Pressan - 02.09.1993, Qupperneq 37
SKOLABLAÐ
Fimmtudagurinn 2. september 1993
PRBSSAN 37
Skokknámskeið
Á námskeiðinu verður boðið upp á eftirfarandi:
1. Fyrirlestra
2. Æfingaáætlanir
3. Þrekmælingar
4. Stöðvaþjálfun
Upphitun fer fram í leikfimisal, hlaupið úti, teygjuæf-
ingar og þrekhringur í sal að lokum.
Kennari: Jakob Bragi Hannesson
INNRITUN fer fram 6. og 7. september í síma 12992
og 14106.
Kennsla hefst 8. september.
Aldrei of seint að láta drauminn rætast
FULLORÐINSFRÆÐSLA
PRÓFANÁM í MIÐBÆJARSKÓLA
Grunnskóli 7.-10. bekkur. Framhaldsskóli 2. vetra nám.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði og íslenskri stafsetningu.
INNRITUN fer fram í Miðbæjarskóla 1. og 2. septem-
ber kl. 17.00-19.30. Kennsla hefst 13. sept.
FRÍSTUNDANÁM í MIÐBÆJARSKÓLA
OG GERÐUBERGI
íslenska fyrir útlendinga. Fjölbreytt tungumálanám-
skeið. Handavinnu- og myndlistarnámskeið.
INNRITUN ferfram í Miðbæjarskóla 16. og 17. septem-
ber kl. 17.00-19.30. Kennsla hefst 27. september.
Nánari upplýsingar í símum 12992 og 14106 í Miðbæj-
arskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Losnaði við
flughræðsluna
Anna María Georgsdóttir sótti nám-
skeið til aö yfirvinna flughræðslu fyr-
ir þremur árum. Hún segir að það
hafi breytt lífi sínu og verið eitt af
því yndislegasta sem fyrir sig hafi
komið fyrir utan það að giftast og
eignast börn.
• vera sjálfstœtt ífjármálum
• létta sér skólastarfiö
• frœöast um fjármálaheiminn
• gera tilveruna skemmtilegri
Vaxtalínan er ætluð fólki á aldrinum
13-18 ára. Þessi þjónusta býður upp á
veglega skóladagbók, fjármálanámskeið,
bílprófsstyrki, hraðkort, afsláttarkort,
vaxtalínuvörur og ýmislegt fleira.
ANNA MARÍA GEORGSDÓTTIR Hætti að vera flughrædd eftir að hafa faríð á
námskeið hjá Flugleiðum.
„Maöurinn minn er í
þannig starfi aö hann flaug
til útlanda um þaö bil þrisv-
ar til fjórum sinnum á ári. Á
tuttugu og fimm ára tímabili
fór ég aðeins þrisvar meö
honum. Ég leið vítiskvalir í
margar vikur fyrir flugferöir,
boröaöi ekki, svitnaöi í lóf-
unum og í eitt skiptiö
grenntist ég um tíu kíló á
þremur vikum fyrir flug. Þeg-
ar ég svo fór í þessi þrjú
skipti haföi ég alltaf á til-
finningunni að flugvélin
myndi ofrísa í flugtaki og
hrapa. Ég fletti dagblööun-
um sem var dreift í vélinni
en las þau ekki og stund-
um sneri Mogginn á hvolf
hjá mér.“
Anna segir aö fólk veröi
að viðurkenna hræöslu
sína, það sé byrjunin. Hún
segist mest sjá eftir því aö
geta ekki spólað til baka
um mörg ár og fariö í allar
þær utanlandsferðir sem
henni buðust á því tímabili.
Hún hvetur fólk eindregið til
aö fara á námskeiö til aö
yfirvinna flughræöslu því
þaö hafi breytt lífi sínu.
„Ég þjáöist líka af innilok-
unarkennd, þoröi meöal
annars ekki I lyftu en ég fér
óhikaö í lyftu í dag. Áður en
ég fór I flug þurfti ég alltaf
aö fá mér þrjá til fjóra bjóra
og sat svo stíf allan tím-
ann og þoröi ekki aö
hreyfa mig því ég hélt aö
vélin færi aö halla út á
hlið og hrapa ef ég
hreyfði mig. Ég hvet fólk,
sem á við flughræðslu
aö stríða, eindregið til
aö fara á þessi nám-
skeið, því meðan þaö
gerir þaö ekki þá kemst
það aldrei neittí burtu.
Ég vil líka að þaö komi
fram hve leiöbeinend-
urnir á námskeiðinu
voru yndislegir og
hjálpuðu okkur mikiö,“
segir Anna María og
segist seint fá þeim
fullþakkaö.
Þess má geta fyrir
þá sem áhuga hafa aö
námskeiðið er tuttugu
stundir auk flugferöar
til einhvers áfanga-
staðar Flugleiöa utan-
lands. Einnig eru heim-
sóttir staöir sem tengj-
ast flugi, svo sem flug-
umsjón og flugumferö-
arstjórn. Leiðbeinend-
ur á námskeiöunum
eru Gunnar Guöjóns-
son flugstjóri og Eirík-
ur Örn Arnarson sál-
fræðingur en umsjón
meö þeim hefur Una
Eyþórsdóttir hjá Flug-
leiðum.
Fjármálaþjónusta
fyrir ungt fólk
sem vilL...
VAXTALINAN
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA
UNGLINGA