Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 1
„BRÚÐKAUP aldarinnar“ í Dan-
mörku fór fram í Kaupmannahöfn í
gær en þá gengu í það heilaga þau
Mary Donaldson og Friðrik, rík-
isarfi Danmerkur. Hundruð þús-
unda manna söfnuðust saman í mið-
borg Kaupmannahafnar til að
fagna ráðahagnum en um átta
hundruð gestir voru viðstaddir
sjálfa hjónavígsluna.
Friðrik ríkisarfi er 35 ára gamall
en Mary er þremur árum yngri.
Þau kynntust í Sydney í Ástralíu
þegar Ólympíuleikarnir voru
haldnir þar fyrir fjórum árum en
Mary er einmitt áströlsk. Þau Mary
og Friðrik trúlofuðust 8. október í
fyrra og var Mary fljót að vinna
hugi og hjörtu Dana. Telja nú 80%
Dana að hún verði góð krónprins-
essa, ef marka má niðurstöður ný-
legrar skoðanakönnunar. / 18
Konunglegt
brúðkaup
Reuters
Mary Donaldson kyssir eiginmann sinn, Friðrik ríkisarfa, á svölum Amalienborg-hallar í gærdag. Sjálfri brúð-
kaupsveislunni lauk um miðnætti í gær með mikilli flugeldasýningu en um 400 manns var boðið til veislunnar.
STOFNAÐ 1913 132. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Birna bakar
nánast allt
Ekki erfitt en maður verður að
hafa gaman af því | Daglegt líf
Lesbók og Börn í dag
Lesbók | Ljóð Rabb Áfangar í Viðey Dagskrá
Listahátíðar Kenjar Goya Vísindi Næsta vika
Börn | Glíma Útilegumenn Þrautir Myndasögur
ÍBÚAR borgarinnar Najaf í Suður-
Írak sýna ónýt hernaðartól Banda-
ríkjamanna sem þeir komust yfir
eftir harða bardaga, sem stóðu milli
Bandaríkjahers og vopnaðra fylg-
ismanna sjítaklerksins Moqtada al-
Sadr í um sex klukkustundir í gær.
Tíu Írakar eru sagðir hafa fallið og
þá er hluti hvelfingar á þaki einnar
af helgustu moskum sjíta í Najaf
sagður hafa skemmst í átökunum.
Reuters
Barist við Najaf
EIGENDUR og stjórn breska dag-
blaðsins The Daily Mirror báðust í
gær afsökunar á birtingu mynda,
sem sagt var að
sýndu illa með-
ferð breskra
hermanna í
Írak á íröskum
föngum. Sögðu
þeir að nú væri
ljóst að mynd-
irnar hefðu
verið falsaðar.
Þeir ráku um
leið ritstjóra blaðsins, Piers Morg-
an, sögðu að „óviðeigandi“ væri að
hann gegndi starfinu áfram.
Fyrr um daginn höfðu yfirmenn í
breska hernum farið hörðum orð-
um um birtingu myndanna og sagst
hafa sannanir fyrir því að þær
hefðu verið settar á svið, teknar í
Bretlandi sjálfu en ekki í Írak, eins
og The Daily Mirror hafði haldið
fram þegar það birti myndirnar 1.
maí sl.
Útreiknaðar blekkingar
Piers Morgan hafði varið mynd-
birtinguna af hörku en á einni
þeirra sást m.a. hvar maður, sem
sagður var liðsmaður í breska
hernum, mígur á hettuklæddan
mann. „The Daily Mirror birti í
góðri trú myndir sem það taldi að
sýndu raunverulega hvar breskir
hermenn svívirtu íraskan fanga,“
sagði í yfirlýsingu stjórnar blaðsins
í gær. „Nú liggja hins vegar fyrir
nægar sannanir til að draga þá
ályktun að þessar myndir séu fals-
aðar og að Daily Mirror hafi verið
blekkt illilega og á úthugsaðan
hátt.“
Myndirn-
ar voru
sviðsettar
Ritstjóri Daily
Mirror rekinn
London. AP.
Látnir hanga/20
♦♦♦
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta Íslands, algjörlega van-
hæfan ef hann ætli að neita að staðfesta fjölmiðla-
frumvarpið. Forseti Íslands var í gær gagnrýndur
fyrir að vera ekki viðstaddur konunglega brúð-
kaupið í Danmörku en í yfirlýsingu forsetaskrif-
stofunnar segir að forseti geti ekki yfirgefið landið
vegna óvissu um afgreiðslu mikilvægra mála á Al-
þingi. Forsætisráðherra segir að gefa þurfi dönsku
ríkisstjórninni og konungsfjölskyldunni skýringar
á fjarveru forseta. Þung orð féllu á Alþingi í gær við
umræður um fjölmiðlafrumvarpið og sagði Stein-
grímur J. Sigfússon forsætisráðherra vera „gungu
og druslu“ fyrir að vera ekki viðstaddur um-
ræðuna.
„Það botnar enginn í þessu“
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali
við Ríkissjónvarpið í gærkvöldi, alveg ljóst að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, væri algjör-
lega vanhæfur ef hann ætlaði að neita að staðfesta
lög um eignarhald á fjölmiðlum. Vísaði forsætisráð-
herra m.a. til þess að forstjóri Norðurljósa væri
formaður stuðningsmannafélags Ólafs Ragnars og
fyrrverandi forstjóri Norðurljósa hafi verið einn
aðal fjárhagslegur stuðningsmaður hans.
