Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 42
T V O G B I O
42 PRESSAN
Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993
SJÓNVARPID
Sjáið:
• íslenski hesturinn í ströngu á RÚV á fimmtudags- og
sunnudagskvöld. Stoltir hestamenn á erlendri grund.
• Brot ★★★ Shattered á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Stolnar
fttlchcock-hugmyndir sem ganga bara merkilega vel upp.
• Safnarinn ★★★ The Collector á Stöð 2 á föstudagskvöld.
Sjúklegur en trúverðugur þriller.
• Matarhst Francois Fons bakar epla-
köku á RÚV á sunnudag. Þáttur sem
lagar línurnar.
• Fjölskyldurerjur ★★★ To Sleep
With Anger á Stöð 2 á sunnudags-
kvöld. Heimur hinna þeldökku, ástir
þeirra og sorgir. Prýðileg.
• Teboð útfararstjórans The Mortician’s Tea Party á RÚV á
sunnudagskvöld. Vaðandi breskur húmor.
Várist:
• Feðginin ® The Tender á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. John
T ravolta dansar ekki. Það kann ekki góðri lukku að stýra.
• Væntingar og vonbrigði ® Catwalk á RÚV á laugardags-
kvöld. Mikið væri gleðilegt ef sjónvarpseíhi á þessum tíma dags
væri ögn uppbyggilegra.
• Olserdiðið á sporinu ® Olsenbanden pá sporet á RÚV á laug-
ardagskvöld. Vissulega er til einstaka
pervers fólk sem diggar Olsenliðið í
botn. Fyrir alla hina er þetta sóun á fé
skattborgaranna.
• Glannafengin för ® Dangerous Cur-
ves á Stöð 2 á föstudagskvöld. Hó, hó,
hó, hér er amerískur farsi á ferð. Slökkv-
ið tímanlega á tækinu.
KVIKMYNDIR
Algjört möst:
• Júragarðurinn ★★★ Jurassic Park Þetta er spennandi ævin-
týramynd sem ætlað er nákvæmlega sama hlutverk og hinum
„raunverulega“ Jurassic Park, að græða peninga. Hæstiréttur
um gæði þessarar myndar eru börnin. Þegar hasarinn fór að
færast í aukana í myndinni hættu strákar að stríða stelpum og
stelpur hættu að gjóa augum á stráka. Bíóhöllinni, Bíóborginni og
Háskólabíói.
• Super Mario Bros ★★★ Frumleg saga sem gengur upp,
góðu kallarnir vinna og allt og allt. Myndin er skemmtileg,
fyndin og hentar flestum meðlimum fjölskyldunnar (þó ekki
heimilisdýrunum). Regnboganum.
• Síðasta hasarmyndahetjan ★★★
Last Action Hero Þessi mynd er ákaflega
vönduð hvað snertir leik og alla gerð.
Tæknileg affeksverk eru unnin í henni
hvað eftir annað. Eiginlega er hún of-
Jilaðin af yfirgengilegum spennuatriðum
og sprelh, og er það helsti galli myndar-
innar. Stjörnubíói.
• Þríhymingurinn ★★★★ Ætla má að
þar fari hálfJdámmynd um vændismenn og búksorgir þeirra
sem maður sér kl. 11, einn. Fljótlega kemur í ljós að varlegt er að
treysta auglýsingum (og umsögnum lcvikmyndagagnrýnenda),
því hér getur að líta sérstaklega skemmtilega og hjartahlýja
mynd um ástina og vald tilfinninganna yfir okkur. Regnbogan-
um.
• Á ystu nöf ★★★ Clifflianger Frábærar tælcnibrellur og bráð-
skemmtileg mynd. Það er bara galli að efnið sjálft er botnlaus
þvæla. Stjörnubíói og Háskólabíói.
• Mýs og menn ★★★ O/ mice and men Mestmegnis laus við
væmni og John Malkovich fer á kostum. Háskólabíói.
í leiðindum:
• Allt í kássu ★★ Splitting Heirs Myndin missir dálítið marks
vegna þess að húmorinn er of staðbundinn. Breski aðallinn og
hans bjástur höfðar eldú til íslendinga. Olckur er eiginlega alveg
sama hvað hendir svoleiðis fólk. Þess utan er myndin einfaldlega
eldd nógu fyndin. Bíóhöllinni.
