Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 4

Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ „FRÁBÆRLEGA SPENNANDI SAGA ... BÓK SEM MAÐUR LES Í EINUM RYKK.“BIRTA „FYRSTA FLOKKS AFÞREYING.“ „GÁTUSAGA MEÐ GULLINSNIÐI.“ VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON, HÖFUNDUR FLATEYJARGÁTUNNAR MORGUNBLAÐIÐ SKV. METSÖLULISTUM VERÐ: 1.590 KR. WWW.BJARTUR.IS/DAVINCI MÁ T T U R IN N & D Ý R Ð IN * * SENNILEGA DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir óskiljanlegt að forseti Íslands hafi ekki verið viðstaddur konunglega brúðkaupið í Dan- mörku í gær og ríkistjórnin þurfi að útskýra fyrir dönsku ríkisstjórninni og konungsfjöl- skyldunni hvað hafi gerst. Davíð segir einnig að ef forseti hyggist synja fjölmiðlafrum- varpinu staðfestingar sé hann vanhæfur til þess, m.a. vegna tengsla við forsvarsmenn Norðurljósa. Þetta kom fram í viðtali Ríkissjónvarpsins við forsætisráðherra sem birt var í kvöld- fréttatíma RÚV í gærkvöldi. Viðtalið fer hér á eftir í heild sinni: Algjörlega óskiljanlegt Fréttamaður Ríkissjónvarpsins, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, spurði Davíð fyrst hver viðbrögð hans væru við fjarveru forseta Ís- lands frá brúðkaupinu í Danmörku. „Þetta er bara eitthvað óskiljanlegt því það er ekkert hér sem að þyrfti að rugla for- setann. Og þessi undarlega heimkoma, eftir 14 tíma flug og blaðamannasirkus einhvern, er algerlega óskiljanlegur, því hér eru engin mál afgreidd, þau mál sem hann er að vísa til, í þessari viku eða hinni næstu. Brúð- kaupið stendur ekki í tíu, tuttugu daga. Hann var búinn að lofast til að koma. Við þurfum einhvern veginn, ríkisstjórnin, að út- skýra síðan fyrir dönsku ríkisstjórninni og konungsfjölskyldunni hvað hafi gerst, en við vitum ekki hvað við eigum að segja nákvæm- lega. Það botnar enginn í þessu,“ sagði Dav- íð. Forsetinn getur ekki verið að ganga erinda eins auðhrings – Er þetta virðingarleysi við Dani? „Þetta er eitthvað alveg stórundarlegt a.m.k. Forsetinn hefur ekki haft samband við mig og spurt um þingstörfin, ekki við ut- anríkisráðherra og spurt um þingstörfin, ekki forseta þingsins og spurt um þingstörf- in. Hann þyrfti ekki annað en horfa á sjón- varpið, þar sem ræðumenn í annarri umræðu eru tilkynntir, sem tala hver í eina til tvær klukkustundir, þá sæi hann það, að m.a.s. í næstu viku er ekki hægt að klára þetta mál. Þannig að ég veit ekki um hvaða óvissu hann er að tala. Handhafar forsetavalds eru reyndar búnir að staðfesta, á meðan hann var í Mexíkó, átta, níu lög. Það hefur engin fyrirspurn komið frá forsetaskrifstofunni um þessi lög, enginn áhugi um það hvaða lög hafa verið staðfest. Þannig að þetta er allt óskiljanleg vitleysa. Ég trúi ekki að hann sé kallaður heim af einhverjum aðilum úti í bæ. Það er reyndar búið að segja það, ekki við okkur, ekki við mig, ekki við utanríkisráðherra, ekki við forseta þingsins, að forsetinn sé að hug- leiða að staðfesta ekki lög frá þinginu. En það virðist vera búið að segja það við Dag- blaðið og Stöð 2 og Fréttablaðið, því þar kemur þetta allt saman fram, en ekki við réttkjörin stjórnvöld í landinu. Þetta er allt saman óskiljanlegt. Forsetinn getur ekki verið að ganga erinda eins auðhrings. Hann er forseti allrar þjóðarinnar. Það gefur auga- leið,“ sagði Davíð. – En getur það verið ástæðan, að hann sé að íhuga það að staðfesta ekki þessi lög og hann þurfi að hafa svigrúm til þess á meðan? „Hann hlýtur að geta íhugað slíka hluti hvar sem hann er. Ef Dagblaðið er búið að tilkynna það í heilli opnu, án þess að forset- inn láti þingið vita eða ríkisstjórnina vita, að hann sé í Mexíkó að hugsa um að staðfesta ekki lög, þar sem hann hefur ekki einu sinni séð breytingartillögurnar, þá er eitthvað að gerast sem enginn maður botnar í.