Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HUNDRUÐ þúsunda manna söfn-
uðust saman á götum Kaup-
mannahafnar í gær til að fagna
brúðkaupi Friðriks, ríkisarfa Dan-
merkur, og Mary Donaldson. Er
hún fyrsta konan sem giftist inn í
evrópska konungsfjölskyldu sem
er enn við völd.
Athöfnin, sem danskir fjölmiðlar
lýstu sem „brúðkaupi aldarinnar“,
fór fram í Frúarkirkjunni í mið-
borg Kaupmannahafnar.
Mary prinsessa var í beinhvítum
brúðarkjól, með sex metra löngum
slóða, og með sama slör og Mar-
grét Þórhildur Danadrottning og
systur hennar voru með þegar þær
gengu í hjónaband.
Friðrik ríkisarfi var í aðmír-
álsbúningi með gylltum skúfum og
hnöppum og felldi nokkur tár þeg-
ar hann sá brúðina.
Um 800 manns voru viðstaddir
hjónavígsluna, þeirra á meðal kon-
ungsfjölskyldur Noregs og Svíþjóð-
ar, Naruhito Japansprins, Felipe
krónprins frá Spáni og Játvarður
Bretaprins. Forseti Finnlands og
fleiri stjórnmálamenn voru einnig
viðstaddir vígsluna, héldu á rauð-
um og bleikum rósum og kertum.
Mikil öryggisgæsla
Mikill öryggisviðbúnaður var í
Kaupmannahöfn vegna brúðkaups-
ins og nær þriðjungur 10.000 lög-
reglumanna landsins voru á göt-
unum, auk þess sem þyrlur flugu
yfir borgina.
Hundruð þúsunda manna voru á
götunum til að fylgjast með brúð-
kaupinu, sem sýnt var á risastórum
sjónvarpsskjám, og aðdáendur
dönsku konungsfjölskyldunnar
dreifðu um 55.000 dönskum og
áströlskum fánum. Risastórir
blómvendir voru á torgum Kaup-
mannahafnar og mynduðu hjörtu
og kórónur. Hvarvetna gat að líta
ljósmyndir af brúðhjónunum og
sérstakt sætabrauð til heiðurs
þeim var selt í veitingahúsum.
Biskup Kaupmannahafnar, Erik
Norman Svendsen, gaf brúðhjónin
saman. Hann beindi meðal annars
orðum sínum til Mary prinsessu og
sagði að hún væri komin langt að,
frá hinni fjöllóttu Tasmaníu á lág-
lendið í Danmörku. Sagði hann
Dani hlakka til að sýna henni land
sitt í sínum fegursta skrúða og
einnig til að kynna henni Græn-
land og Færeyjar, sem væru hluti
af danska konungsveldinu. „Frá og
með deginum í dag eruð þér raun-
veruleg prinsessa. Þér hafið bæði
fengið prinsinn og konungsríkið,“
sagði biskup.
Eftir athöfnina óku brúðhjónin í
hestvagni til hallarinnar í Amal-
íuborg, aðalaðseturs konungsfjöl-
skyldunnar, og veifuðu til mann-
fjöldans af svölunum. Þaðan var
þeim ekið í bíl til hallarinnar í
Fredensborg, um 40 km utan
Kaupmannahafnar. Þar fór brúð-
kaupsveislan fram og gestirnir
voru um það bil 400. Veislunni lauk
með mikilli flugeldasýningu laust
eftir miðnætti að staðartíma,
klukkan tíu í gærkvöld að íslensk-
um.
„Fyrsta ástralska prinsessan“
„Þetta er stór stund fyrir Dan-
mörku, fyrir þjóðina, vegna þess
að við teljum konungsfjölskylduna
gegna mjög mikilvægu hlutverki.
Þetta er sérstakur viðburður sem
sameinar þjóðina,“ sagði ungur
Dani sem tók sér frí frá störfum til
að geta fylgst með brúðkaupinu.
Margir Ástralar gerðu sér sér-
staka ferð til Kaupmannahafnar í
því skyni að fylgjast með brúð-
kaupinu.
„Þetta er fyrsta ástralska prins-
essan. Þetta er mjög spennandi!“
sagði 24 ára Ástrali í miðborg
Kaupmannahafnar.
Gleðin var ekki minni í Ástralíu
þar sem Mary Donaldson er ekki
aðeins fyrsti Ástralinn sem giftist
inn í evrópska konungsfjölskyldu,
sem situr enn við völd, heldur er
hún einnig fyrsta ástralska konan
sem verður krónprinsessa í Evr-
ópu.
