Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þingvikan sem nú er að líða ervafalaust sú annasamasta áþessum þingvetri. Húnhófst á mánudagskvöld með útbýtingu þingskjala. Þar á með- al var þingskjal frá meirihluta alls- herjarnefndar sem kvað á um breyt- ingar á fjölmiðlafrumvarpinu svonefnda. Á þriðjudaginn hófst svo önnur umræða um frumvarpið og hefur það verið eina málið á dagskrá alla þessa viku. Ræðutími er ótak- markaður við aðra umræðu um þing- mál. Þingfundir hafa í vikunni byrjað (óvenju)snemma og staðið yfir fram yfir miðnætti. Eitt sinn stóð þing- fundur til klukkan fjögur um nótt. Alls 35 framsöguræður hafa verið fluttar á þessum tíma og hafa sumir þingmenn talað samfleytt í meira en tvo klukkutíma. Til að mynda Mörður Árnason og Einar Karl Haraldsson, þingmenn Samfylkingarinnar. Sam- tals hefur önnur umræða um fjöl- miðlafrumvarpið tekið um fjörutíu klukkustundir. Engin ræðumet hafa þó verið sleg- in. Hreggviður Jónsson á enn metið í því að halda „eina lengstu þögulu ræðu þingsögunnar“, eins og Stein- grímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna, komst að orði á Al- þingi í gær. Stóð Hreggviður þögull í ræðustól í 29 mínútur, að sögn Stein- gríms. Sennilega hefur Hreggviður verið að bíða eftir því að ráðherra kæmi inn í þingsal til að fylgjast með umræðunum. Jóhanna Sigurðardóttir á enn met- ið í ræðulengd. Þegar hún sló sitt met, vorið 1998, hafði hún talað sam- fellt í fimm og hálfan tíma í annarri umræðu um húsnæðisfrumvarp fé- lagsmálaráðherra. Þar með sló hún met Sverris Hermannssonar, þáver- andi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, en hann hafði talað samfellt gegn grunnskólafrumvarpinu vorið 1974 í rúma fimm tíma. Því má bæta við að Jóhanna greindi frá því síðar að hún hefði passað sig á því að drekka ekki mikið vatn í ræðustólnum þegar hún flutti húsnæðisræðuna svo að hún þyrfti ekki að fara á klósettið. x x x Margt benti þó til þess í upp-hafi þessarar viku að ræðu-met yrðu slegin. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylk- ingarinnar, boðaði það nefnilega að hann hygðist lesa í heild sinni verkið Frelsið eftir John Stuart Mill, í ræðu sinni um fjölmiðlafrumvarpið. Ritið er um 170 síður og kvaðst hann í sam- tali við Morgunblaðið gera ráð fyrir því að lesturinn tæki fjóra til fimm tíma. Undirrituð getur ekki neitað því að hafa verið farin að hlakka til; var að spá í að fá sér hengirúm og eiga nota- lega stund í Bolabásnum, þar sem þingfréttaritarar hafast við, undir flutningnum. Björgvin hóf lesturinn í gær, en kláraði þó ekki nema einn og hálfan kafla, þar sem hann var beðinn um að hleypa Steingrími J. Sigfús- syni að. Hann hefur þó upplýst að hann hyggist klára bókina við þriðju umræðu. Ég vona að ég móðgi ekki Björgvin þótt ég viðurkenni að ég hefði frekar viljað hlusta á þingkonuna Kolbrúnu Halldórsdóttur flytja Frelsið. Hún er nefnilega líka leikkona og leikstjóri og eflaust vön upplestri. Tek þó fram að ég er alls ekki að hvetja hana eða aðra til eins eða neins. En talandi um leikhús. Þau eru greinilega Kolbrúnu frekar ofarlega í huga. Stjórnarandstæðingar hafa ítrekað komið upp í ræðustól í vik- unni til að tjá sig undir liðnum: at- hugasemdir um störf þingsins, eða undir liðnum: um störf forseta. Stjórnarliðar hafa haft á orði að þær ferðir séu ekkert annað en leiksýn- ingar eða farsar. Kolbrún hafði hins vegar þetta að segja um málið í vikunni. „Menn hafa verið að tala um leikrit. Ég vil óska eftir því að við hættum að kalla þenn- an skrípaleik sem hér fer fram leikrit vegna þess að ekkert íslenskt leikrit er svo illa skrifað að það verðskuldi að vera í flokki með þeirri fléttu sem ríkisstjórnin er að búa til í þessu máli. Þetta er ekki íslenskt leikrit. Þetta er skrípaleikur,“ sagði hún, en fram fóru umræður um það að þingfundi yrði frestað á meðan tvær fastanefndir fjölluðu um fjölmiðlafrumvarpið. Halldór Blöndal, sem þá stýrði fundi, var ekki seinn að svara, frekar en fyrri daginn, og sagði: „Þá er nú spurning, háttvirtur þingmaður, hver er höfundur textans,“ Síðan hélt þingfundurinn áfram.      