Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 42
SKÓLABLAÐ
42 PRBSSAN
Fimmtudagurinn 2. september 1993
Ferðamálaskóli íslands
Ferðamálaskóli íslands er
til húsa í Menntaskólanum í
Kópavogi og starfar í þremur
deildum: leiðsöguskóla, öld-
ungadeild og endurmennt-
unardeild. Menntaskólinn í
Kópavogi er skilgreindur af
menntamálaráðuneyti sem
móðurskóli í ferðafræðum
og hefur ferðamálaskólinn
starfað innan hans ffá árinu
1987. Skólinn er skipulagður
á þann hátt að nemendur
geta hvort heldur er stundað
samfellt eins árs nám við
skólann eða tekið sjálfstæð
námskeið þar sem farið er
yfir ákveðinn hluta námsefh-
isins. I vetur eru í boði 16
námskeið sem eru öll metin
til eininga á framhaldsskóla-
stigi ljúki nemendur nám-
skeiðum með prófi og nái
tilskilinni lágmarkseinkunn.
Markmið Ferðamálaskóla
íslands er að útskrifa ferða-
málaráðgjafa sem færir eru
um að stunda störf í flestum
greinum ferðaþjónustu á ís-
landi.
Að sögn Soffíu Waag
Ámadóttur forstöðumanns
Ferðamálaskólans lýkur
nemandi tuttugu og átta ein-
ingum að loknu vetrarlöngu
námi sem hægt er að láta
meta í ffamhaldsskólakerf-
inu vilji nemendur taka þetta
nám sem hluta af stúdents-
prófi.
„Skólinn er í samvinnu
við Johnson 8c Wales Uni-
versity á Rhode Island sem
er virtur ferðamálaskóli í
Bandaríkjunum. Nemendur
sem hafa lokið eins árs námi
í ferðamálafræðum hér
heima og haldið síðan áffam
í Johnson & Wales hafa
fengið metið sem svarar einu
og hálfú námsári. Auk þess
gefur skólinn nemendum
héðan kost á námsstyrkj--
um.“
Að sögn Soffíu stendur
Ferðamálaskóli íslands einn-
ig í viðræðum við fleiri er-
lenda skóla sem eru sérhæfð-
ir í ferða- og hótelmálum og
er vonast til að hægt verði að
ná samstarfi við þá. Við
Menntaskólann í Kópavogi á
einnig í nánustu ffamtíð að
rísa bygging Hótel -og veit-
ingaskóla Islands. Bygginga-
framkvæmdir eru hafhar og
er stefht að því að taka fyrstu
álmu í notkun árið 1996.
Reykjavfk, Seltjamames, Mosfellsbær,
Kópavogur, Garðabær, Haíharfiörður,
Bessastaðahreppur. Nr 060000 g
KYNNTU ÞÉR KOSTIGRÆNA KORTSINS
S0FFÍA WAAG ÁRNADÓTTIR forstöðumaður Ferðamálaskóla íslands.
Konensk
sjálfsvarnarlist
Taekwondo er kórensk
sjálfsvarnaríþrótt sem barst til
landsins fyrir þremur árum og
hefur verið í talsverðum vexti síð-
an. í grófri snörun þýðir „tae“ fót-
ur, „kwon“ hnefi og „do“ lífsstíll.
íþróttinni svipar að ýmsu til betur
þekktrar íþróttar, karate, en er
þó frábrugðin að því leyti að
mest áhersla er lögð á bardaga-
tækni með fótunum. Að sögn
þeirra sem til þekkja var þessi
aðferð notuð á Kóreuskaganum í
styrjöldum og einvígjum fyrir um
það bil tvö þúsund árum. A síðari
tímum hefur Taekwondo hinsveg-
arJjróast sem sjálfsvarnartækni.
Iþróttafélag Reykjavíkur er eitt
fjögurra félaga sem bjóða upp á
kennslu í Taekwondo hér á landi.
Engrar undirstöðuþekkingar er
krafist til að geta æft þessa
sjálfsvarnarlist og miðast þjálfun-
in við hæfni hvers og eins, og
gildir það jafnt um börn og full-
orðna. Eftir því sem þjálfuninni
miðar áfram fá nemendur tíu mis-
munandi belti uns svarta beltinu
er náð. Þess má geta að nú
stunda um það bii fimm milljónir
manna í heiminum þessa íþrótt.
í vetur verður kennt í nýju hús-
næði í suður-Mjódd í Breiöholti.
Kennari verður Daninn Mikael
Jörgensen.
Keppendur íTaekwondo. Það lítur útfyrir að árásarmaðurinn sparki í þann sem stendur upp-
réttur, en svo er ekki. Hann er í raun að sparka glóð úr sígarettu sem maðurinn er með. List-
in.er að koma eins nærri og hægt er.