Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 20
20
PRESSAN
L I S T A G I L I Ð
Fimmtudagurinn 2. september
MYNDLIST
• Kaisu Koivisto,
myndlistarkonan
finnska, opnar sýningu í
Galleríi 1 1 á laugar-
dag.
• Ragnhildur Stefáns-
dóttir hefur opnað sýn-
ingu í Nýlistasafninu.
Verkin eru unnin úr leir,
gúmmíi, vaxi, silikoni og
gifsi. Opið daglega kl.
14-18.
• Situation ’93
Reykjavík-Köln nefnist
sýning þeirra Stein-
gríms Eyfjörð Krist-
mundssonar, Paschut-
an Buzari og Haraldar
Jónssonar í Nýlista-
safninu.
• Þórir Barðdal sýnir
höggmyndir úr marm-
ara í miðrými Listhúss-
ins í Laugardal.
• Skarphéðinn Har-
aldsson & Garðar Jök-
ulsson opna haustsýn-
ingu í aðalsýningarsal
Listhússins í Laugardal.
• Piers Browne, list-
málarinn breski, sýnir
verk sín í Ásmundarsal,
bæði ætimyndir og
vatnslitamyndir málaðar
á íslandi.
• Arngunnur Ýr sýnir
olíumálverk á Hulduhól-
um, Mosfellsbæ. Opið
daglega kl. 14-18.
• Kristbergur Ó. Pét-
ursson hefur opnað
málverkasýningu í
Hafnarborg.
• Louisa Matthías-
dóttir, yfirlitssýning á
verkum hennar á Kjar-
valsstöðum. Opið dag-
lega kl. 10-18.
• Þorsteinn frá Hamri
sýnir Ijóð á Kjarvals-
stöðum. Opið daglega
kl. 10-18.
• Daníel Þorkell
Magnússon heldur
sýningu á Kjarvalsstöð-
um. Opið daglega kl.
10-18.
• Janet Passehl sýnir
verk sín í Ganginum.
• Pétur Gautur Svav-
arsson sýnir olíumál-
verk í Portinu. Opið alla
daga nema þriðjudaga
kl. 14-18.
• Þorfinnur Sigur-
geirsson sýnir málverk
og teikningar í Lista-
safni ASÍ. Opið alla
daga nema miðviku-
daga kl. 14-19.
• Inga S. Ragnars-
dóttir heldur sýningu á
skúlptúrum unnum úr
stúkkmarmara, blikki og
stáli í Galleríi 1 1.
• Ásmundur Sveins-
son. Yfirlitssýning í Ás-
mundarsafni við Sigtún
í,tilefni aldarminningar
Ásmundar. Verkin
spanna allan feril hans,
þau elstu frá 1913 og
það yngsta frá 1975.
Opið alla daga frá
10-16.
• Jóhannes Kjarval.
Sumarsýning á verkum
Jóhannesar Kjarvals á
Kjarvalsstöðum, þar
sem megináhersla er
lögð á teikningar og
manneskjuna í list
hans.
• Ásgrímur Jónsson.
Skólasýning stendur yfir
í Ásgrímssafni þar sem
sýndar eru myndir eftir
Ásgrím Jónsson úr ís-
lenskum þjóðsögum.
Opið um helgar kl.
13.30-16.
Sýningar
• Nútíð við fortíð
nefnist viðamikil sýning
í Þjóðminjasafninu í til-
efni 130 ára afmælis
safnsins. Opið alla
daga nema mánudaga
kl. 11-17.
MYNDLIST
Listasafnið á Akureyri
Loksins lét Akureyrarbær
verða af því að stíga skrefið til
fulls og koma sér upp sýning-
arsal og safni fyrir myndlist
sem sómir höfuðstað Norð-
urlands. Myndlistaskólinn á
Akureyri hefur verið starfandi
í tæp tuttugu ár, en myndlist-
in sjálf hefur átt í fá hús að
venda. Af nokkrum tilraun-
um til rekstrar sýningarsala
má nefna Rauða húsið, sem
stóð fyrir gróskumikilli starf-
semi frá febrúar 1981 til mars
1983, þegar húsið var flutt
burt til annarra nota.
Hjólin fóru að snúast fýrir
kosningar 1990 þegar mynd-
aðist samstaða um að stefna
að því að virkja ónotað hús-
næði KEA í þágu menningar-
lífsins. Menn höfðu augastað
á gömlu iðnaðarhúsnæði í
Grófargili, sem er í brekkunni
fyrir neðan Akureyrarkirkju
og ofan Hótel KEA.
