru „glæsileg þræðing á
veitingahúsum, innanlands
jafnt sem erlendis, auk ým-
issa augljóslega persónulegra
úttekta.“
Þeir heimildarmenn sem
PRESSAN ræddi við voru
ekki sammála um umfang
málsins, en nefndu að Þóri
hefði verið gert að endur-
greiða ýmsar úttektir til fé-
lagsins. Tölur frá 170 þús-
und upp í 310 þúsund krón-
ur voru nefndar í því sam-
bandi, en þá um leið sagt, að
þar sem engin ítarleg rann-
sókn hafi enn farið fram á
umfangi málsins sé ómögu-
legt að áætla íjárhæðir, sem
umdeilanlegar kunna að
vera.
Fiestir í trúnadar-
mannaráöinu vildu
þagga málið niöur
Sá viðmælandi blaðsins,
sem skemmst vildi fara,
nefndi endurgreiðslu upp á
170 þúsund krónur vegna
tvígreidds ferðakostnaðar.
„Frekari rannsókn er nú á
bókhaldi félagsins vegna
gróusagna um íjármálamis-
ferli Þóris, en að mínu mati
bendir ekkert til þess nú að
það hafi átt sér stað. Engu að
síður var hann látinn fara
vegna málsins.“
Annar viðmælandi blaðs-
ins kvað fastar að orði.
„Honum var einfaldlega
stillt upp við vegg og honum
sagt að annaðhvort segði
hann af sér eða að hann yrði
kærður fyrir fjárdrátt.“
Það sem meðal annars
orkar tvímælis í málinu er
að Þórir mun hafa reiknað
sér laun fýrir að taka að sér
gjaldkerastörf, effir að félag-
ið varð gjaldkeralaust á
tímabili. Til þessa hafði
hann þó enga heimild.
Á trúnaðarmannaráðs-
fundinum, sem haldinn var í
síðustu viku, komu upp
skiptar skoðanir um hvað
gera skyldi í málinu, en
meirihluti ráðsins taldi mik-
ilvægt að málið kæmist ekki
í hámæli. Þegar ljóst var að
nokkrir fundarmenn sættu
sig ekki við að málið yrði
þagað í hel var samþykkt að
fjögurra manna nefnd
kynnti sér viðskipti Þóris við
félagið.
„Nefndin á aö kveöa
niöur þennan oröróm u
Sæmundur Árnason,
hinn nýi formaður FBM,
sagði í samtali við PRESS-
UNA, að Þórir hefði sagt
upp störfum vegna alvarlegs
sjúkdóms sem hann ætti við
að stríða og réði ekki við.
„Undir slíkum kringum-
stæðum er ekki óeðlilegt að
kviksögur vakni og það er
rétt að á umræddum trún-
aðarmannaráðsfundi var
skipuð fjögurra manna
nefnd. Hún fékk það verk-
efni að fara yfir greiðslur til
formannsins á því reikn-
ingsári sem lýkur um næstu
áramót og hugsanlega lengta
affur í tímann ef upp kemur
óánægja með það sem menn
sjá, sem ég á ekki von á. Ég
byggi það á því að þegar ég
tók við formennsku 10. ág-
úst lét ég löggiltan endur-
skoðanda fara yfir reikning-
ana, kanna hvort sjóðir
stemmdu og allar eignir
væru til staðar. Og ekki bar
á öðru en að svo væri, en
slíkt er gjarnan gert þegar
nýr maður tekur við. Þessi
nefnd á að sannreyna að
enginn maðkur sé í mys-
unni. Það er rétt að þrálátur
orðrómur er í gangi um
annað, en ég leyfi mér að
fullyrða að alls ekki er um
fjárdrátt að ræða. Þessi
nefnd var skipuð til að
kveða niður þennan orð-
róm.“
Sérstaklega spurður um
endurgreiðslur og umdeild-
ar VISA- úttektir 1990-1991
sagði Sæmundur að þar væri
um mjög gamalt mál að
ræða. „Það mál er í engum
tengslum við uppsögn Þóris.
Hann segir upp vegna sjúk-
dóms. Það er mikil ábyrgð
sem fylgir þessu starfi og
hann treysti sér ekki til að
gegna því lengur,“ sagði Sæ-
mundur.
Friörik Þór Guömundsson.
ÞÓRIR Guðjónsson.
Sagði nýveríð af sér sem formaður
af persónulegum ástæðum. Þrálát-
ur orðrómur er uppi um óreiðu og
fiármálamisferli og hefur nefnd ver-
ið falið að kanna greiðslur til hans
úr sjóðum félagsins.
Frægasta tískuveldið reyndist eignalaust:
100 MILLJÓNA ÞR0T
GAMLA KARNABÆJAR
Gamli Bíamabær, sem
Guðlaugur Bergmann
átti og rak, hefur verið
gerður upp í gjaldþrota-
skiptum, þar sem nær
engar eignir fundust
upp í nær 100 milljóna
króna kröfur. Áður en
til gjaldþrotaskipta kom
höfðu Guðlaugur og
aðrir aðstandendur
Kamabæjar breytt nafhi
hlutafélagsins í Daníels-
son hf. íslandsbanki var
sá kröfuhafa sem tapaði
langmestum upphæð-
um í gjaldþrotinu, nær
60 milljónum.
Karnabær var fjöl-
skyldufyrirtæki, sem
stofnað var 1966 og
færði með sér byltingu í
tískubransanum. Eftir
margra ára velgengni
tók að halla undan fæti
hin síðari ár. Iðnlána-
sjóður eignaðist húseign
Karnabæjar að Lauga-
vegi 66 á nauðungar-
uppboði í byrjun þessa
árs og í kjölfarið var
Karnabær (Danlelsson)
tekinn til gjaldþrota-
skipta. Engar veðkröfur
eða forgangskröfur bár-
ust, en almennar kröfiir
hljóðuðu upp á tæplega
95 milljónir króna og
greiddust rúmar 300
þúsund krónur upp í
þær.
Guðlaugur Berg-
mann og fjölskylda eiga
eftir sem áður nokkur
önnur hlutafélög. Þau
reka Saumastofuna Sól-
ina hf. í leiguhúsnæði
við Nýbýlaveg og í
símaskrá eru skíáð þar
til húsa Kamabær og G.
Bergmann hf, sem nú
hefur reyndar hlotið
nafnið Toppco hf. Þar
fyrir utan má finna á
skrá hlutafélögin Berg-
mann og Bergmann hf.
(fasteignarekstur), Betra
líf hf. og bókaforlagið
Birting hf. (áður Nýald-
arbækur hf). Fyrir fáein-
um ámm var Guðlaug-
ur Bergmann í samfloti
með hópi einstaklinga
sem lögðu til fé í hluta-
fjáraukningu Hafskips
og síðar Arnarflugs.
Guðlaugur var einnig
um árabil helmingseig-
andi Steina hf„ sem nú
hefur runnið saman við
Skífuna í Spor hf. Sam-
kvæmt glænýrri til-
kynningu til hlutafé-
lagaskrár er Guðlaugur
Bergmann meðstjór-
andi í Spori, ásamt Jóni
Ólafssyni stjórnarfor-
manni og Steinari Berg
ísleifssyni fram-
kvæmdastjóra Spors.
Tvennum sögum fer af
eignaraðild Guðlaugs í
Spori; ýmist er hann
sagður eiga ekkert
hlutafé í Spori eða þriðj-
ung
Friðrfk Þór Guömunds-