Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 34

Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 34
T I S K A 34 PRESSAN Fimmtudagurinn 2. september 1993 Þá er komiö aö því óumflýj- jnlega, haustið er nefnilega mmiö og ekki er hægt aö lifa í sjálfsblekkingu lengur um eilíft ;umar og sól. Skólafólk hættir sumarvinnunni og streymir nn í skólastofurnar, misglatt , 3ð vlsu yfir þvl aö sumariö sé ' Tenda, en samt sem áöur er ;kki laust við aö haustinu og jkólanum fylgi llka viss góð til- inning. Maöur hittir skólafé- agana aftur, suma hefur maö- jr ekki séö I allt sumar, og ílakkar til að hitta þá. Aðra angar mann ekkert aö hitta jg er nokk sama þó þeir flytt- jst til Þórshafnar á Langa- iesi. Sumarhýran hjá mörgum er iotuð I kaup á fatnaöi fyrir vet- jrinn og þótt ekki séu það allir sem fata sig upp algerlega þá jr að minnsta kosti nauösyn- egt aö kaupa sér eina til tvær ikemmtilegar vetrarfllkur. Viö ætjurn sumarfötin inn I skáp, stuttbuxurnar eru lagðar á hill- jna, en peysurnar og þykkari dæönaöur er dreginn fram. PRESSAN skeiöaði af staö I oeim tilgangi að leita aö lausttískunni fyrir skólafólk )g af samtölum viö nokkra /erslunareigendur I höfuöborg- nni má ráöa aö víöa er leitaö ánga I þeim efnum um þess- ar mundir. Eitt er vlst aö gallabuxurnar ;Ivinsælu virðast aldrei fara úr :Isku og nú sjást þær hvort veggja útvlöar og beinar niöur * einnig ber svolltiö á „fifti- 3S“ útliti en þá eru buxurnar laföar víöar og stuttar meö jppábroti. Víöu buxurnar eru tá bæöi á stelpur og stráka, itelpurnar hafa þær víðar í mittiö og draga buxurnar svo saman meö stóru belti. Svo er fariö aö sjást meira af fínriffluöum flauelsbuxum eins og voru vinsælar I lok átt- unda áratugarins. Þykkar ullar- eöa bómullarpeysur sjást mik- iö, oft meö rúllukraga, bæöi fyrir stelpur og stráka. Síðir langerma ullarkjólar sem má nota innan undir peysur og jakka veröa I vetur mikiö atriöi og grófir jakkar viö, bæöi leður og rúskinn. Aðalatriðið er þó aö hafa hverja flíkina utan yfir aöra og fá við þaö svolítið kæruleysislegt útlit, svona eins og þú hafir ekki pælt mik- iö I hverju þú klæddist I morg- un. Húfur halda áfram að veröa mikið atriöi, bæöi þessar sem eru eins og afklipptum sokk hafi verið brugöið á höfuö viö- komandi og svo líka litlu koll- húfurnar útsaumuöu sem hafa sést þó nokkuð slöustu miss- eri. Skólaskórnir koma til meö aö vera reimaðir uppháir leður- skór eöa stlgvél I grófari kant- inum meö smá-hæl fyrir kven- fólkiö. Að sögn eins búðareig- andans er málið núna aö vera létt-hallærislegur, svona eins og hálfgeröur nörd en hafa bara gaman af. Svolítiö skringileg framsetning, en að minnsta kosti eitthvað nýtt. Viö leituöum til fjögurra verslana: Sautján, Kjallarans, Spútnik og Levi's - búöarinnar og fengum starfsfólk til aö klæöa upp I hausttískuna hinn dæmigerða nemanda á menntaskólastigi. Afraksturinn sést hér. Steinunn Halldórsdóttir Þegar við he or rum ið skóli. • • iettur fólki í hug "lykt af nýjum bókum og bækur sem brakar í þegar þær eru jpnaðar, frímínútur, skólatöskur, pennaveski, nýjar óskrifað- ir stílabækur, ullarpeysur, gúmmístígvél og skór með þykkum •ólum, strokleður með jarðarberja- eða tyggjólykt sem mann angar til að bíta í, kennarar, mismunandi skemmtilegir, sum- r jafnvel andfúlir, þykkir jakkar, Spurningakeppni framhalds- ;kólanna, ný fög, próf, haustlauf, busavígslur, kuldi á morgn- ina, myrkur, rigning og rok, treflar, lýsispillur, skólabjallan, mristar, kjaftaskjóður, kennarasleikjur, franskir stílar, teikni- >ólur, kennaraprik, krít, klossar, brauðsneiðar með sveittum jsti, að sofa yfir sig og vera alveg sama, skróp... lódel voru Nína Björk Gunnarsdóttir og ingólfur Már Ingólfsson frá lcelandic Models. Ayndir/Jim Smart Verslunin Sautján. Dökkar gallabuxur og þykkar útprjónaðar bómullar- peysur í jaröarlitum er hvorttveggja sígildur skólaklæönaöur. Þykkar skyrtur eöa vesti utanyfir og svo þykkur jakki úr leöri eöa rúskinni. Grófir uppreimaöir skór. Verslunin Spútnik. Útvíðar gallabuxur og grófir skór. Stuttir jakkar og skyrta og þú ert til í hvaö sem er! Levi’s - búöin. Hvaö nema gallabuxur fyrir stúlkuna og leðurvesti en skólapilturinn er í skjólgóðum rúskinnsbuxum sem væntanlega ylja vel í vetur. Loöfóöraöur jakki og fráhneppt skyrta (nauðsyn- legt er að sjáist í naflann) Kjallarinn. Þar á bæ er því spáö aö útvíöu buxurnar haldi velli í vetur. Nú eru þær orðnar teinóttar líka. Ungi námsmaöurinn á myndinni íklæöist þykkri peysu og utanyfir er hinn týpíski stutt- frakki sem er aö sögn kominn til að vera. Húfan kórónar svo sköp- unarverkiö. Námsmeyjan er í síöum bómullarkjól og innanundir í þykkum bol. Húfa og grófir skór eru algjört „möst“.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.