Pressan - 02.09.1993, Síða 22
GALDRABÆKUR OG GEIMVERUR
22 PRBSSAN
Fimmtudagurinn 2. september 1993
Þaö hlaut að koma aö því. Loksins er fólk búiö að
taka eftir því aö lífið snýst um kringlótta hluti. Þeir eru
undirstaöan í lífi fólks. Til dæmis er það bolti, hvort
sem þaö er handbolti, golfkúla eöa fótbolti. Aö vísu hef-
ur áhugi minn á fótboita dalað ansi mikið eftir hina slæ-
legu frammistööu KR í sumar. Það er ekki lengur tii
þessi sami drifkraftur í mér að fara á völlinn einungis til
þess að veröa fyrir miklum vonbrigðum. Nei, ég er ekki
tapsár en ég man það úr æsku að ég þótti liötækur í
grófum tæklingum.
Ætla mætti að íslenska þjóðin hefði verið svelt svo
áratugum skiptir. Og það hefði ekki verið til matur hér
á landi. Að minnsta kosti ofbýður mér þessi nýja della
með kringiótta matinn sem kemur akandi heim til þín.
Pizzustríð virðist vera í algleymingi. Allir keppast viö að
bjóða pizzur innan þrjátíu mínútna. Annars er hún frí.
Hvað liggur fólki svona á að éta þennan mat? Það fitn-
ar bara við þetta, enda eru allir að bjóða uppá sérstök
hraðbrennslu-fitunámskeið. Til þess eins að éta þessar
pizzur hraðar og með meiri afköstum. Vita menn ekki
að það er óhollt að borða matinn sinn hratt?
Og fyrir utan það er það sannað í henni Norður-Amer-
íku að það eru hraöpizzusendlar sem eru valdir að flest-
um umferðarslysum, þeim liggur svo mikið lífið á til
þess að fólk geti stöffað sig á þessum kringlótta mat.
Ætli geimverum fýndist ekki skrítið að sjá alia þessa
sendla vera að flýta sér með þessa kringlóttu furðu-
diska? Sem rninnir mig náttúrulega líka á annað sem
er kringlótt.
Fljúgandi furðuhlutir, þeir eru kringlóttir. Einsog
pizza. Og núna á ein risapizza að lenda á íslandi í nóv-
ember ef mig minnir rétt. Áhugafólk um pizzulíf á öðrum
hnöttum var með ráöstefnu núna um daginn. Mitt and-
lega ástand leyfði ekki að ég færi, ég hafði nefnilega þá
um morguninn vaknað sannfærður um að ég hefði verið
brottnuminn af verum frá öðrum pizzugeimi. Ég get
ekki fariö nánar útí þessa sannfæringu mína, fólk
myndi álíta mig klikkaðan. En alltént þá man ég að
þessar geimverur höfðu engin skilaboð til okkar jarð-
linga.
Þaö er víst mjög óvenjulegt að þeir hafi engin skila-
boð til okkar því venjulega vilja þessar pizzuverur okkur
allt gott og eru hingað komnar til að segja okkur að
vera góð hvert við annað og litlu jörðina okkar.
Sumsé mitt andlega ástand var ekki gott, en ég
sendi útaf örkinni gamalreyndan skáta í andlegum mál-
efnum svo hann gæti frætt mig um tilvist pizzubúa í
öðrum sólkerfum. Hann kom til baka eyðilagður maður,
ja kannski ekki aiveg eyðilagður. Hann er vel sjóaður,
kallar ekki allt ömmu sína og kann tvöfalt pelastikk.
„Hvernig var?“ spurði ég, vissulega spenntur aö heyra.
„Ég hef aldrei heyrt annan eins þvætting."
Nú?
„Þetta var bara hrein nýaldar-æla. Fólk sveif bara
þarna um í stjörnuþoku og vitnaði á fullu af einhverjum
trúarsannfæringarkrafti. Talaöi í hálfum hljóðum um
hvað þessar geimverur væru góðar og vildu vel.“
Ég var niöurbrotinn maður. Hvernig gat ég núna sagt
þessum vini mínum frá minni reynslu? Hann myndi ör-
ugglega bara hlæja að mér færi ég að segja honum frá
lífsreynslu minni og þessum röddum sem eru ailtaf að
t hvísla aö mér einhverjum leynilegum skilaboðum. Það
er ekkert grín að heyra alltaf þessar raddir. Hausinn á
mér hljómar stundum einsog skiptiborð hjá núll-þremur.
