Pressan - 02.09.1993, Page 7
F R E TT I R
PRESSAN
Fimmtudagurínn 2. september 1993
Fyrrverandi bryti ó Litla-Hrauni í vandræðum vegna fyrrverandi fanga
Missti húsið vegna bókhaldarans
„Ég ætla að reyna að kaupa
húsið aftur ef ég fæ lán til að
kaupa það af Byggðasjóði,
sem á það eftir uppboðið,"
segir Sigurður Kristmunds-
son, íbúi í Hveragerði á átt-
ræðisaldri. Sigurður missti
húsið sem hann býr í við
Heiðmörk fyrir nokkru, eftir
að það hafði lent í uppboðs-
meðferð vegna skulda sem
Sigurður segist aldrei hafa
stofnað til.
„Ég gerði þau mistök að
treysta manni sem ég hefði
aldrei átt að treysta," segir Sig-
urður, en maðurinn sem
hann vísar þama til tók að sér
allt bókhald fyrir Sigurð. Seg-
ist hann vera sannfærður um
að viðkomandi hafi misnotað
sér traust hans og látinnar eig-
inkonu Sigurðar.
Kynntist mannin-
um á Litla-Hrauni
Sigurður segist hafa kynnst
viðkomandi manni þegar
hann vann sem bryti á Litla-
Hrauni. Maðurinn, sem hefúr
starfað sem bókari, afþlánaði
þá fangavist og tókst kunn-
ingsskapur með þeim, sem
efldist eftir að hann losnaði.
„Það kom í ljós að hann
hafði í langan tíma hagað
mínum fjármálum sér í hag.
Þegar ég skoða þessi mál eftir
á þá kemur berlega í ljós að ég
hef verið hlunnfarinn í flest-
um okkar viðskiptum. Þá
gerði viðkomandi fyrir mig
skattskýrslur sem eru mér
óskiljanlegar og standast
ekki,“ segir Sigurður. Það sem
síðan reyndist honum þyngst í
Sigurður við húsið í Heiðmörk, sem hann hefur nú misst.
Alltafmeð
eyrun og
augun
opin fyir
því sem
betur
mœtti fara
Áskriftarsími 643080
skauti og orsakaði að lokum
að hann missti húsið voru
víxlar sem Sigurður segist ekki
kannast við. „Ég hef aldrei
skrifað upp á þessa víxla,“ seg-
ir Sigurður. Hann kærði
meinta fölsun á undirskrift
sinni til Rannsóknarlögreglu
ríkisins, sem komst að þeirri
niðurstöðu að undirskriftin
væri hans. Sigurður segist ekki
skilja í þeirri niðurstöðu.
f samtali við lögmann Sig-
urðar kom ffam að verið væri
að leita leiða til að rétta hlut
hans, en eins og málum er nú
háttað er ljóst að hann verður
að rýma húsið fljótlega og þá
blasir ekkert við nema gatan.
Siguröur Már Jónsson
SlGURÐUR KRIST-
MUNDSSON býr nú einn
ásamt hundi sínum Dúa:
„Ég hef aldrei skrífað
upp á þessa víxla.“
OPNUNARTILBOÐ
Gallabuxur + bolur + belti.kr. 3.990,-
Como ullarskyrtur...kr. 2.990,-
Monday buxur........kr. 2.790,-
Hvítar skyrtur........kr. 1.590,-
Boy ullarjakki..............kr. 6.590,-
- STERK FOT
A STIiUKA SIKÁKA
KRINGLUNNI, SÍMI 811944