Pressan - 26.08.1993, Síða 40
Steingrímur J. Sigfússon undirbýr formannskjör í Alþýðubandalaginu
lét græða hár á skallann
Róttækar breytingar á sjónvarps-
dagskránni:
Barnatíminn
felldur niður
— Lengi staö/ö til, segir Steingrímur og segir málið ekki hafa hápólitíska merkingu.
NJorðurlandi eystra, 26. ágúst.
Sveitungar Steingríms J.
*,"Sigfússonar hafa vakið at-
liygli Gulu Pressunnar á
þykku, gullnu hári sem nú
sprettur á höfði hans þar sem
íður var landsfrægur, skín-
mdi skalli. Heimildamenn í
\lþýðubandalaginu líta á
f>etta sem öruggt merki þess
að hann hyggist bjóða sig
ffam til formanns gegn Ólafi
Ragnari Grímssyni, en hann
ber á móti því.
„Þetta hefúr lengi staðið til,
en mér hefúr ekki unnist tóm
til þess fyrr,“ sagði Steingrím-
ur við blaðamann GP í morg-
un. „Þér að segja hefur mér
rerið strítt á skallanum síðan
ég var í barnaskóla og ég var
einfaldlega búinn að fá nóg.“
Aðspurður sagði hann það
ilgera tilviljun að hárið líkist
ótrúlega glókollinum á Ólafi
Ragnari.
„Konunni minni fannst
aetta fallegast,“ sagði hann.
„Auk þess veit ég ekki til þess
að formaður Alþýðubanda-
lagsins hafi einkaleyfi á svona
hári og klippingu. Ég ætla að
vona að hann sé ekki að reyna
að efna til innanflokksátaka
um þetta. Það er ábyrgðar-
hlutur að espa flokksfólk upp
og getur tekið langan tíma að
græða slík sár.“
Má búast við að þú rakir þig
líka?
„Ég ætla ekki að gefa út pól-
itískar yfirlýsingar á þessu
stigi, en mér þykir líklegt að
skeggið verði áfram á sínum
stað. Geturðu hugsað þér tii
dæmis Lenín eða Svavar
skegglausa?"
Það var Starri Þorgrímsson
í Garði sem fyrstur tók eftir
breytingunni á Steingrími.
„Ég sá þennan glókoll koma
eftir heimreiðinni og var
kominn út á hlað með hagla-
byssuna mína þegar ég sá að
þetta var ekki Olafur Ragnar,“
sagði Starri í stuttu samtali við
GP. „Ég verð að viðurkenna
að mér brá hastarlega. Ég
kunni ágætlega við Steingrím
kollóttan eins og hann var og
ég veit svei mér ekki hvað ég
geri ef hann býður sig fram til
formennsku svona útlítandi.
—Yfirlýsing embættismanna landbúnaðarráðuneytis:
Halldór Blöndal er ekki Halldór Blöndal
— áhorfendur barnaefnis látnir
stjórna umraeðuþáttum í staðinn.
að umsjónarmaður ullaði
framan í einn þátttakenda
skömmu áður en þátturinn
leystist upp í almennum
slagsmálum.
„Þetta er hluti þeirrar yfirlýstu
stefnu Sjónvarpsins ao leyfa
nýju, ungu hæfileikafólki að
spreyta sig við dagskrárgerð,“
sagði Hrafn Gunnlaugsson,
aðspurður um breytingarnar.
„Það vantar nýtt bíóð í þessa
stofnun í stað rykfallinna
starfsmanna sem hættir
eru að fá hugmyndir. Ég
bendi á að langt er síðan
umræðuþættir í Sjónvarpi
hafa fengið álíka athygli og
umtal. Það sýnir að við er-
um á réttri leið.“
Aðrar heimildir innan
Sjónvarps herma að við
athugun hafi komið í ljós
að einungis tæplega tíu
börn á landinu hafi horft á
barnaefni Sjónvarpsins
ótilneydd. Hagstæðara
hafi þótt að nýta áhuga
þeirra á sjónvarpi til dag-
skrárgerðar og spara
þannig umtalsverðan
launakosmað.
Viðhorfskönnun GP í
barnaskólum renndi stoð-
um undir þessa skýringu
og leiddi í ljós að íslensk
börn voru yfirleitt ánægð
með þessa tilhögun. „Ég er
sko feginn að þeir hættu
að hafa þennan barna-
tíma,“ sagði Snævar
Hólmarsson átta ára. „-
Mamma skipaði okkur að
horfa á þessa smábarna-
þvælu svo hún gæti eldað
matinn í friði. Nú getur
maður sko spiiað Nin-
tendo án þess að kellingin
Stjórnarráðinu, 26. ágúst.
„Það vakir fýrst og
fremst fyrir okkur að
bera til baka tilhæfú-
lausan fréttaflutning
ýmissa fjölmiðla þess
efnis að Halldór
Blöndal sé Halldór
Blöndal," sagði Guð-
mundur Sigþórsson,
aðspurður um yfir-
lýsingu starfsmanna
landbúnaðarráðu-
neytis.
„Það er langt síðan
við uppgötvuðum að
þetta er ekki rétt, en
við ætluðum ekki að
leiðrétta það fyrr en
við hefðum komist að
því hver Halldór
Blöndal er í raun og
veru. Söguburðurinn
hefur hins vegar
magnast svo síðustu
vikur að við getum
ekki setið þegjandi
undir honum leng-
ur.“
Að sögn Guð-
mundar stendur nú
yfir umfangsmikil
rannsókn á Halldóri í
ráðuneytinu, en nið-
urstaða er ekki fengin
enn. „Við vitum ekki
hver maðurinn er, en
okkar vegna liggur
ekkert á að komast að
því. Þetta er rólyndis-
náungi, skemmtilegur
þegar þannig liggur á
honum og hann hef-
ur lítið skipt sér af því
hvernig við stjórnum
hér í ráðuneytinu. Við
skilum líklega skýrslu
einhvern tíma fyrir
stjómarskipti.“
Lauqavegi 178, 26. óqúst.
Sjónvarpsáhorfendur hafa
teldð eftir töluverðum breyt-
ingum á umræðuþáttum,
meðal annars að meðalaldur
tmttastjómenda vfrðist hafa
ækkað um nokkra áratugi á
fáeinum vikum. Þættimir
em með nokkuð öðm yffr-
bragði en áður og vakti til
dæmis víða athygli í vikunni
HRÓI HÖTTUR KÓPAYOGI 4 44 44, REYKJAVÍK 62 92 92, HAFNARFIRÐI 65 25 25
«
i
Í
-+