Eöa bara einsog Skyggnir sjálfur. Ég gerði mér grein fyr-
ir að ég þyrfti einn að glíma við þessar raddir og reyna
að ráða fram úr þessu sjálfur.
Þaö var eitt sem ég man eftir frá þessum morgni, og
gæti hjálpað mér af stað:
„Sextántomma með fullt af pepperóní."
Hvað þetta þýðir veit ég ekki, en er þó byrjun.
Einar Ben.
Robert Altman kveður
sér hlfoðs a ný
Bandaríski leikstjórinn
Robert Altman hefur á
ferli sínum ýmist veriö
dáöur eöa hlotið snuprur
fyrir verk sín. Eftir margra
ára djúpa niðursveiflu
kom kvikmyndin The Ptay-
er honum á kortið á ný og
nú virðist sem hann fái
nóg fé til framleiðslu kvik-
mynda sinna, um tíma að
minnsta kosti. Hann hefur
því ekki setið auðum
höndum síðustu mánuði
og mun afrakstur vinnu
hans birtast á hvíta tjald-
inu vestanhafs í október-
mánuði. Short Cuts heitir
þetta nýjasta verk Alt-
mans og er um að ræða
allóvenjulega mynd-
byggða á níu smásögum
eftir bandaríska rithöfund-
inn Raymond Carver, sem
var talinn sérfræðingur í
að fanga litlu neyðarlegu
og óþægilegu augnablikin
sem hent geta fólk í lífinu.
22 leikarar koma fram í
myndinni og eru allir í að-
alhlutverki, eða öllu held-
ur í aukahlutverki. Hver og
einn á sér sögu sem
áhorfandinn fær að fylgj-
^ast með; fréttamaður (-
Bruce Davison) og kona
hans (Andie MacDowell
missa son sinn í hræði-
legu bílslysi, þrír veiðifé-
lagar (Buck Henry, Huey
Lewis og Fred Ward) finna
lík af stúlku, ungt par (Liiy
Tomlin og Tom Waits) inn-
siglar hjónabandseiðinn
meðan jarðskjálfti skekur
kampavínið í glösum
þeirra og fleiri sögur eru
sagðar. Altman fylgir frá-
sögn Carvers ekki út í
ystu æsar og breytir henni
þar sem honum finnst við
eiga. Ekkja Carvers,
skáldkonan Tess Gallag-
her, segir það á engan
hátt koma að sök
þar sem elsku
legur eiginmað-
ur hennar hafi
einnig haft
vanda til að
breyta skáld-
skap sínum í
tíma og
ótíma. Það
truflar hana því
ekki hið minnsta
að Altman skuli
hrófla við skáldskap hins
látna með þessum hætti.
Komu myndarinnar er
beðið með nokkurri eftir-
væntingu og eru gagnrýn-
endur þegar búnir að
setja sig í stellingar.
I
I
Guömundur Ólafsson,
I hagfræðingur og
I kvikmyndagagnrýnandi
PRESSUNNAR, sér
skrattann í hverju
horni í landbún-
aðarkerfinu og
Gunnar Þor-
steinsson
forstöðumaður
Krossins hefur
séð merki hins
vonda víðar en í
kringum kýr og
sauði. Enda eru
þeir eins, prédikar-
ar báðir tveir, svona
| temmilega bústnir og
| eins glerjaðir. Skeggið
I gerir þá afalega langt
I fyrir aldur fram, en gefur
þeim um leið þennan
| trausta fræðimannssvip,
' svo það liggur við að við
I trúum kenningum þeirra
I mótbárulaust.
I
I
BQKMENNTIR
Skáldkona sér með hjartanu
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR
GALDRABÓK ELLU STÍNU
★★★
I Galdrabók Ellu Stínu er
að finna fimmtíu og tvær sög-
ur, örstuttar, og við nefnum
þær vitaskuld örsögur. Höf-
undurinn Elísabet Jökulsdótt-
ir, sem er tilfinningarík skáld-
kona, vill nefna þær hjarta-
sögur. í flestum sögunum
spennir hún tilfinningabog-
ann af öryggi og miðar í
hjartastað lesenda. Reyndar á
ég ekki von á því að hún
rnuni hitta þá alla í hjartað.
