Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 34
34 PRESSAN
„Hvað ertu að bauka, manni?“
Ég leit upp í undran, sá þessi pottormur ekki að ég
var að reyna að leysa reiðhjólið mitt af girðingunni. Það
er aldrei oflæst reiðhjólum í þessari borg. Eg svaraði
pjakknum bara af skynsemi. Kom þá ekki:
„Afhverju?"
Jú vissulega ætlaði ég á völlinn, til að hvetja mitt lið
áfram. Það jafnast ekkert á við það að eiga sitt uppá-
haldslið og fyrir utan það að eiga heima í hverfinu. Olíkt
blessuðu Frammmörunum sem finnst best að eiga
hvergi heima og þurfa að spila í nágrenni Snobbhill. Sú
var tíðin að Fram gat eitthvað með Pésa Orm og
Gumma Stínk fremsta en ekki er Geiri Vin, bróðir
Drésa, búinn að gera það gott. Enda ætlar hann ekki
að setjast að hér. Sjúggh.
Nema hvað að ég lærði það að reyna ekki að fara á
minn völl á bíl. Djöfulli fiott stúka. Metaðsókn á völlinn,
700 kallinn inn, og bílastæði hjá Gróttu. Ætli íbúar á
Kaplaskjólsvegi, þarna í blokkunum séu ekki orðnir
leiðir á þessum sem þurfa alltaf að míga utan í húsin
þeirra í hálfleik. Eða ætlar KSÍ að beita sér fyrir því að
leikhlé sé ekki tekið?
Það er alveg boröleggjandi afhverju hléið er tekið.
Fótboltakapparnir þurfa jú að míga smá glussa. Níutíu-
mínútur án losunar. Ekki hægt. Hafiöi ekki séð hvernig
Rúnki Jesús þarf alltaf að flýta sér með boltann þeg-
ar’ann fær’ann. Reyna að sóla upp allan völlinn. Það er
ekki það sem liggur fyrir honum. Hann er bara í spreng
og getur ekki einbeitt sér, veit ekki hvað hann á að
gera! Enda þegar hann loksins snertir boltann, svona
óvart eftir misheppnaða fyrirgjöf þá steinliggur hann í
netinu. Einungis vegna þess að hann var alveg að gera
á sig og vildi drifa sig á tojið.
Ég, einsog flestir Islendingar, var búinn að bóka gott
sumar. Fullt sumarfrí og KR á toppnum. Engin spum-
ing? Man United í Englandi og KR á íslandi. Oekkí.
Sumarið næstum á enda og ekkert fri í augsýn og
enginn titill í augsýn. Jú kannski aumingjatitiil. Minnir
mig á þegar Liverpool var hversmanns hugtjúfi með
þetta Dalglish gerpi í fararbroddi, einsog það sé ekki
hægt aö taka IA í nefið. Þeir framleiða nógu mikiö af
sementi þarna uppfrá. Enda er ekkert nema steypa
sem kemur út úr þeim. Ég tala af reynslu. Ég bjó þama
í nokkrar mínútur.
Man enginn eftir Stoke City með Gordon Banks í far-
arbroddi?? Þá var nú spilaður almennilegur botti. Núna
sjáum viö bara eftirhermur. En ég er viss um að Valdi
Lygsa dregur það besta fram úr Stoke og sýnir hinum
héma hvernig á að vera meistari. Að minnsta kosti er
Geiri Vin orðinn langeygður eftir sigri eða búinn að
gleyma hvernig það er gert.
Einhver gaukaði því að mér að hinn fomi fjandi Bog-
omil Font væri liðtækur spilari. Væri ekki ráð að fá
hann til þess að hressa uppá fótmennt KR-inga? Vist
hefur hann ært dansfótmennt landans. Eða kannski
bara öll liðin? Ég held að ekki veiti af. Núll-núll í Albarv
íu! Úá ÍA. Því miður er það of seint, Bógó er horfinn! Efr-
aim Zuroff fann nokkur skjöl um hann. Og það sem
verra er, er að KGB trúir honum.
Ég var helvíti blautur þegar þeir fiskuöu mig uppúr
sjónum. Einhver auli hafði gleymt að segja mér að það
væri ekki búið að malbika út í Eyjar. Og það væri nauð-
synlegt að fara með Ferjólfi ef ég ætlaði að hjóla þang-
að. Kannski eins gott. KR vann fjögur tvö.
Og hvað er ég að bauka?
Ekki neitt. Alls ekki neitt!!
Einar Ben.
ELDHUS...
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
trúlega munúðarfull Lumi Cavazos í hlutverki Titu, í mexíkósku myndinni
Kryddlegin hjörtu.
