Pressan - 02.09.1993, Side 43
Fimmtudagurinn 2. september 1993
PRESSAN 43
Kristín Bjarnadóttir fór á byrjendanámskeið í japönsku síðasta vetur hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Hún á japönsk
barnabörn og langar að geta talað við þau á móðurmáli þeirra.
„Það voru mjög persónulegar ástæður
íyrir því að ég sótti þetta námskeið, því
sonur minn er kvæntur japanskri
konu og barnabörnin mín tala jap-
önsku. Eg fór fyrst til Japan árið 1972
og var þá eitthvað að reyna að kynna
mér tungumálið en svo varð ekkert
meira úr því. í apríl síðastliðnum fór
ég svo aftur þangað og hugsaði mér
námskeiðið sem einhvers konar inn-
sýn í tungumálið. Málið kunni ég
semsagt ekki, en þekkti töluvert til siða
og hefða Japana.
Fannst þér námið nýtast þér þegar þú
varst komin til Japan?
„Já, það gerði það að því leyti að mér
fannst ég hafa meiri tilfinningu fyrir
uppbyggingu málsins, en ég gat lítið
talað, enda hafði ég bara verið á þessu
eina námskeiði sem var einu sinni í
viku í þijá kennslutíma.“
Kristín telur sig hafa verið of upptekna
í sinni eigin vinnu, til að geta lagt sig
fram eins og hana langaði við námið,
en hún er stærðfræðikennari og
áfangastjóri við Fjölbrautarskólann í
Garðabæ.
„Af því að ég er nú sjálf kennari, þá
veit ég að það hefði verið árangursrík-
ara að kenna tungumálið oftar í viku,
þetta verður of stór skammtur fyrir
mann. Annars dáðist ég að því hve vel
kennarinn sem heitir Sari Ohyama
fléttaði saman ritmál, framburð og
málfræði. Ritmál þeirra Japana er að
hluta til kínverskt myndletur og inni-
heldur allt að fimm þúsund tákn sem
eru Vesturlandabúum ókunnug.“
KRISTÍN BJARNADÓTTIR Áfangastjóri í
Fjölbrautarskólanum í Garðabæ er að
læra japönsku.
DANS - frábær skemmtun fyrir alla!
BÖRN - UNGLINGAR - FULLORÐNIR
SYSTKINAAFSLATTUR
FJÖLSKYLDUAFSLÁTTUR
HÓPAFSLÁTTUR
Innritun í síma 71200 milli kl, 13-19
i S L A H D S
N - Á - M • A - N
í NÁMUIMNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands,
bíður þín m.a. eftirfarandi:
* Einkareikningur, tékkareikningur með dagvöxtum.
* Hagkvæmar sparnaðarleiðir með Reglubundnum
sparnaði.
* Námureikningslán á hagstæðum kjörum.
* Spariveltulán.
* Sveigjanlegar afborganir lána.
* 7 námsstyrkir árlega.
* Námslokalán.
* Ráðgjöf og upplýsingaþjónusta.
* Þjónustufulltrúi sem aðstoðar við gerð fjárhagsáætlana.
* Greiðslukort, Euro eða VISA.
* Minnisbók, án endurgjalds, við upphaf viðskipta.
* Hressilegar tómstundir.
* Ýmis fyrirgreiðsla við námsmenn erlendis.
Námsmenn sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og
um leið eitthvað skynsamlegt, fara í NÁMUNA.
Hún er sniðin að þörfum skólafólks.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Þú finnur yfir 60 "
á 43 stöðum hringinn í I
Landsbanka íslands
landið.
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN