Pressan - 02.09.1993, Side 7

Pressan - 02.09.1993, Side 7
F R E TT I R PRESSAN Fimmtudagurínn 2. september 1993 Fyrrverandi bryti ó Litla-Hrauni í vandræðum vegna fyrrverandi fanga Missti húsið vegna bókhaldarans „Ég ætla að reyna að kaupa húsið aftur ef ég fæ lán til að kaupa það af Byggðasjóði, sem á það eftir uppboðið," segir Sigurður Kristmunds- son, íbúi í Hveragerði á átt- ræðisaldri. Sigurður missti húsið sem hann býr í við Heiðmörk fyrir nokkru, eftir að það hafði lent í uppboðs- meðferð vegna skulda sem Sigurður segist aldrei hafa stofnað til. „Ég gerði þau mistök að treysta manni sem ég hefði aldrei átt að treysta," segir Sig- urður, en maðurinn sem hann vísar þama til tók að sér allt bókhald fyrir Sigurð. Seg- ist hann vera sannfærður um að viðkomandi hafi misnotað sér traust hans og látinnar eig- inkonu Sigurðar. Kynntist mannin- um á Litla-Hrauni Sigurður segist hafa kynnst viðkomandi manni þegar hann vann sem bryti á Litla- Hrauni. Maðurinn, sem hefúr starfað sem bókari, afþlánaði þá fangavist og tókst kunn- ingsskapur með þeim, sem efldist eftir að hann losnaði. „Það kom í ljós að hann hafði í langan tíma hagað mínum fjármálum sér í hag. Þegar ég skoða þessi mál eftir á þá kemur berlega í ljós að ég hef verið hlunnfarinn í flest- um okkar viðskiptum. Þá gerði viðkomandi fyrir mig skattskýrslur sem eru mér óskiljanlegar og standast ekki,“ segir Sigurður. Það sem síðan reyndist honum þyngst í Sigurður við húsið í Heiðmörk, sem hann hefur nú misst. Alltafmeð eyrun og augun opin fyir því sem betur mœtti fara Áskriftarsími 643080 skauti og orsakaði að lokum að hann missti húsið voru víxlar sem Sigurður segist ekki kannast við. „Ég hef aldrei skrifað upp á þessa víxla,“ seg- ir Sigurður. Hann kærði meinta fölsun á undirskrift sinni til Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem komst að þeirri niðurstöðu að undirskriftin væri hans. Sigurður segist ekki skilja í þeirri niðurstöðu. f samtali við lögmann Sig- urðar kom ffam að verið væri að leita leiða til að rétta hlut hans, en eins og málum er nú háttað er ljóst að hann verður að rýma húsið fljótlega og þá blasir ekkert við nema gatan. Siguröur Már Jónsson SlGURÐUR KRIST- MUNDSSON býr nú einn ásamt hundi sínum Dúa: „Ég hef aldrei skrífað upp á þessa víxla.“ OPNUNARTILBOÐ Gallabuxur + bolur + belti.kr. 3.990,- Como ullarskyrtur...kr. 2.990,- Monday buxur........kr. 2.790,- Hvítar skyrtur........kr. 1.590,- Boy ullarjakki..............kr. 6.590,- - STERK FOT A STIiUKA SIKÁKA KRINGLUNNI, SÍMI 811944

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.