Gilfélagið, sem er opinn fé-
lagsskapur listamanna og
áhugamanna um listir, gekk á
eftir málinu og fékk í fyrra til
ráðstöfunar húsnæði undir
fjölnotasal, sem gengur undir
nafninu Deiglan, gestavinnu-
stofu og félagsaðstöðu. Auk
þess leigir Gilfélagið út vinnu-
stofur og húsnæði.
En nú um helgina lukust
upp dyrnar á Listasafninu á
Akureyri. Að vísu hefúr safh-
ið aðeins til ráðstöfunar hluta
hússins, heildargólfflötur er
2.160 fm, en núverandi sýn-
ingaraðstaða fær 550 fm. Á
efstu hæðinni rekur KEA enn
bakarí, en til stendur að nota
þá sali í ffamtíðinni. Ef ffam
heldur sem horfir verður
Listasafnið á Akureyri eitt-
hvert vandaðasta sýningar-
húsnæði á landinu.
Þrír sýningarsalir hafa verið
teknir í notkun. f einum
þeirra stendur til að vera með
myndir úr safni Akureyrar-
bæjar, í miðsalnum verða
einkasýningar og boðsýning-
ar og þriðji salurinn er ætlað-
ur til tilraunakenndari mynd-
listar. Vel hefur verið vandað
til frágangs og hönnuður
hússins, Árni Árnason arki-
GUNNAR
ÁRNASON
tekt, hefur gert sér far um að
læra af mistökum annarra.
Gifspússaðir veggirnir eru al-
gjöríega lausir við raffnagns-
tengla, loftræstistokka og
annað sem getur truflað upp-
hengingu verka. Vel hefur
tekist til með lýsingu. Frá-
gangur er vandaður en yfir-
bragðið látlaust. Auk þess er
þarna hrár salur, svipaður
sölunum í Nýlistasafninu,
sem hefur verið látinn halda
sér í upprunalegu horfi. Þar
eru meira að segja enn gamlir
kæliklefar með þungum
hurðum og gægjugötum, sem
hlýtur að teljast óvenjulegasta
sýningaraðstaða á landinu, en
getur orðið einhverjum lista-
mönnum spennandi við-
fangsefni.
Húsnæðið hentar einna síst
til skúlptúrsýninga, því loff-
hæð er frekar lítil og súlur
geta orðið til trafala. En til
stendur að útbúa útisvæði
fyrir skúlptúr og þegar efri
hæðin er komin í gagnið
verður lofthæð ekkert vanda-
mál.
„Effram heldur sem horfir verður Listasafnið á Akureyri eitt-
hvert vandaðasta sýningarhúsnœði á landinu. “
óþolandi
aö það skuli ekki vera eitt
einasta bíóhús í borginni sem
sér sóma sinn í aö sýna aö
staðaldri evrópskar bíómynd-
ir. Hvemig er hægt aö búast
viö því aö allir bíóþyrstir fái
þörfinni svalaö með vondum,
amerískum ástarvellu- og
bang bangi-gervimyndum? Er
virkilega enginn bíókóngsinn
búinn aö uppgötva ágæti evr-
ópsku myndanna?
Stóra spurningarmerkið í
sambandi við Listasafnið á
Akureyri er rekstur hússins.
Engin fastmótuð plön liggja
fyrir, hvorki listræn né fjár-
hagsleg. Forstöðumaður
safúsins, Haraldur Ingi Har-
aldsson, gerir sér góðar vonir
um samstarf við opinber söfú
og sýningarsali í Reykjavík.
Listasafn Islands ætti náttúr-
lega að ganga á undan með
góðu fordæmi og eiga frum-
kvæði að því að vinna með
Listasafninu á Akureyri, því
Listasafn Islands er líka safn
Akureyringa og annarra
landsmanna og ætti að taka
því fegins hendi að nú býðst
aðstaða til að víkka út starf-
semi safnsins. En hvað sem
óvissu líður þá er góð
stemmning kringum safnið
og rík ástæða til bjartsýni og
eftirvæntingar.
Sýningin
Opnunarsýning hússins
hefur fallið nokkuð í skugg-
ann af opnuninni á húsinu
sjálfú. Hún er þrískipt og gef-
ur ágæta hugmynd um
möguleika hússins. I stærsta
salnum er úrval úr safni Ak-
ureyrarbæjar, bæði verk eftir
nokkra frumkvöðla íslenskrar
myndlistar á fyrri hluta aldar-
innar og einnig verk eftir
starfandi listamenn á Akur-
eyri.
I miðsalnum er vel heppn-
uð sýning á verkum fimm
ungra myndlistarmanna, sem
öll eiga það sammerkt að vera
að norðan og hafa stigið
fýrstu sporin í Myndlistaskóla
Ákureyrar. Þau sýna hvert
um sig eitt verk, sem þau
ánafúa safúinu, og hafa vand-
að til valsins.