• Við árbakkann ★★ A RiverRuns Through /íLífþeirra er slétt
og fellt og höfundurinn skrifar þessa sögu sjálfum sér og fortíð
sinni til dýrðar. Kvilcmyndin ber botnlausri sjálfsánægju Ro-
berts Redford fagurt vitni. Háskólabíói.
• Ósiðlegt tilboð ★★ Indecent Proposal Svo hæg að það er
varla að hún festist í minni. Demi Moore bjargar því sem bjarg-
-'ð.verður. Bíóhöllinni og Háskólabíói.
• Tveir ýktir ★ National Lampoon’s Loaded Weapon. Alveg á
mörkunum að fá stjörnu. Sundboladrottningunni Kathy Ire-
land er svo fýrir að þakka að myndin er ekki algjör bömmer.
Regnboganum.
• Lifandi ★★ A/iveÁtakanleg saga, en persónusköpun er engin
og mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói.
Bömmer:
• Hvarfið ® The Vanishing Átakalítil fýrir hlé en mjög góður
leikur JeffBridges bjargar tilþrifalitlum söguþræði. Sögubíói
• Skjaldbökumar 3 9 Tlnee Ninjas Blessuð látið ekki krakk-
ana plata ykkur á þessa dellu því hún er ekki 350 kr. virði. Þið
finnið ykkur örugglega eitthvað skemmtilegra að gera. Bíóhöll-
ÍMÍr-~~-------------------------------------- -
Toi Cruise með lög-
fræðing á heilanum
Tom Cruise leikur ungan lögfræðing í kvikmyndinni, The Firm, sem gerð er eftir samnefndri metsölubók og verður frum-
sýnd hér með haustinu.
Aðeins tvö ár eru síðan
bókin The Firm eftir John
Grísham kom út í Bandaríkj-
unum, en hún seldist í tug-
þúsundum eintaka og var
lengi á metsölulista þar
vestra. Það sama ár sendu
forráðamenn Paramount
kvikmyndaversins leikaran-
um Tom Cruise eintak af
bókinni en hann var þá
staddur á írlandi við tökur á
kvikmyndinni Far and Away.
Það tók hann aðeins einn
dag að renna yfir síðurnar
en að því loknu fékk hann
hlutverk hins unga lögfræð-
ings Mitch McDeere á heil-
ann. Honum varð að ósk
sinni og nýlega var myndin
frumsýnd í Bandaríkjunum.
Söguþráður er í aðalatriö-
um sá aö Mitch McDeere
hefur nýlokið lögfræðinámi
þegar hann fær einstakt at-
vinnutækifæri frá lögfræði-
þjónustu í Memphis. Hann
þiggur starfiö en kemst fljót-
lega að þvl að starfinu fylgja
nokkrir hnökrar sem hann
sá ekki fyrir I upphafi. Á bak
við fyrirtækið stendur Mafí-
an, en bandaríska alríkislög-
reglan, FBI, leggur hart að
honum að leggja snöru fyrir
vinnuveitendur slna.
Stærstu mistök McDeeres
eru þó þau að halda fram-
hjá eiginkonu sinni.
Leikstjórinn Sidney Poll-
ack, sem meðal annars
leikstýrði The Piayer og
Presumed Innocent, ól lengi
með sér þá hugmynd að
breyta helsta skúrkinum I
bókinni I kvenpersónu.
Hafði hann hugsaö sér Mer-
yl Streep I hlutverkið en
hætti svo við allt saman og
lét það I hendur Gene
Hackman. Pollack þykir að
öðru leyti fýlgja söguþræði
bókarinnar að mestu leyti
allt þar til kemur að endin-
um en þá tekur myndin
óvænta stefnu. Ekki eru allir
á eitt sáttir um ágæti þess-
arar ákvörðunar leikstjór-
ans, en Cruise, sem nældi
sér I litlar 12 milljónir doll-
ara fyrir leik sinn, segir til-
högunina síður en svo til
vansa.
