Pressan - 02.09.1993, Page 21
PRESSAN
S J Ó B I S S “
Fimmtudagurinn 2. september 1993
Margskonar verk verða á
fjölum stóru leikhúsanna í
vetur þótt vissulega séu þau
misjafnlega athyglisverð.
Meðal þeirra sýninga Þjóðleik-
híissitis sem eru forvitnilegast-
ar má nefna ALLIR SYNIR
MÍNIR, eitt frægasta verk Art-
hurs Miller, í leikstjórn Þórs
H. Tulinius. Eins og margir
muna sló Þór rækilega í gegn
á síðasta leikári með frum-
raun sinni á stóra sviði Borg-
arleikhússins, Tartuffe, og
verður því býsna fróðlegt að
sjá hvernig honum tekst upp
nú. Með stærstu hlutverk fara
Róbert Arnfinnsson, Krist-
björg Kjeld, Hjálmar Hjálm-
arsson „sjötti leikarinn“ sem
ráðinn var til Þjóðleikhússins í
haust, Erla Ruth Harðardótt-
ir og Magnús Ragnarsson,
sem nýfluttur er heim ffá New
York eftir áralanga dvöl og
ýmsir leikhúsáhugamenn hafa
beðið með nokkurri eftir-
væntingu.
ÞÓR H. TULINIUS. Sló í gegn í Borgarleikhúsinu í fyrra en er nú farínn til Þjóð-
leikhússins og leikstýrír verkinu Allir synir mínir eftir Arthur Miller.
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTflR. Tekur þátt í uppfærslu Borgarieikhússins á verðlaunaverkinu Englar í Ameríku.
Barnaleikritið SKILA-
BOÐASKJÓÐAN eftir Þor-
vald Þorsteinsson verður
frumsýnt á Stóra sviðinu í
nóvember. Leikstjóri er Kol-
brún Halldórsdóttir en með-
al leikenda eru ungliðarnir
Margrét K. Pétursdóttir, Fel-
ix Bergsson, Hinrik Ólafsson
nýútskrifaður úr Leiklistar-
skólanum og Jóhanna Jónas
sem fær nú loks að spreyta sig.
Gamanleikurinn MÁVUR-
INN eftir Anton Tjekov verð-
ur ffumsýndur á Stóra sviðinu
á annan dag jóla. Leikstjóri er
Rimas Tuminas en með
helstu hlutverk fara Jóhann
Sigurðarson, Anna Kristín
Arngrímsdóttir og Baltasar
Kormákur.
Sýningar á BLÓÐBRULL-
AUPINU effir Federico Garc-
ía Lorca hefjast á Smíðaverk-
stæðinu í janúar. Leikstjóri er
Þórunn Sigurðardóttir en
meðal leikenda eru mæðgurn-
ar Bríet Héðinsdóttir og
Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir. í febrúarbyrjun hefjast
sýningar á GAURAGANGI
eftir Ólaf Hauk Símonarson,
en hann átti sem kunnugt er
heiðurinn af kassastykki Þjóð-
leikhússins í fyrra, Hafinu.
Leikstjóri er Þórhallur Sig-
urðsson en meðal helstu leik-
enda eru Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Tinna Gunnlaugs-
dóttir og Elva Ósk Ólafsdótt-
ir. I mars verður ffumsýnd á
Smíðaverkstæðinu leikgerð
Viðars Eggertssonar, SANN-
AR SÖGUR AF SÁLARLlFI
SYSTRA, á fjórum af skáld--
sögum Guðbergs Bergssonar.
Leikstjóri er Viðar Eggertsson
sem tekur sér ffí ffá leikhús-
stjórastarfinu norðan heiða.
Meðal leikenda eru Þóra Frið-
riksdóttir og Kristbjörg
Kjeld.
Síðast en ekki síst ber að
nefna GAUKSHREIÐRIÐ
eftdr Dale Wasserman byggt á
skáldsögu Kens Kesey sem
ffumsýnt verður á Stóra svið-
inu í mars. Leikstjóri er Há-
var Sigurjónsson sem hefur
störf hjá Þjóðleikhúsinu nú í
haust en með aðalhlutverk
fara m.a. Pálmi Gestsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir
og öm Árnason.