Hver er höfundur textans? EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, kallaði Davíð Oddsson forsætisráðherra gungu og druslu á Alþingi í gærmorgun eftir að hafa ítrekað óskað eftir því við forseta Alþingis að forsætisráð- herra kæmi í þingsalinn og svaraði spurningum sem tengdust fjöl- miðlafrumvarpinu. Þegar forseti þingsins, sem þá var Guðmundur Árni Stefánsson, upplýsti að for- sætisráðherra kæmist ekki á þing- fund kvaðst Steingrímur líta svo á að ráðherra þyrði ekki að eiga orðastað við sig. „Ég hlýt að líta svo á, herra forseti, af því að hæst- virtur forsætisráðherra getur ekki haft nein lögmæt forföll – bráð- frískur maðurinn á vappi hérna í kringum salinn áðan – hann getur ekki haft nein önnur forföll, nein lögmæt forföll, ég hlýt að líta svo á að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig. Ég hlýt að líta svo á og það skal þá standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig.“ Áður en þessi ummæli féllu hafði Steingrímur flutt sína seinni ræðu um fjölmiðlafrumvarpið við aðra umræðu um málið. Þar ítrekaði Steingrímur að Vinstri grænir væru ekki andvígir því að sett yrðu lög til að tryggja fjölbreytta, óháða, sjálfstæða og öfluga fjöl- miðla. „En við höfum sagt að það verði að skoða þá lagasetningu mjög vandlega í ljósi aðstæðna á okkar litla markaði. Og þegar menn setja þær reglur verður sú gjörð að standast allar kröfur til góðrar stjórnsýslu og lagasetning- ar,“ sagði hann. „Það verður að gæta hófs í því hvernig þær reglur koma við starfandi aðila. Það verð- ur að uppfylla svonefnda meðal- hófsreglu. Það er ekki gert með þessu.“ Steingrímur sagði ennfremur að þingmenn Vinstri grænna hefðu tekið undir tillögur höfunda fjöl- miðlaskýrslunnar að efla þyrfti Ríkisútvarpið og auka sjálfstæði þess. „Við höfum í þriðja lagi sagt að við viljum hafa almenna löggjöf sem tryggir upplýsingalöggjöf um eignarhald fjölmiðla, ekki svona sem eingöngu tekur til ljósvak- anna. Ég tel að þarna eigi að koma líka inn ákvæði um upplýsinga- skyldu dagblaðaútgefenda og jafn- vel stærstu tímaritaútgefenda um eignarhald sitt þannig að öll meg- insvið fjölmiðlunar séu undir það sama sett.“ Sagði hann að þetta mætti gera með einföldu ákvæði inn í samkeppnislögin. Víðtæk umfjöllun verði leyfð Steingrímur gerði Morgunblaðið og leiðara þess einnig að umtals- efni í ræðu sinni. Vitnaði hann í leiðara blaðsins í gærmorgun og spurði síðan hvort Morgunblaðið væri sammála vinnubrögðum við fjölmiðlafrumvarpið. „Er Morgun- blaðið ekki bara sammála frum- varpinu efnislega? Er það líka sammála vinnubrögðunum? Styður Morgunblaðið að þetta mál verði keyrt í gegn á næstu sólarhringum og gert að lögum? Ef umræðan er mikilvæg sem Morgunblaðið sakn- ar, eigum við þá ekki að leyfa henni að fara fram, bæði innan þings og utan? Eigum við ekki að leyfa víðtæka umfjöllun um málið í vor, í sumar og í haust og á Alþingi aftur fram að áramótum til dæmis? Þá væri orðinn sómi að og hægt að segja að menn hefðu kallast á um þessa hluti, við á þinginu, fjölmiðl- arnir, almenningur úti í þjóðfélag- inu og allir sem áhuga, vilja og skoðanir hafa á þessum hlutum. Ég held að Morgunblaðið ætti þá líka að svara því.“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG Kallaði Davíð „gungu og druslu“ Morgunblaðið/Þorkell Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, krafðist þess ítrekað á Alþingi í gær að forsætisráðherra kæmi í þingsal og svaraði spurningum. „ÉG viðurkenni það fúslega að mér var heitt í hamsi, ég tók djúpt í árinni og notaði stór orð,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, aðspurður um ummælin sem hann lét falla um forsætisráð- herra, Davíð Oddsson, á þingfundi í gærmorgun þar sem verið var að ræða fjölmiðlafrumvarpið. Þar kallaði hann forsætisráðherra gungu og druslu. Steingrímur seg- ist þó hafa haft ástæðu fyrir þess- um orðum. „Sumum finnst þetta sjálfsagt vera óþarflega stór orð en ég hafði þær ástæður að mér var verulega misboðið. Ég tel að mér og þinginu hafi verið sýnd lít- ilsvirðing þegar forsætisráðherra hundsaði algjörlega ítrekaðar og rökstuddar óskir um að hann kæmi og svaraði fyrir um mál sem hann ber hér fram. Ég tel að það sé brot á þeim hefðum sem hafa ríkt um þessi samskipti, þ.e. að þingmenn eigi rétt á því að fá ráð- herra til rökræðna og eftir atvik- um til þess að leggja fyrir þá spurningar.