Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 9

Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 9 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Fyrir brúðkaup Kjólar, dragtir og dress Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 LAGERSALA Opið í dag kl. 10.00-14.00 Hlýrakjólar - stutt pils og buxur kr. 3.000 Nýkomið Stuttbuxr - kvartbuxur - toppar - bolir Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Laugavegi 63, sími 551 4422 Útskriftar- dragtir Rýmingarsala á Laugaveginum 15.-19. maí 30-50% afsláttur af öllum vörum Bjóðum viðskiptavini velkomna í Drangey - Smáralind Drangey flytur alfarið í Smáralind Opið virka daga 11-19 laugardaga 11-18 og sunnudaga 13-18 Líttu á www.drangey.is Opið í dag frá kl. 11-15, sunnudag kl. 13-15. Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. Einstakt tilboð Síðir ekta refa- og persian- skinnpelsar. Verð kr. 75 þús. Aðeins í tvo daga Opnir jógatímar hefjast að nýju mánudaginn 17. maí: mán., mið. & fös. kl. 17:20 Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni hefst 1. júní kl. 20.00 - þri. og fim. Jógaskólinn – jógakennaraþjálfun í sumar Kynningarfundur laugard. 12. júní kl. 18.00 Auðbrekku 14, Kópavogi. Skráning í síma 544 5560 og á www.yogastudio.is SUMARTILBOÐ 20% AFSLÁTTUR Laugavegi 51, Reykjavík Sími 552 2201 KÆRUNEFND jafnréttismála álítur að leiddar hafi verið líkur að mismunun vegna kynferðis þegar kona var ráðin í starf á tölvudeild hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur fyrir ári. Karl kærði ráðninguna en 19 sóttu um starfið; 16 karlar og þrjár konur. Kærunefndin telur að ekki hafi verið sýnt fram á að mál- efnaleg rök hafi staðið til þess að líta fram hjá manninum sem kærði við ráðninguna og er það því álit kærunefndarinnar að Fræðslumið- stöð hafi brotið gegn ákvæðum jafnréttislaga. Karlinn hafi staðið konunni framar bæði hvað varðar menntun og starfsreynslu og bend- ir nefndin á að þess skuli gæta að umsækjandi sé ekki valinn nánast einvörðungu á grundvelli kynferðis. Ekki leitað til meðmælenda í kjölfar atvinnuviðtals Kærandi taldi að gengið hefði verið framhjá sér við ráðningu í starfið þegar litið væri til starfs- reynslu og menntunar. Telur hann hafa verið ráðið í stöðuna í kjölfar fimmtán mínútna starfsviðtals, en hann dregur í efa að hægt sé að leggja mat á hæfni fólks í mann- legum samskiptum í svo stuttu samtali. Þeir sem tóku viðtalið hafi ekki þekkt til hans persónulega en hafi þrátt fyrir það ekki leitað til meðmælenda hans. Í sjónarmiðum Fræðslumiðstöðv- ar Reykjavíkur er bent á að starfið hafi verið tímabundið og samkvæmt reglum sem gildi um auglýsingar lausra starfa hjá Reykjavíkurborg hafi ekki verið skylt að auglýsa það. Í auglýsingunni um starfið var lýst helstu áherslum sem lagðar hafi verið til grundvallar við mat á um- sóknum. Sérstaklega hafi verið litið til menntunar, kyns og starfs- reynslu. Hvað réði vali á umsækj- anda kemur fram í greinargerð Fræðslumiðstöðvar að konur hafi verið hvattar til að sækja um starf- ið og hafi verið fyrir því tvær ástæður. Annars vegar að í jafn- réttisstefnu Reykjavíkurborgar sé lögð áhersla á að jafna kynjamun en í tölvudeild kærða hafi starfað fjórir karlar en engin kona. Hin ástæðan sé að margar konur séu umsjónarmenn tölvukerfa í skólum og hafi þær margoft komið þeirri athugasemd á framfæri að æskilegt væri að kona starfaði í tölvudeild- inni. Ekki var efast um faglega hæfni mannsins heldur hafi starfsmenn tölvudeildar ekki treyst sér til að vinna með honum og hafi sú afstaða verið rökstudd með tilvitnunum í árekstra sem upp hafi komið í sam- skiptum þeirra á milli er hann var tölvuumsjónarmaður í einum grunnskóla borgarinnar. Í sjónar- miðum Fræðslumiðstöðvar er ekki tekin afstaða til starfsreynslu kær- anda í