Borgarleikhúsið frumsýnir í
október verðlaunaverkið
ENGLAR I AMERÍKU eftir
Tony Kushner. Leikstjóri er
Hlín Agnarsdóttir en meðal
helstu leikenda eru Ami Pét-
ur Guðjónsson, Steinunn
Ólafsdóttir, Elva Ósk Ólafs-
dóttir og Ellert A. Ingimund-
arson. Leikritið EVA LUNA
byggt á metsölubók Isabel Al-
lende verður sett upp milli
jóla og nýárs í leikstjórn
Kjartans Ragnarssonar.
Söngvar eru eftir Kjartan,
Óskar Jónasson og Egil Ólafs-
son. I aðalhlutverkum eru
Árni Tryggvason og Bessi
Bjamason.
Af öðrum verkum Borgar-
leikhússins tná nefna ELINU
HELENU efíir Árna Ibsen í
leikstjórn Ingunnar Ásdísar-
dóttur. Með hlutverk fara Sig-
rún Edda Björnsdóttir,
Margrét Helga Jóhannsdótt-
ir, Hanna María Karlsdóttir
og Þorsteinn Gunnarsson.
Loks ber að minnast á barna-
leikritið HÆTTUFÖR eftir
Tove Janson sem sett verður
upp á litla sviðinu effir áramót
í leikstjórn Páls Baldvins
Baldvinssonar og RONJU
RÆNINGJADÓTTUR sem
sló rækilega í gegn í fýrra og er
vis með að gera slíkt hið sama
þegar hún kemur aftur á fjal-
irnar í október.
MAGNIÍS RAGNARSSON. Er nú fluttur heim eftir áralanga dvöl í New York og
bíða ýmsir spenntir eftir að sjá til hans í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Hanastélsdrykkurinn Blóðuga María er ekki heilagur í
pðli sínu þrátt fyrir að nafnið kunni að benda til annars.
Olíkt þurrum Martini eða Manhattan-kokkteilnum þorir
fólk ao vera með ýmsar tilfærslur við uppskriftina. Hin
blóðuga María er óneitanlega góð við bynnku og finnst
mörgum sem hann hafi nimm hönaum tekið þegar
hann dreypir á drykknum í því ástandi. Hin hefð-
bundna uppskrift er eftirfaranai: Um 75 ml af vodka
er dengt í glas og þriðjunai meira af tómatsafa, slettu
af sítrónusafa og um það bil tveimur dágóðum slettum
af Worchestersnire-sosu. Þetta er svo drukkið á hraða
hvers og eins og viti menn: Heilsan verður góð.
Þó má búast við að liðanin verði enn betri láti
maður Blóðugt skot inn fyrir sinar varir í þessu
sama ástanai. I einum teyg. Bloody Mary Hot
Shot. Segja má pð drykkurinn sá sé betur við
hæfi nutíma-lslenainga, að minnsta kosti
þeirra sem hafa vanist krydduð-
um mat. Blóðskotið inmheldur
siatta af vodka, kreistu af
sítrónu- eða lime-safa, tvær
slettur af Tabasco-sósu og
þrjár af Worchestershire-
sósu, salt, slettu af tómatsafa
og rausnarlecjt af nýmuldum
pipar. Burtseð frá pvi að ná
artur innra jafnvægi vaknar
maður aftur til lífsins — svo
um munar.
BLÓÐUG MARÍA með sítrónu og fullt af pipar
er ómótstæðileg daginn eftir.
ÆSKDMYNDIN
„Maöur getur ekki alltaf veriö aö hugsa um aö græöa,“
sagöi Jón Ólafsson, forstjóri Hljómplötuútgéfunnar, ériö 1979.
Þá var Brunaliöiö upp á sitt besta. En svo dó þaö og Jón hætti
fljótlega aö hugsa svona. Þá birtust gleraugun og svo hurfu
skeggið og síöa háriö. Og nú er Steinar Berg horfinn líka.