Pressan - 02.09.1993, Side 12
12 PRESSAN
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 2. september 1993
Bréf.fimm hæstaréttarlögmanna til dómsmálaróðherra:
ARNLJÖTUR REIKNADIALLT VITLAUST
Fimm lögmenn hafa sent
Þorsteini Pálssyni dómsmála-
ráðherra bréf þar sem gerðar
eru athugasemdir við þátt
Arnljóts Björnssonar lagapró-
fessors við mótun frumvarps
til nýrra skaðabótalaga sem
gildi tóku 1. júlí síðastliðinn.
Beinist gagnrýni lögmann-
anna fimm einkum að því að
Arnljótur hafi gefið allsherjar-
nefnd Alþingis villandi og
beinlínis rangar upplýsingar
um útreikning örorkubóta
eftir gildistöku laganna. Einn-
ig benda þeir á í bréfi sínu að
hagsmunatengsla hafi mögu-
lega gætt milli Arnljóts og ís-
lenskrar endurtryggingar, þar
sem hann gegnir hlutastarfi,
og telja þeir af þeim sökum að
um óviðunandi vinnubrögð
hafi verið að ræða við gerð
ffumvarpsins.
Samkvæmt hefðbundnum
aðferðum við útreikning ör-
orkubóta fram að gildistöku
laganna benda hæstaréttarlög-
mennirnir fimm, Jón Steinar
Gunnlaugsson, Viðar Már
Matthíasson, Atli Gíslason,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
og Sigurður G. Guðjónsson,
á að reiknað hafi verið út af
tryggingastærðfræðingi það
fjártjón sem tjónþoli varð fýrir
við að hljóta varanlega örorku
og hafi sú aðferð verið við-
leitni til að reikna út raun-
verulegt fjárhagstjón þolenda.
Þeir segja að frá þessu fyrir-
komulagi hafi verið horfið við
setningu nýrra skaðabótalaga
og í stað þess hafi verið búin
til stöðluð reikniregla sem
notuð er til að reikna út tjón
sem meðal annars miðast við
tekjur tjónþola. Telja þeir að-
ferðina ekki í samræmi við
SlGURÐUR G. GUÐJÓNSSON, JÓN SíEINAR GUNNLAUGSSON OG flTLI GÍSLASON. Þrír lögmannanna sem segja Amljót Bjömsson hafa reiknað þrjú dæmi fyrir þingnefnd og öll vitlaust. Þeir telja að um hagsmunaárekstra kunni að vera að ræða.
það markmið skaðabótalag-
anna að mæla eiginlegt fjár-
hagslegt tjón þolenda.
Lögmannafélagið hafði sent
ffá sér umsögn um ffumvarp-
ið áður en það kom til af-
greiðslu á Alþingi og komist
að þeirri niðurstöðu að um-
rædd reikniregla gæfi mun
lægri niðurstöðu um bætur
fýrir tjónþola en gildandi regl-
ur gerðu. Því var beint til
þingsins að kanna þyrffi sam-
anburð, en þingnefndin brást
við á þann hátt að fela Arnljóti
Björnssyni lagaprófessor að
kanna málið ffekar þrátt fýrir
að hann hefði sjálfur staðið að
samningu frumvarpsins að
mestu leyti. Þótti mörgum
einkennilegt að þingið skyldi
ekki leita álits annars lög-
manns.
I bréfi sínu til ráðherra
benda lögmennirnir fimm á
að þeir telji Arnljót hafa gefið
þinginu rangar og beinlínis
villandi upplýsingar og að
bætur lækki til muna verði
framkvæmd á frumvarpinu
óbreytt. Benda þeir einkum á
þrjú atriði sem betur hefðu
mátt fara í útreikningum Arn-
ljóts, máli sínu til stuðnings,
en hann hafði lagt fram þrjú
dæmi um örorkubætur til
samanburðar, annars vegar
fyrir gildistöku laganna og
hins vegar eftir gildistöku
þeirra.
í fýrsta lagi dregur Arnljót-
ur 35 prósent ffá bótafjárhæð
tjónþola vegna skattffelsisbóta
þegar hann reiknar dæmið út
frá fyrri réttarreglum, án þess
að geta þess að fjölmargir for-
dæmisgefandi hæstaréttar-
dómar sýna, svo ekki verður
um villst, að skattafrádráttur
er mishár og miðast við tekjur
tjónþola. Amljótur tekur ekki
tillit til þess við útreikning
sinn og miðar við 35 prósent-
in í öll skiptin. Lögmennirnir
benda á að réttara hefði verið
að nota í mesta lagi 20-30
prósenta skattafrádrátt.
f öðru lagi segja þeir að
Arnljótur hafi í öllum tilfell-
unum þremur dregið ffá bæt-
ur úr slysatryggingu launþega,
án frekari skýringa, sem þeir
telja fremur sjaldgæff og raun-
ar afar villandi þar sem menn
fá einungis bætur úr slysa-
tryggingu launþega ef þeir
slasast í vinnu og þá aðeins ef
atvinnurekandi er af einhverj-
um ástæðum bótakræfur. f
nýju skaðabótalögunum er
reglan um ffádrátt bóta úr at-
vinnuslysatryggingu algerlega
óbreytt en samt dregur pró-
fessor Arnljótur, af einhverj-
um ástæðum, upphæðina ffá í
dæminu fyrir gildistöku lag-
anna en ekki eftir hana. Það
leiðir af sér skekkju í niður-
stöðu.
f þriðja lagi er sagt að í öll-
um dæmunum þremur dragi
hann frá ákveðna upphæð
sem fæst úr slysatryggingu al-
mannatrygginga Trygginga-
stofnunar ríkisins. Ekki nærri
allir sem slasast og eiga skað-
bótakröfu eru verndaðir af
slysatryggingu almannatrygg-
inga. Ökumenn mynda
stærsta hópinn, en bent er á
að með lögum frá árslokum
1992 hafi verið felld niður úr
lögum um almannatryggingar
slysatrygging ökumanna og
tekur niðurfellingin gildi 1.
janúar næstkomandi. Öku-
menn njóta því slysatrygging-
arbóta aðeins í sex mánuði
eftir að skaðabótalögin nýju
hafa tekið gildi. Þetta hefði
Arnljótur átt að benda á að
mati lögffæðinganna, en það
gerði hann ekki. Með því að
beita þessum reikningsaðferð-
um telja lögmennirnir að
Amljótur hafi náð hærri bóta-
fjárhæðum samkvæmt nýju
réttarreglunum og að í því fel-
ist rangur samanburður og
muni þá umtalsverðum fjár-
hæðum.