“ Steingrímur segir að það sé að verða æ algengara að ráðherrar séu ekki viðstaddir umræður um þingmál sem tengjast þeirra sviði. Telur hann það slæma þróun. Hann minnir á að Alþingi sé meira en bara löggjafarsamkunda; þar sé einn helsti vettvangur pólitískra skoðanaskipta í landinu. „Ég ætla ekki baráttulaust að láta þennan rétt [um að þingmenn fái ráðherra til rökræðna í þingsal] ganga úr greipum þingmanna.“ „Mér var veru- lega misboðið“ HELGI Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingarinnar, kvartaði yfir því við upphaf þingfundar á Alþingi í gær að forsætisráðherra, Davíð Odds- son, væri ekki á þingfundi því hann vildi ræða frétt DV um að Davíð hefði hringt í Tryggva Gunnarsson, umboðsmann Alþingis, og fundið að áliti hans um skipan dómara í Hæstarétt. Sagði Helgi að forsætis- ráðherra væri á ríkisstjórnarfundi og spurði hvort rétt væri að þing- fundur og ríkisstjórnarfundir færu saman. Fleiri þingmenn tóku til máls og kom fram í máli Guðmundar Árna Stefánssonar, þingmanns Samfylk- ingar, og Magnúsar Þórs Hafsteins- sonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, að þeir tryðu því vart að fréttin væri rétt. Á hinn bóginn væri ásökunin það alvarleg að það hlyti að vera nauðsynlegt fyrir þing og framkvæmdavald að taka af öll tvímæli í þessum efnum. Einar K. Guðfinnsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokks- ins, kom næstur í pontu, og sagði ástæðu til að hrósa þingmönnum stjórnarandstöðunnar fyrir ótrúlega fundvísi á undarleg mál. Sagði hann að umræðan undanfarna daga um útvarpslög hefði ekki verið við- burðarík en þó væri stundum til- hlökkunarefni að sjá hvaða mál stjórnarandstaðan fyndi til að brjóta umræðuna upp og ræða und- ir dagskrárliðnum fundarstjórn for- seta eða störf þingsins. „Ég verð að játa að þetta er samt sem áður það undarlegasta og vitlausasta sem ég held að stjórnarandstaðan hafi komið fram með, að éta upp úr Dagblaðinu hviksögur og gera þær að umræðuefni í sölum Alþingis er fyrir neðan allar hellur og þeim háttvirtum þingmanni til skammar sem hóf þetta mál,“ sagði hann. „Það sem hér er verið að reyna að gera er gamalkunnugt úr stjórn- málum og það heitir á ensku ,,Let them deny it“ eða látum þá neita því. Það eru bornar fram ásakanir og gripið til hviksagna úr Dag- blaðinu og síðan á einfaldlega að reyna að stilla mönnum upp og láta þá neita því.“ Engar hviksögur Helgi Hjörvar vísaði þessum full- yrðingum Einars á bug. Sagðist hann enn fremur hafa tekið það sérstaklega fram að hann færi ekki í efnislega umræðu að forsætisráð- herra fjarstöddum. „Ég tel hins vegar ekki rétt að kalla þessar fréttir hviksögur og tel að hátt- virtur þingmaður Einar K. Guð- finnsson verði að hafa það í huga að sá blaðamaður sem þessar fréttir færir hefur áður reynst hafa giska góðar heimildir um mál sem snertu þennan sal og hluti í þessum sal á vegum þingmanna, hluti sem voru ekki eins og þeir áttu að vera,“ sagði Helgi. Öll tvímæli verði tekin af um frétt í DV Þingmenn stjórnarandstöðunnar óska eftir nærveru forsætisráðherra BÚAST má við því að annarri um- ræðu um fjölmiðlafrumvarpið ljúki á Alþingi í dag og að fram fari atkvæða- greiðslur um frávísunartillögu minni- hluta allsherjarnefndar þingsins og breytingartillögur meirihlutans. Þingfundi var slitið á sjötta tímanum í gær en þá hafði önnur umræða um frumvarpið staðið yfir í fjóra daga, eða samtals fjörutíu klukkustundir. Alls 35 framsöguræður hafa verið fluttar á þessum tíma. Þar fyrir utan hafa verið fluttar fjölmargar athuga- semdir við ræður þingmanna.Nokkuð gekk á mælendaskrá eftir því sem leið á daginn í gær og voru þingmenn farnir að stytta mál sitt. Níu þing- menn voru á mælendaskránni um miðjan dag í gær. Önnur umræða um fjölmiðlafrumvarpið Hefur staðið yfir í 40 klukkustundir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.