samanburði við þá sem ráðin var. Stóð framar hvað varðar menntun og starfsreynslu Kærunefndin kemst að því í áliti sínu að kærandi hafi staðið þeirri sem starfið hlaut framar, bæði hvað varðar menntun og starfsreynslu. Í máli Fræðslumiðstöðvarinnar hafi komið fram að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar ákvörðun um að ráða kæranda ekki til starfa, þ.e. meintir samstarfsörð- ugleikar. Fræðslumiðstöð hafi þó ekki fært fram nein frekari rök eða gögn máli sínu til stuðnings um meinta samstarfsörðugleika eða árekstra við kæranda. Að mati nefndarinnar geta þessi sjónarmið því ekki ráðið úrslitum í málinu. Kærunefnd segir liggja fyrir að Fræðslumiðstöð hafi talið sig hafa verið að stuðla að því markmiði að jafna kynjahlutfall með því að ráða konu í starfið. Í álitinu segir: „Þess verður þó ætíð að gæta í slíkri við- leitni að ganga ekki á svig við meg- inreglu laga um jafna stöðu og jafn- an rétt kvenna og karla, nr. 96/2000, þannig að umsækjandi sem stendur öðrum af gagnstæðu kyni að baki hvað menntun og starfs- reynslu áhrærir sé þrátt fyrir það valinn nánast einvörðungu á grund- velli kynferðis, þar sem kyn þess umsækjanda sé í minnihluta í við- komandi starfsstétt.“ Kærunefnd jafnréttismála um starf hjá Fræðslumiðstöð Brotið á karli við ráðningu hjá Reykjavíkurborg HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð bóta- nefndar dómsmálaráðuneytisins um að konu sem varð fyrir líkams- árás skuli ekki greiddir dráttar- vextir af bótakröfu sinni og er nefndinni gert að greiða dráttar- vextina. Forsaga málsins er að konan varð fyrir líkamsárás árið 2001 og voru henni dæmdar bætur. Segir í dómsorði héraðsdóms, staðfestu af Hæstarétti, að bæturnar skuli greiddar með vöxtum og dráttar- vöxtum frá árásinni. Konan leitaði til bótanefndar til að fá bæturnar greiddar, og tilkynnti nefndin kon- unni að hún fengi bætur með vöxt- um, en ekki dráttarvöxtum. Rök bótanefndarinnar fyrir því að henni bæri ekki að greiða drátt- arvexti voru þau að nefndin hafi greitt bæturnar um leið og bóta- réttur konunnar hafi verið staðfest- ur, og því ekki um drátt að ræða af hálfu ríkisins. Þessu undi konan ekki og höfðaði mál gegn ríkinu til að krefjast réttar síns. Greiðsludráttur tjónvalds Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að bótanefnd hafi borið að greiða kon- unni dráttarvexti þá er sagt var fyr- ir um í dómsorði, og segir í nið- urstöðu dómsins að greiðslu- drátturinn snúi að tjónvaldi en ekki ríkissjóði. Því skuli bótanefnd vera bundin af niðurstöðu dómsins og greiða bætur með vöxtum og drátt- arvöxtum. Einnig var ríkið dæmt til að greiða málskostnað, 187.500 kr. Dóminn kvað upp Skúli J. Pálma- son, héraðsdómari. Lögmaður sækjanda var Kristinn Ólafsson, hæstaréttarlögmaður, en lögmaður ríkisins var Óskar Thorarensen hæstaréttarlögmaður. Bótanefnd bar að greiða dráttarvexti „ÞESSI dómur markar tímamót að því leyti að hér er í fyrsta skipti hnekkt áralangri framkvæmd bóta- nefndar ríkisins þess efnis að tjón- þolar líkamsárása, sem hafa fengið dæmdar bætur ásamt dráttar- vöxtum úr hendi tjónvalds, fái ekki dráttarvextina greidda frá ríkis- sjóði,“ segir Kristinn Ólafsson hæstaréttarlögmaður sem flutti málið gegn ríkinu. „Hingað til hefur bótanefndin samþykkt höfuðstól bótanna en ekki dráttarvextina. Í stað þeirra hafa almennir bankavextir verið greiddir. Svo lengi sem Hæstiréttur hnekkir ekki héraðsdómi, verði málinu á annað borð áfrýjað, er ljóst að margra ára langri hefð hef- ur verið raskað. Að óbreyttu gætu margir tjónþolar átt kröfu á ríkis- sjóð vegna vangreiddra dráttar- vaxta.“ Margir gætu átt kröfu á ríkissjóð AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 Bómullar-, satín- og silkidamask-sett í úrvali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.