Marc Leonardi fer með hlutverk Pedro en hann kannast margir við úr ítölsku
kvikmyndinni Cinema Paradiso.
Síðla veturs í fyrra kom
út á íslenskum markaði
bókin Kryddlegin hjörtu
eftir mexíkóska höfundinn
Lauru Esquivel. Þar er
skrifað um hina ástríðu-
fullu Titu sem meinað er
að bindast sínum heittelsk-
aða Pedro vegna
strangra samfélagsreglna.
Bannið er þeim mikið
áfall en til að vera sem
næst meynni giftist Pedro
systur Titu, hinni loftmiklu
og feitu Rosauru. Tita veit
ekki sitt rjúkandi ráð en í
stað þess að gera uppst-
eyt innsiglar hún ástríðurn-
ar og girndina sem hún
elur innra með sér í snilld-
arlega matseld sína.
Ahrifin láta ekki á sér
standa og réttirnir hennar
hafa ótrúleg áhrif á þá
sem þeirra neyta.
Sagan er með ólíkind-
um lostafull, skemmtileg
og bragðmikil að auki en
hún hefur nú verið fest á
filmu, vonandi með sömu
áhrifum. í hlutverki Titu er
Lumi Cavazos en með
hlutverk Pedros fer Marc
Leonardi sem margir
kannast við úr
ítölsk/frönsku kvikmynd-
inni Cinema Paradiso.
Myndin hefur fengið fá-
dæma viðtökur í
Bandaríkjunum
en nú vill svo
að okkur Is
lendingum
gefst einnig
kostur á að
sjá hana.
Það kemur til
af því að
mexíkósk kvik
myndahátíð
stendur nú yfir í Há-
skólabíói, en þar verða
sýndar alls sjö mexlkóskar
kvikmyndir sem allar falla
undir þá skilgreiningu að
vera bæði heitar og mu-
núðarfullar. Hver mynd
verður aðeins sýnd í nokk-
ur skipti en hátíðinni lýkur
5. september.
I
I
I
I
I
I Ef einhvern langar að
vita hvernig Davíð
Oddsson lítur út
eftir 20 ár, þá
nægir að líta á
Hollendinginn
Frans Koster.
Hann átti í við-
skiptum við
Stálfélagiö sál-
uga, sem lík-
lega er skýringin
á gráu hárunum,
en Davíð er hins veg-
: ar öllu lífsþreyttari á
! svipinn. Að öðru leyti
j eru þeir eins, víðáttu-
■ miklar nasir sem snúa
I beint niður, þykkir og
I gerðariegir eyrnasnepl-
I ar, breitt enni með lóð-
I rétta hrukku á réttum
I stað, haka og undirhaka
I af sömu ætt.
I
I
landslagsímynd með vötnum,
fjöllum og heiðarbýlum. En
einhvern veginn passa þessir
tveir hutar myndanna ekki
saman, eins og sést t.d. af
myndinni af Louisu og hund-
inum Blaze, sem virðast
standa heima í stofu frekar en
í Guðs grænni náttúrunni.
Myndimar úr Reykjavík henta
betur þessum myndstíl, þar
sem litrík húsin, sléttir fletir og
skuggar gefa tækifæri á sterk-
um litasamsetningum.
Langbestu myndirnar á
sýningunni eru þó kyrralífs-
myndirnar (þótt allar myndir
hennar séu uppstilltar á einn
eða annan hátt), sem er list-
form sem Louisa hefur fullt
vald á. Myndbygging, litasam-
spil og formun hlutanna er
eðlileg og áreynslulaus. Ólíkt
myndum frá fýrri hluta ferils-
ins þá búa kyrralífsmyndir síð-
astliðinna tíu ára yfir harð-
neskju og efnisfestu. Jafnvel
dúkarnir virðast stökkir og
ósveigjanlegir. Hlutunum er
dreift um borðið og hverjum
og einum hlut gerð full skil
með ákveðnum pensildrátt-
um.
Sýningunni hefúr verið fýlgt
úr hlaði með eigulegri bók
með málverkum Hstakonunn-
ar og ágætum inngangi eftir
Kristínu Guðnadóttur. Hún
kemur með þá athyglisverðu
uppástungu að uppstillingar
Louisu frá seinni árum eigi sér
hhðstæðu í vanitas myndum,
sem einkum voru kyrr alífs-
uppstillingar sem áttu að
minna á hégóma og hverful-
leika tilverunnar. Myndir
Louisu eru a.m.k. gersneyddar
hégóma, það fer ekki mikið
fýrir munúð eða upphafningu
MYNDLIST
Úr eldhúsi Louisu
„Á sjálfsmynd frá 1989 er andlitið án
augna og munns, en peysan sem hún
klœðistfœr ítarlega meðhöndlun. Þetta
smáatriði er eitt aförfáum atriðum sem
gefa okkur vísbendingu um persónuna að
baki, því hún er listakona sem erfrábitin
því að draga athyglina að eigin persónu.