Kvikmyndablaðiö Premi-
ere hefur spáð The Firm
sjötta sætinu á lista yfir vin-
sælustu myndir sumarsins
og talið er að hún geti halað
inn 100 milljónum dollara á
augabragði. Hérlendis verð-
ur myndin sýnd I október-
mánuði I Sambíóunum og
Háskólabíói.
TV - Helgi Björn
Helgi Bjöm Kristinsson er
bráðskemmtilegur stjórn-
málafræðingur og ritstjóri
hjá bókaforlaginu Hagli.
07:00 Á náttkjólnum Unda Pét-
ursdóttiríléttu spjalliog
ótiúlegri moigunleikfimi.
08:00 Pönnukökur meö sirópi
Fylgst meö Skúla Helga
matreiða hefðbundinn
ameriskan moigunverð.
08:35 Áleiöívinnuna Óli H.
Þóiðar sýnir hvemig á aö
setja úrillan krakka í bíl-
stól.
09:00 Cordoba 384:679 Brasil-
ísk sápuópera.
10. -00 Bamadagskrá Teiknk
myndir, klippimyndir,
brúður og Biyndís
Schran.
11. -00 Górillan og hafmeyjan
Davíð Þór og Helga Kress
leita svars viö spumirg-
unni: Hver á aö elda há-
degismatinn?
12:00 Bein útsending frá stóra
salnumíKR- heimilinu.
13KX) Málin leyst Sósíal drama.
1500 Sjóræningjamynd
1700 Fjármál 3. heimsins Arö-
rán alþjóðafyrirtækja.
1800 Falda myndávélin Fylgst
með mfi. KR fara til sák
fræðings.
1900 Fréttamagasín og dægur-
efni
20*30 Spaugaö meö biákaldan
veruleikann
2100 Meö kvöidkaffinu Altt
skemmtilega, fallega og
gáfaöa fólkiö spjallar fynr
okkur hin.
2200 Cherry 2000 Endursýnd
aftur.
0015 Dagskráriok Þula að
hætti Hrafns býöur góða
nótt
KVIKMYNDIR
Gott og vont í Laugarásbíói
FEILSPOR (One False Move)
LAUGARÁSBÍÓI
★★★★
DAUÐASVEITIN (Extreme
Justice)
LAUGARÁSBÍÓI
★
Þótt seint sé, er rétt að geta
þess sem vel er gert. Kvik-
myndin Feilspor hefur nú
gengið mánuðum saman og
hugsanlega dregur að því að
sýningum á henni ljúki. Þessi
sérstæða sakamálamynd fjall-
ar um tvo karla og konu sem
ræna fé og miklu magni eit-
urlyfja um leið og þau myrða
fjölda manns á hrottalegan
hátt í stórborginni. Flótti
þeirra af vettvangi undan lag-
anna vörðurn berst á heima-
slóðir konunnar í sveitina,
þar sem ungur lögreglumað-
ur hyggur gott til glóðarinnar
að baða sig í frægðarljóma við
handsömun stórglæpa-
manna. Lögreglumennirnir
úr stórborginni gera þó að
honum góðlátlegt grín. Smátt
og smátt kemur í ljós að í for-
sögu konunnar leynist annar
glæpur, feilspor sem tengist
þeim illvirkja sem myndin
þeinir sjónum sýnum að þeg-
ar líða tekur á.
Myndin er ákaflega vel
gerð og leikin. Höfuðstyrkur
hennar er þó afbragðshandrit
þar sem góður tími fer í að
kynna bakgrunn þeirra ein-
staklinga sem við sögu koma í
harmleilcnum. Eftir á hugsar
maður að einmitt svona eigi
að gera góða glæpamynd. Á
yfirborðinu er um að ræða
tómatsósumynd sem full-
nægir áreiðanlega þeim sem
ekki gera miklar kröfur til
kvikmynda. Undir niðri er
byggt upp drama um meinleg
örlög sem lætur engan
ósnortinn. Leikstjórinn hefur
meira að segja vit á því að láta
endinn verða nógu óljósan til
þess að hægt sé að túlka hann
á ýmsa vegu. Hver ber ábyrgð
á harmleiknum í lokinn? Er
það konan, er það illvirldnn í
sveitinni eða eru það ein-
hverjir aðrir? Til þess að geta
svarað því verður lesandinn
einfaldlega að drífa sig í Laug-
arásbíó áður en það er um
seinan.