Kristín Gunnlaugsdóttir
hefur verið við nám undan-
farin ár á Ítalíu og sótt fýrir-
myndir sínar í verk ítalskra
meistara ffá upphafi endur-
reisnartímabilsins. Málverk
henar, „Kveðja“, er írónísk
sjálfsmynd af listakonunni
sem María mey íklædd sæka-
delikk fatnaði. Myndin er
galsafengnari en þær sem hún
sýndi í Nýhöfú á sínum tíma
og stílbrögð persónulegri.
Listakonan er kannski að
bjóða nýja tíma velkomna í
listsköpun sinni.
Málverk Sigurðar Árna
Sigurðssonar, „Blá geymsla",
hefúr endaskipti á málaralist-
inni. I einlitum bláum himin-
geim svífa misstórar kúlur
eða stjömur. En kúlumar em
ekki málaðar, heldur em göt á
málverkinu þar sem ber,
ógrunnaður striginn blasir
við. Samt em það hringform-
in sem skapa dýpt myndar-
innar og gera bláa litinn óefú-
iskenndan og óendanlegan.
Striginn sem liggur undir ol-
íulitnum liggur ofan á blá-
manum.
Kristján Steingrímur
Jónsson, Kristinn Hrafnsson
og Þorvaldur Þorsteinsson
eru allir með verk sem eru
góð exemplar af vinnubrögð-
um þeirra og fagurfræði.
Fyrir innan em þeir Krist-
ján Guðmundsson og Finn-
bogi Pétursson með sín verk.
Verkin þrjú eftir Kristján bera
vott um nákvæma, skýra og
einfalda framsetningu á
margræðum hugmyndum,
sem hafa ávallt verið einkenni
á verkum hans og smám
saman áunnið þeim almenna
hyUi. Þar á meðal er verk ffá
1988, „Teikning 4“, sem sam-
anstendur af tveimur stómm
pappírsrúUum sem liggja ofan
á fjórum grafitblokkum, sem
mundu nægja í alla blýanta
íslenskra skólabama í nokkur
ár. Hér hefur eðlilegu sam-
bandi ritblýs og pappírs verið
snúið við, því pappírinn Ugg-
ur ofan á ritblýinu en ekki öf-
ugt.
Finnbogi hefur lagt kæli-
klefana undir hljóðverk, sem
er útfærsla á hugmyndum
sem hann hefur verið að
vinna að á undanförnum
missemm. I öðrum klefanum
skeUur langur álhólkur í vegg-
inn með reglulegu miUibUi og
gjallandi slætti. Við hólkinn
er festur hljóðnemi sem send-
ir hljóðmerki yfir í hinn klef-
ann þar sem hátalarar kasta
hljóðinu á miUi sín og mynda
hringsveiflu.
Með þessu áffamhaldi ætti
Listasafnið á Akureyri ekki að
vera í vandræðum með að
standast samanburð við sýn-
ingarsahna í Reykjavík.
Stjörnulið Akureyrar
Fimm ungir Norðlendingar lögöu leiö sína suður á
bóginn og hafa látiö til sín taka á myndlistarsviðinu
með góöum árangri. Nú sýna þau saman í fyrsta
sinn í gamla heimabænum í nýjum sýningarsal Lista-
safns Akureyrar.
KfilSTlNN HRAFNSSON Fæddtr 1960 á ÓiafsfirðL en stundaði nám í Mynd&staskólanjvn
á Akureyri, eins (% öl Iwi. Jámskúiptúrar hans aftýfpa það sem yiirborðið dyhr. Kristinn
býr í hkmi gömki vúnustofu flsgrins Jónssonar Sstmálara í VfBnáui í Gíjótaþorpinu.
KRISTJÁN STEINGRÍMUR JÓNSSON Fæddur 1957 og leikreyndasti meðlimur
liðsins. Kristján málar á málm ýmis myndbrot tækni og listar. Hann er núver-
andi formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og býr í Reykjavík
ilGURÐUR ARNI SlGURÐSSON
;æddur 1963 og hefur ekki undan að sýna víðsvegar í Frakklandi, en hann býr í
’arís. Málverk hans eru vitsmunaleg, en oft á tíðum skopleg, glíma við grund-
fallaratriði.
Kristín Gunnlaugsdóttir
Fædd 1963. Stundaði m.a. nám í gerð íkonamynda í klaustri í Róm. Sækir fyrír-
myndir að málverkum sínum einkum til helgimynda rtalska endurreisnartíma-
bilsins. Býr í Rórens.
Þorvaldur Þorsteinsson
Fæddur 1960 og vakti fyrst þjóðarathygli fyrír vasaleikhúsið á Rás 2. Þorvald-
ar kompónerar myndasöfn úr tilbúnum myndum, gömlum og nýjum. Býr í
Reykjavík.