“ Hefði kannski getað rætt þetta við Danadrottningu – Endurspeglar þetta einhverja togstreitu milli forsetaembættisins og Alþingis? „Það er engin togstreita milli Alþingis og forsetaembættisins. Hefur ekki verið í 60 ár. Ekki nokkur togstreita. Alþingi vinnur sín verk samkvæmt þingræðisreglu og af því að við erum að tala um Danadrottningu og brúðkaupið. Ég horfði á viðtal við Dana- drottningu, þar sem hún var spurð um það hvort hún myndi beita neitunarvaldi sem hún hefði við lög. Og hún starði á fjölmiðla- manneskjuna og sagði: Ertu frá þér? Það væri árás á danska þingið. Hann hefði kannski getað farið út og rætt þetta við Danadrottningu, því ekkert gerist hér næstu tíu, tólf daga. Þetta er eitthvað al- gjörlega óskiljanlegt. Hann talar ekki við neinn þá nema Dagblaðið og Baug og kosn- ingastjóra sinn, forstjóra Norðurljósa.“ Vanhæfur til að neita að staðfesta fjölmiðlafrumvarpið – Heldur þú að hann muni ekki staðfesta þessi lög? „Ég hef ekki hugmynd um það en í mínum huga er alveg klárt að hann getur ekki synj- að þeim, af tveimur ástæðum. Lögmenn deila um það hvort forsetinn geti synjað eða hvort það er vald ráðherrans. Þetta skilur fólk illa hér af því að við erum alltaf með meiri- hlutastjórnir. En það þarf ekki að vera svo. Það hafa stundum verið minnihlutastjórnir. Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hafa iðulega verið minnihlutastjórnir. Þar gæti þingið samþykkt lög sem ráðherrann teldi að hefðu stórkostleg útgjöld í för með sér og myndi þess vegna leggja til við þjóðhöfðingjann að þeim væri synjað, ekki þjóðhöfðinginn. Nú ef að hin túlkunin er rétt, sem menn eru með að þetta sé í þetta eina skipti, miðað við stjórnarskrána, sem þetta er persónulegt vald forsetans að geta synjað, þá vakna allar vanhæfisreglur, sem við búum við í þessu landi. Og ef einhver er vanhæfur til þess að taka á þessu máli, þá er það Ólafur Ragnar Grímsson. Forstjóri Norðurljósa er formað- ur stuðningsmannafélags Ólafs Ragnars Grímssonar. Það hefur komið fram í fjöl- miðlum að fyrrverandi forstjóri Norðurljósa, sem seldi, hafi verið einn aðal fjárhagslegur stuðningsmaður forsetans. Það hefur komið fram að forsetinn bauð jafnan til kvöldverðar þegar Stöð 2 var að taka lán, sem fyrirtæki út í bæ hjá erlendum lán[veitendum]. Þá var veisla á Bessastöðum. Dóttir forsetans vinn- ur hjá Baugi. Þannig að ef einhver er al- gjörlega vanhæfur til slíkra hluta, þá er það forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Þannig að hvoru megin sem lögfræðitúlkunin liggur, þá er algjörlega ljóst að hann getur ekki synjað þessum lögum,“ sagði Davíð Oddsson í viðtalinu. Davíð Oddsson forsætisráðherra í viðtali í kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins í gær Útskýra þarf fjarveru forseta fyrir ríkisstjórn Dana og konungsfjölskyldu Davíð Oddsson forsætisráðherra ræðir við fréttamann Ríkissjónvarpsins á Alþingi. Í TILKYNNINGU frá skrifstofu forseta Íslands, sem send var fjöl- miðlum í gærmorgun segir: „Vegna óvissu um hvenær Alþingi lyki af- greiðslu mikilvægra mála gat forseti Íslands ekki yfirgefið landið í morg- un og verður hann því ekki viðstadd- ur atburðina í Kaupmannahöfn síðar í dag. Forsetafrúin Dorrit Mouss- aieff mun verða í brúðkaupi Friðriks krónprins og Mary Donaldson og í brúðkaupsveislunni sem Margrét Þórhildur drottning og Hinrik prins efna til í kvöld. Hún afhendir brúð- hjónunum að gjöf glerskál gerða af listamanninum Jónasi Braga Jónas- syni og er skálin á að vera óður til litadýrðar íslenskrar náttúru.“ Gat ekki yfirgefið landið vegna óvissu um þingstörf KÓRAMÓT lögreglukóra Norðurlandanna verður haldið í Reykjavík um helgina en slík mót eru hald- in á fjögurra ára fresti og skiptast Norðurlanda- þjóðirnar á að halda mótin. Nú er mótið haldið á Ís- landi í þriðja sinn en Lögreglukór Reykjavíkur varð 70 ára í mars sl. Í gær fóru kórarnir í skrúðgöngu niður Lauga- veginn og gengu kórfélagarnir einkennisklæddir í fylkingu á eftir lúðrasveit. Kórarnir munu halda tónleika í Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur, kl. 17 í dag og á morgun, sunnudag, verður samnorræn lög- reglumessa í Langholtskirkju. Morgunblaðið/Júlíus Lögreglukórar marsera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.