Síður en svo. Þetta er afar sér-
kennileg bók og sumum kann
að virðast hún beinlínis sér-
viskuleg. En nú vil ég bregða
mér í hlutverk bókmennta-
legrar umferðarlögreglu og
segi: Þetta er ekki bók sem
blaða á kæruleysislega í. Þótt
sögurnar séu stuttar er ekki
þar með sagt að lesturinn eigi
að vera á þotuhraða. Þetta eru
sögur sem vinna á við hvern
lestur. Lesið þær oft og lesið
þær vandlega. Þær eru þess
virði því þær endurspegla at-
hyglisverða hugmyndafræði,
eru ríkar af réttlætiskennd og
húmorinn er heimspekilega
kaldranalegur.
Á titilblaði vitnar Elísabet
til orða refsins í einni uppá-
haldsbók okkar allra, Litla
prinsinum: „Maður sér ekki
vel nema með hjartanu. Það
mikilvægasta er ósýnilegt
augunum."
Þetta er stef sem gengur
eins og rauður þráður í gegn-
um alla bókina og að mati El-
ísabetar eru það börnin sem
sjá og skynja með hjartanu.
Mann grunar að hún tali um
eigin þörf og þrá þegar hún
segir:
„Hana dreymdi um að
skapa heim í leikhúsi og skíra
verkið Börn eiga heim því
börn voru alltaf að segja
henni afhverju himinninn
væri blár, hvað væri straumur
og draumur, eitthvað um raf-
magn og ávexti og biðja hana
um að muna galdrana.“
í Galdrabók Ellu Stínu eru
það börnin sem leita skjóls í
töffaheimi, það er eini heim-
urinn sem þau eiga. Þau eru
einmana og utanveltu enda
foreldrar þeirra týndir, dánir
eða lifa fullkomlega sinnu-
lausir um umhverfi sitt. Fyrir
sumum börnum fer eins og
stúlkunni sem átti foreldra
sem týndust í stríðinu, þau
hætta að tala og láta sig
dreyma. Önnur eru lokuð
inni eða deyja líkt og barnið
sem vaknar í hrúgu af dánum
börnum og heyrir rödd (ein-
hvers fullorðins vitanlega)
segja: „Fátt er eins heillandi
og dáin börn.“
Það er kaldranalegur húm-
or í sumum sögunum. I
Geimverurnar og barnið
ræna geimverur barni sem
foreldrar höfðu aldrei sinnt.
Þegar barninu er skilað ein-
hverjum ljósárum seinna
kannast foreldrarnir ekki við
barnið en komast að þeirri
niðurstöðu að sennilega sé
þetta „eitt af helvítis barna-
börnunum". Þarna er einnig
saga um viðkvæmu konuna
sem hafði lifað svo óhugnan-
legu lífi að það eina sem
gladdi hana var að horfa á
óhugnanlegar fféttamyndir af
morðum og misþyrmingum.
Ég fæ mig ekki til að neffia
sögur sem mér þykja öðrum
betri eða slakari í þessari bók.
Það stafar einfaldlega af því
að þær sögur sem mér þótti
heldur lítið til koma í upphafi
sá ég í allt öðru ljósi við ræki-
legri lestur. Og það á í raun-
inni við verkið í heild. Það
vakti enga sérlega hrifningu í
byrjun, en effir nokkra lestra
fór hrifningin að grassera og
hún grasserar enn.
„... hún skildi að guð hafði
skapað heiminn úr tilfinning-
um og að tilfinningar eru
eldsneyti fyrir hugmyndir,“
segir Elísabet Jökulsdóttir í
sögunni Stelpa með tilfinn-
ingar. I sömu sögu segir einn-
ig að til að veita tilfinningum
farveg þurfi stjórn, auðmýkt
og öryggi. Elísabet hefur öðl-
ast þetta þrennt og því er hér
komin langbesta bók hennar
til þessa.
Kolbrún Bergþórsdóttir