Lögmennirnir segja jafn-
ffamt að um hugsanleg hags-
munatengsl sé að ræða þar
sem Arnljótur hafi verið í
hlutastarfi fýrir íslenska end-
urtryggingu, en þar ber mikið
á þessum málaflokki, og laga-
prófessorinn geti því vart talist
hlutlaus aðili. Þeir segja að í
meðferð opinberra mála sé
mjög þýðingarmikið að kom-
ið sé í veg fyrir öll möguleg
hagsmunatengsl, ekki síst í
ljósi þess að mikils „ófriðar“
hafi gætt í meðferð slysamála
af hálfu vátryggingarfélag-
anna, en um 200 mál hafa
verið til meðferðar Héraðs-
dóms Reykjavíkur undanfarin
tvö ár. Engin viðbrögð hafa
komið fram frá ráðuneytinu
enn sem komið er, en lög-
mennirnir hafa óskað eftir
fundi með dómsmálaráð-
herra. Munu þeir hitta hann
8. september næstkomandi og
fara ffam á að upplýsingarnar
verði skoðaðar af hludeysi og
stjórnvöld taki síðan ákvörð-
un um það hvort lagfæring
eigi rétt á sér.
Telma L. Tómasson.
Valgeir Sigurðsson vinnur dómsmól í Bandaríkjunum
Nýtt fýrirtæki hefur rutt sér tO rúms á tóbaksmark-
aðnum í Bandaríkjunum og Bretlandi sem ber heitið
Death (Dauði), en ffá því var sagt í PRESSUNNI fyrir
nokkru. Það er aðallega nafh fýrirtækisins sem vakið hef-
ur athygli og virtist ætía að afla vörunni sjálffi töluverðra
vinsælda. Þvert á móti hefúr nafnið hins vegar reynst
ffamleiðendum erfiður ljár í þúfu, ekki af því að það selji
illa heldur einfaldlega vegna þess að til var vörutegund
með nánast sama heiti, nefnilega Black Death- (Svarti
dauði) sígarettur, sem íslendingurinn Valgeir Sigurðs-
son ffamleiðir. Og þá er ekki nema hálf sagan sögð því
tóbaksframleiðendurnir voru einnig svo óheppnir að
nota nánast sama vörumerki og Valgeir; ljósa hauskúpu
á svörtum grunni.
Þegar Valgeiri varð ljóst hve vörumerkin voru lík
höfðaði hann þegar mál á hendur tóbaksframleiðendun-
um fýrir bandarískum dómstólum og krafðist þess að
þeir breyttu bæði nafninu á vöru sinni og vörumerki
sínu. Valgeir lagði ffam augljós rök fýrir því, máli sínu til
stuðnings, að tóbak sem selt væri undir nafninu Death
gæti skaðað bæði ímynd ffamleiðslu sinnar og fýrirtækis
síns stórlega. Tóbaksframleiðendurnir neituðu skiljan-
lega öllum sakargiftum og vildu halda áfram að selja
vörur sínar með óbreyttum hætti. Málið kom fyrir dóm-
stóla í Kaliforníu í desember á síðasta ári en var ekki tek-
ið til formlegrar meðferðar fýrr en í júní síðastliðnum.
Skemmst er ffá því að segja að dómur, sem kveðinn
var upp 30. júlí, var Valgeiri í vil og flest
þau ákæruatriði sem hann setti ffam voru
samþykkt. Tóbaksframleiðendunum var
gert að breyta nafni fyrirtækis síns, þeir
mega í ffamtíðinni ekki nota óbreytt vöru-
merki né nokkuð í líkingu við það, mark-
aðssetning má í engu vísa til viðkomandi
vörumerkis og aukinheldur er lagt bann
við því að það keppi á nokkurn hátt við
fýrirtæki Valgeirs með svipuðum hætti og
hingað til eða reyni að skaða ímynd þess á
nokkurn hátt. Loks er þeim gert að inn-
kalla til förgunar allar vörur sínar sem
merktar eru nafninu Death og mynd-
skreyttar hauskúpu, og innan þrjátíu daga
frá dómsuppkvaðningu á orðið Death (-
Dauði) að vera afmáð með öllu úr nafhi,
bæklingum og vörumerkingum fyrirtækis-
ins. Dómsniðurstaðan er alvarlegt áfall fýr-
ir tóbaksframleiðendurna en ímynd fýrir-
tækisins og markaðssetning þess hafa að
öllu leyti byggst á umræddu vörumerki.
Gera má ráð fýrir að fýrirtækið verði fýrir
miklu fjárhagstjóni vegna þessara ófyrir-
séðu mistaka sinna.
N0TA
SEM
fyrtr bandarískan og evrópsk-an markaö.
Valgelr Slgurössyni tókst aö vernda vörumerkiö fyrir samkeppni frá eftlrlíkingu.
DEATH
BANNAÐ AÐ
VÖRUMERKI
Telma L. Tómasson