Pressan


Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 44

Pressan - 26.08.1993, Qupperneq 44
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 643090 I I I I í I I I t A JL meðan á heimsókn Simonar Peresar, forsætis- ráðherra ísraels, stóð vakti það nokkra athygli að utan- ríkisráðherra Islands, ]ón Baldvin Hannibalsson, hafði boðað til Grænlands- f e r ð a r . Skildu það flestir sem mótmæli við heimsókn Peresar. Það fór hins vegar svo að Jón Baldvin fór aldrei til Græn- lands en fór þó í áttina og endaði á ísafirði, væntanlega til að komast burt úr höfuð- borginni. Isfirðingar segjast hafa orðið bærilega varir við heimsókn utanríkisráðherr- ans sem dvaldist á hótelinu á Isafirði. Þar var um helgina alþjóðaþing lyfjafræðinga og fór vera utanríkisráðherrans á hótelinu ekki ffamhjá þing- ■"■gestum... i ríkisstjórninni er nú tek- ist á um sjúkratryggingar- gjald Guðmundar Áma Stef- ánssonar, sérstaklega þann hluta sem segir að fólki sé frjálst að greiða það ekki, en greiða í stað- inn hærri upphæð þeg- ar og ef það lendir á sjúkrahúsi. Reiknað er með að Jóhanna Sigurð- ardóttir muni sauma ræki- lega að Guðmundi Árna vegna þess arna, enda viðbú- ið að efnaminna fólk myndi frekar sleppa því að greiða gjaldið sem yrði 0,25 til 0,5 prósent af launum. Sjálfstæð- ismönnum er hins vegar í mun að þetta ákvæði verði samþykkt, enda er þá hægt að halda ffam að ekld sé um skatdagningu að ræða, held- ur ffjálst val um tryggingar... i Alþýðubandalaginu vex nú titringur vegna væntan- legs formannskjörs, en búist er við að Steingrímur J. Sig- fússon dragi ffam á síðustu stundu að til- kynna um ákvörðun sína. Hann hefur fundað vítt og breitt um landið með stuðnings- mönnum sínum og fengið nokkrar undirtektir. Við heyrum að í Reykjavík hafi fólk verið reiðubúið að safna undirskriftum til að skora á hann til framboðs, en hann hafi beðið um að það yrði ekki gert. Ólafur Ragnar Grímsson er einnig á fund- um með trúnaðarmönnum og ein röksemdin, sem hann notar gegn slag um for- mannsembættið, er að það myndi veikja flokkinn veru- lega fyrir næstu kosningar ef þar færi allt upp í loft einn ganginn enn... r

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.