Þrátt fyrir að myndin
greini frá hörmulegum at-
burðum þá er maður glaður í
sálinni eftir að hafa séð þessa
mynd. Enn koma fram frá-
bærir listamenn og sagna-
meistarar sem bjarga kvik-
myndum frá því að verða
endalaus uppúrveltingur úr
kvalalosta og lákúrulegu
ógeði. Enn koma ffam meist-
arar sem veita olckur innsýn í
þjáningu annarra manna,
sem kenna okkur að þekkja
leiðina til annars fólks.
Eftir að hafa séð Feilspor
hugsar maður sér gott til
glóðarinnar að færa sig um
set hinum megin í Laugarás-
bíó, þar sem nú er verið að
sýna hina öfgafullu réttvísi í
aðalsalnum. Þar leikur Scott
Glenn sem er að góðu kunn-
ur úr Leitinni að rauða októ-
ber og fleiri góðum myndum.
Þar leikur og ungur maður
sem heitir Lúðvík Demantur
Filipusson (Lou Diamond
Phillips) og líka mætti nefna
Lúðvík Tígul. Lúðvík þessi
Tígull er síðhærður og ennis-
lágur, nefstuttur og breiðleit-
ur, handleggjalangur og fót-
stuttur og minnir um margt á
teikningar sem fræðimenn
hafa gert af Neanderdals-
manninum.
Sagan greinir ffá sérstökum
víldngasveitum lögreglunnar
í Los Angeles sem starfa á
laun við að uppræta illþýði
stórborgarinnar. Ungi mað-
urinn, sem leikinn er af Lúð-
vík í Tígli, er venjulegur lög-
reglumaður sem lendir í úti-
stöðum við innra eftirlit lög-
reglunnar vegna ofbeldis-
verka í daglegu starfi. Gamall
starfsfélagi hans (Scott
Glenn), sem nú starfar með
sérsveitunum, bjargar unga
manninum úr þessum vanda
og ræður hann til starfa hjá
sérsveitunum. Verða þeir nú
starfsfélagar þar að nýju. Læt-
ur myndin í veðri vaka að
þeir sérsveitarmenn skjóti allt
„Blaðakonan ógur-
lega erfríð sýnum
(þótt húnjafnist
hvorki á við Agnesi
né Sússu) og er allt-
afaðjagast í sam-
býlismanni sínum
út afvinnunni. “
sem hreyfist, jafnt stórhættu-
lega vopnaða bankaræningja
sem ærslafulla unglinga með
leilcfangabyssur. Unga mann-
inum verður bumbult af
þessu sem vonlegt er, eldd síst
vegna þess að svo vill til að
hann býr með blaðakonunni
ógurlegu sem hefur einmitt
þann starfa að fletta ofan af
spillingunni innan lögregl-
unnar. Blaðakonan ógurlega
er ffíð sýnum (þótt hún jafn-
ist hvorki á við Agnesi né
Sússu) og er alltaf að jagast í
sambýlismanni sínum út af
vinnunni. Slíta þau samvist-
um um sinn þar til ungi mað-
urinn álcveður að fletta ofan
af starfsfélögum sínum og
þeirra öfgafullu réttvísi. Þá
snýr hann sér til blaðakon-
unnar ógurlegu sem lætur
hendur standa fram úr erm-
um og kemur öllu saman í
blöðin, útvörpin og sjónvörp-
in. Blaðakonan ógurlega og
Neanderdalsmaðurinn eru
saman eftir þetta og vonar
maður að þeim búnist vel og
farsællega.
Um ffamangreint kjaftæði
er svo sem ekki mikið að
segja.
Myndin er þokkalega unn-
in og leikur er sæmilegur. Að-
altema myndarinnar er
vonska lögreglumanna og
göfgi blaðamanna sem minn-
ir á blaðamannafund sem
Rannsóknarlögreglustjóri hélt
nú nýverið til að kvarta und-
an fordómum í garð löggæsl-
unnar. Þessi mynd og enda-
laus runa af svipuðum mynd-
um taka af öll tvímæli um
botnlausa fordóma á þessu
sviði, bæði hvað snertir göfgi
blaðamanna og vonsku lög-
reglumanna.