Davíð segir einnig að fjarvera forseta frá kon-
unglega brúðkaupinu í Danmörku í gær sé óskilj-
anleg. „Við þurfum einhvern veginn, ríkisstjórnin,
að útskýra síðan fyrir dönsku ríkisstjórninni og
konungsfjölskyldunni hvað hafi gerst, en við vitum
ekki hvað við eigum að segja nákvæmlega. Það
botnar enginn í þessu,“ sagði Davíð.
Skrifstofa forseta Íslands sendi í gærmorgun frá
sér tilkynningu þar sem segir að vegna óvissu um
hvenær Alþingi lyki afgreiðslu mikilvægra mála
hafi forseti Íslands ekki yfirgefið landið í gærmorg-
un og því ekki verið viðstaddur brúðkaup Friðriks
krónprins og Mary Donaldson. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra segist ekki átta sig á af
hverju forsetinn sótti ekki brúðkaupið í Danmörku.
Halldór segist telja að það hefði verið mikilvægt að
forsetinn mætti og utanríkisráðuneytið hefði ekki
vitað betur en að hann ætlaði að mæta. Forsetinn
verði að skýra þetta mál sjálfur.
Kallaði forsætisráðherra „gungu og druslu“
Hart var deilt við umræður sem héldu áfram á
Alþingi um fjölmiðlafrumvarpið í gærdag. Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, gagnrýndi Davíð Oddsson
forsætisráðherra úr ræðustól fyrir að vera ekki við-
staddur umræðuna. Sagði Steingrímur Davíð vera
„gungu og druslu“ þar sem hann þyrði ekki inn í
þingsalinn til að eiga orðastað við sig.
Ósammála um hæfi og vanhæfi
Lögfræðingar sem rætt var við í gær eru ekki á
einu máli um hvort og þá hvaða hæfisreglur gilda
um forseta Íslands í íslenskum rétti. Páll Hreins-
son, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir
enga setta lagareglu til sem taki til forseta Íslands
við staðfestingu laga.
Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor við laga-
deild Háskólans í Reykjavík, segir að ef forseti fari
á annað borð með vald til að synja lögum staðfest-
ingar, gildi væntanlega um þá málsmeðferð ekki
vægari reglur um hæfi en gilda um alþingismenn.
Hann segir að fyrir liggi að forstjóri Norðurljósa
haldi því fram að væntanleg fjölmiðlalöggjöf hafi
nær eingöngu áhrif á hagsmuni þess fyrirtækis en
hann sé skráður forsvarsmaður stuðningsmanna-
félags Ólafs Ragnars og hafi styrkt hann fjárhags-
lega í framboði til forseta. Þrýstingur frá fyrir-
svarsmanni stuðningsmannafélagsins um að
forsetinn staðfesti ekki lögin beri keim af því að
verið sé að innheimta endurgjaldið fyrir framlögin í
kosningabaráttuna og þá sé farið að láta nærri að
staðan sé hliðstæð þeirri aðstöðu sem geri þing-
menn vanhæfa.
Sagði 26. grein í reynd dauðan bókstaf
Fræðimenn eru ósammála um hvort forseti Ís-
lands hafi raunverulegt synjunarvald skv. 26. grein
stjórnarskrár. Ólafur Ragnar Grímsson komst að
þeirri niðurstöðu árið 1977, er hann var prófessor
við félagsvísindadeild Háskóla Íslands, í ritinu Ís-
lenska þjóðfélagið – Félagsgerð og stjórnkerfi, að
þetta ákvæði stjórnarskrárinnar væri dauður bók-
stafur. Orðrétt segir í ritinu: „Í 26. grein er forseta
veitt heimild til að synja lagafrumvarpi staðfest-
ingar, þar eð enginn forseti hefur beitt þessu
ákvæði er það í reynd dauður bókstafur.“
„Fáum þessum ólögum hrundið“
Hafin er undirskriftasöfnun þar sem skorað er á
forseta Íslands að staðfesta ekki væntanleg lög um
eignarhald á fjölmiðlum. Fjölmiðlafólki barst í gær
tölvupóstur frá Róbert Marshall, fréttamanni á
Stöð 2, sem einnig er formaður Blaðamannafélags
Íslands: „Nú reynir á okkur að rísa til varnar. Að
óbreyttu verður fantafrumvarpið að lögum eftir
helgi,“ segir þar. „Mætið í vinnuna á morgun og á
sunnudag eða sitjið við tölvuna heima við, hringið,
djöflist, látið öllum illum látum, söfnum þessum
undirskriftum, fáum þessum ólögum hrundið,
kaupum tíma til að fá þau í það minnsta milduð í
haust,“ segir m.a. í tölvupóstinum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir forseta Íslands ekki
geta neitað að staðfesta fjölmiðlafrumvarpið sem lög
Forseti vanhæfur vegna
tengsla við Norðurljós
Forseti segist ekki geta yfirgefið landið vegna óvissu um afgreiðslu mikil-
vægra mála á þingi Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja að gefa
þurfi skýringar á að forseti var ekki viðstaddur brúðkaupið í Danmörku
Forsetinn og fjölmiðlafrumvarpið
/4/6/10/11/12/Leiðari/Baksíða