Pressan - 02.09.1993, Síða 31
SKOLABLAÐ
Fimmtudagurínn 2. september 1993
PRESSAN 31
Ásgeir Eggertsson starfar sem dag-
skrárgerðarmaður á Rás eitt og nýtir
sumarið til leiðsögustarfa. Hann nam
við Leiðsöguskóla íslands veturinn
1991-1992.
Nám við skólann fer fram á einum
vetri. Þá er kennt tvö kvöld í viku fjóra
tíma í senn og svo nokkra laugardaga.
Ásgeir Eggertsson er leiösögumaöur
„Ég útskrifaðist úr skólanum vorið 1992 og fékk þá
réttindi til að starfa sem leiðsögumaður ferðafólks á ís-
landi. Námið skiptist í tvennt, fyrir áramót er kennsluefnið
almennur fróðleikur um íslenskt samfélag, hagkerfið,
stjórnmál, landbúnaö og sjávarútveg. Nemendur þurfa að
hafa góð tök á að minnsta kosti einu tungumáli utan ís-
lensku, og samhliða náminu þurfa þeir að tjá sig um
námsefnið á því tungumáli. Eftir áramót eru teknir fyrir
einstakir landshlutar og um leið æfa nemendur sig í því
að leiðsegia á því tungumáli sem þeir sérhæfa sig í.“
Ásgeir var í vinnu samhliða náminu, enda er það upp-
byggt þannig að auövelt sé fyrir vinnandi fólk að sækja
tíma. Hann sagði að nemendur þyrftu að leggja sig fram
við námið, skila heimaverkefnum og taka próf. Lokaprófið
er bæði skriflegt og munnlegt; það munnlega felst í leið-
sögn með ferðamönnum í rútu og þá eru prófdómaramir
bæði útlendingar og íslendingar. Aðspurður segir Ásgeir
þetta nám vera góðan grundvöll fyrir starf leiðsögumanns.
„Mér fannst námið mjög góður grundvöllur fyrir starfið.
Á einu bretti fær maður hagnýtan fróðleik sem nýtist vel í
starfinu. Ég nota frítíma minn á sumrin við leiðsögu-
mannsstarfið. Mér finnst hiklaust vera hægt að mæla
með þessu námi við þá sem vilja dýpka kunnáttu sína.
Auk þess veitir námið visst öryggi og vissu fyrir því að
maður sé að segja skammlaust frá landi og þjóð.“
Þess má geta að leiðsögumennska er ekki lögvernduð
starfsgrein, en í gildi er samningur milli ferðaskrifstofanna
og Félags leiðsögumanna um forgangsrétt félagsmanna
til leiðsögustarfa. Aö sögn Birnu Bjarnleifsdóttur, sem
hefur umsjón með Leiösögumannaskólanum, veröa
skólagjöld næsta vetur um hundrað og tuttugu þúsund
krónur og skólinn stendur yfir frá þvf í september og fram
í maí. Á milli fimmtfu og sextíu kennarar starfa við skól-
ann og eru þeir sérfræöingar hver á sínu sviði. Yngri nem-
endur en tuttugu og eins árs eru ekki teknir inn f skólann
og þeir þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilega
menntun að baki. Um þessar mundir eru liðlega þrjátfu ár
sfðan fyrsta kennsla leiðsögumanna hófst hér á landi og
þá á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins.
Við hvern geturðu talað
um málefnin sem
eru ekki á stundatöflunni?
Kynsjúkdómar
Getnaöarvarnir
Ofbeldi á heimili
Sjálfsmynd
Feimni
Reykingar
Skilnaður foreldra
Vanliðan
Samskipti við fullorðna
Nauðgun
Einmana
Tilfinningar
Ástin
Vandamál tengd skóla
Áfengi
Kynlif
Sektarkennd
Sjálfsvígshugleiðingar
Vinaleysi
Stríðni
Ofbeldi á skólalóðinni
Sifjaspell
Áfengisneysla foreldra
Likaminn
Fíkniefni
Strákavandamál
Hræðsla
Gleði
Útivistarreglur
Blæðingar
Þungun
Söknuður
Sorg
Fóstureyðing
Bólur
Stelpuvandamál
Einelti
Missætti við vini
Einbeitingarleysi
Kynferöisleg áreitni
Ef þú hefur áhyggjur af þessum
málum eöa öðrum getur þú hringt
eða komið og talað við okkur í
algerum trúnaði. Rauðakrosshúsið
er neyðarathvarf fyrir börn og
unglinga. Par er rekin síma-
þjónusta allan sólarhringínn þar
sem þú getur leitað ráða.
Þú þarft ekki að segja til nafns.
n
RAUÐAKROSSHÚSIÐ
Tjarnargötu 35, 101 Reykjavík
Grænt símanúmer
99 66 22
Opið allan sólarhringinn
^ Rauði kross íslands
w ýf missaóiM
0
Takmarkaður
fjöldi nemenda í
hverjum tíma
\ ____________
Bjóðum einkatíma eftir samkomulagi
Getum bætt viö okkur takmarkaðri kenhsTíl Lokaðir tímar fyrir félagasamtök og aðra hópa
úti á landi eftir samkomulagi Barnadansakennsla
Innritun frá kl. 13 - 20
aöZyíiÍÆvegf?!6‘ Kennsla hefst 15 september suburamerískfr
sími 625 22 85 Félagar í FÍD og DÍ Rabgreiðslur VISA og EURO____________Bugg/Swing
Hafnarfjörbur
ARGUS/Sl A