Annað vœri hégómi. “
á veraldlegum lystisemdum.
Borðin sem hún málar eru
engin gnægtarborð. Græn-
metið er ekki gimilegt, aðeins
fallegt. Fegurðarskyn Louisu
er skynrænt, en ekki tilfinn-
ingaþrungið. Það er heldur
engan hégóma að finna í
sjálfsmyndum hennar. Hún
málar sjálfa sig eins og hvem
annan hlut sem hún hefúr fyr-
ir augunum dags daglega. Þar
er enga miskunnarlausa sjálfs-
rýni að finna. Á sjálfsmynd frá
1989 er andHtið án augna og
munns, en peysan sem hún
klæðist fær ítarlega með-
höndlun. Þetta smáatriði er
eitt af örfáum atriðum sem
gefa okkur vísbendingu um
persónuna að baki, því hún er
listakona sem er frábitin því
að draga athyglina að eigin
persónu. Annað væri hégómi.
LOUISA MATTHÍASDÓTTIR
KJARVALSSTÖÐUM
Louisa Mattliíasdóttir hefúr
búið mestan hluta ævinnar í
New York borg, eða síðan
1941. Þar hefur hún sýnt
reglulega í þijátíu ár og hlotið
jákvæða dóma. Hér heima
hefur hún eignast tryggan hóp
aðdáenda. Á Kjarvalsstöðum
getur að Hta úrval af málverk-
um Hstakonunnar frá tímabili
sem spannar yfir fimmtiu ár,
en allmargar myndanna eru
ffá undanfömum árum.
Louisa er málari, hún málar
auðkennanlega hluti, með
skýrum formum og skærum
litum. Verk hennar em sniðin
fyrir þá sem vilja hafa málverk
einföld, án refja, án „hug-
myndafræði”. Verk Louisu
hafa verið sett í samhengi við
amerískan realisma í málara-
listinni, en það hefur ávallt
verið til öflugur hópur real-
ískra málara í Ameríku þótt
þeir hafi oft horfið í bak-
grunninn. Má þar nefúa sem
dæmi Edward Hopper á fyrri
hluta aldarinnar, en mynd
Louisu af Vesturgötunni hefúr
á sér svipað yfirbragð og götu-
myndir Hoppers. Og af rea-
Hstum sem nú vekja eftfrtekt í
Ameríku má nefúa Eric Fischl,
skrásetjara amerísks heimilis-
lífs. En Louisa er ekki rétt-
nefúdur reaHsti, því hún notar
ekki myndir sínar til að rýna í
heiminn og afhjúpa hann.
Hún heldur sig við hefð-
bundnar myndgerðir, kyrraUfs
uppstillingar (nature morté),
portrett, landslagsmyndir og
horgarmyndir, án óvæntra
KOLBRÚN
BERGÞÓRSDÓTTIR
ffávika. Það eru engin óvænt
smáatriði sem vekja grun um
að eitthvað fleira búi að baki.
Yfirborð hlutanna nægja
henni. Hún notar ekki mál-
aralistina til að rýna og af-
hjúpa heldur er heimurinn
henni tilefni til að skapa mál-
verk.
Það má greina stöðuga en
hægfara þróun í myndlist
hennar og það er athyglisvert
að sjá að hún hefur verið að
móta sinn stíl allt fram á
þennan dag. Myndirnar fá
ekki á sig þann afgerandi ka-
rakter sem maður kannast við
af seinni myndunum fyrr en
kemur ffarn á áttunda áratug-
inn. Elstu myndfrnar búa yfir
mýkt í litum og formum, eins
og í myndinni „Drengur að
Ieik“ frá 1939, en sú mynd Hk-
ist töluvert verkum Nínu
Tryggvadóttur ffá sama tíma.
En í myndum ffá undanföm-
um árum kveður við annan
tón. í staðinn fyrir ávala mót-
un forma koma einhtir, flatir
fletir, homhvassari form, skír-
ari birta og sterkar litaand-
stæður. Lengst gengur Louisa í
landslagsmyndunum. En það
er einnig þar sem henni tekst
einna síst upp. Landslags-
myndimar em langt ffá því að
vera sannfærandi. I forgrunni
standa stílfærðar myndir hesta
og kinda á eirflitum reitum. 1
bakgmnni sést í hefðbundnari