Friðrik ríkisarfi, 35 ára, og
Mary, sem er þremur árum yngri,
kynntust á kránni Slip Inn í Sydn-
ey þegar Ólympíuleikarnir voru
haldnir þar árið 2000. Hundruð
manna fylgdust með brúðkaupinu
á sjónvarpsskjám á kránni og boð-
ið var upp á danskar kjötbollur í
staðinn fyrir pitsur og taílenska
rétti sem eru yfirleitt á matseðl-
inum. Gestum með danskt vega-
bréf var boðinn ókeypis Carlsberg-
bjór.
Eftir að brúðhjónin kynntust
héldu þau sambandi sínu leyndu í
tvö ár en Donaldson var fljót að
vinna hugi og hjörtu Dana eftir að
þau trúlofuðust 8. október í fyrra.
80% Dana telja að hún verði góð
krónprinsessa, ef marka má skoð-
anakönnun sem gerð var í vikunni
sem leið.
Friðrik ríkisarfi nýtur einnig
mikillar hylli meðal Dana. Níu af
hverjum tíu Dönum telja að hann
hafi staðið sig vel í skyldustörfum
sínum sem ríkisarfi, samkvæmt
könnun sem birt var á sunnudag-
inn var. Árið 1997 varð hann fyrsti
meðlimur konungsfjölskyldunnar
til að verða valinn „Dani ársins“.
Mikil hátíðahöld í Kaupmannahöfn vegna brúðkaups ríkisarfa Danmerkur og Mary krónprinsessu
Reuters
Mary krónprinsessa veifar á svölum hallarinnar í Amalíuborg eftir brúðkaup hennar og Friðriks, ríkisarfa Dana.
Um 100.000 manns voru fyrir utan höllina. Á myndinni eru einnig, frá vinstri, Susan Moddy, stjúpmóðir prinsess-
unnar, Hinrik prins, tengdafaðir hennar, Friðrik, Margrét drottning og John Donaldson, faðir prinsessunnar.
AP
Friðrik, ríkisarfi Danmerkur, og Mary prinsessa ganga út úr Frúarkirkj-
unni í miðborg Kaupmannahafnar eftir að þau voru gefin saman í gær.
Hundruð þúsunda
fögnuðu á götunum
Kaupmannahöfn. AFP.
SKÝR meirihluti ríkja ESB hefur fylkt sér
að baki tillögum framkvæmdastjórnar sam-
bandsins um að fella niður styrki til útflutn-
ings á landbúnaðarvörum til að blása nýju
lífi í viðræður á vettvangi Heimsviðskipta-
stofnunarinnar, WTO, um aukið frelsi í al-
þjóðaviðskiptum. Frakkar eru einir ESB-
þjóðanna 25 um andstöðu við tillögurnar.
„Nálgun framkvæmdastjórnarinnar
hlaut góðar undirtektir. Allir eru ánægðir
með frumkvæði okkar að því að koma WTO-
viðræðunum aftur í gang,“ sagði Franz
Fischler, sem fer með landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsmál í framkvæmdastjórninni.
Franski landbúnaðarráðherrann Hervé
Gaymard ítrekaði hins vegar andstöðu
Frakka við tillögurnar á fundi landbúnaðar-
ráðherra ESB-ríkjanna á Írlandi á þriðju-
dag. Þær jöfnuðust að hans mati á við „ein-
hliða afvopnun“ Evrópu.
Fischler lagði annars áherzlu á að fram-
fylgd tillagnanna væri háð því að Banda-
ríkjamenn, Ástralar og Kanadamenn féllust
á viðlíka tilslakanir af sinni hálfu.
Frakkar
einangrast
Killarney á Írlandi. AFP.
ROH Moo-Hyun, forseti Suður-
Kóreu, tók aftur við embættinu í
gær, eftir að stjórnarskrárdóm-
stóll hafnaði ákæru sem íhalds-
sinnaðir andstæðingar hans höfðu
lagt fram gegn honum fyrir meint
embættisafglöp.
Roh varð forseti í febrúar í
fyrra, en vék úr embættinu til
bráðabirgða þegar þingið, þar sem
pólitískir andstæðingar hans eru í
meirihluta, samþykkti 12. mars sl.
að krefjast þess að hann yrði
sviptur embætti á þeim forsendum
að hann hefði brotið kosningalög,
væri vanhæfur í embætti og sekur
um spillingu.
Hann tók aftur við embættinu
eftir að dómstóllinn, sem hefur síð-
asta orðið um embættisglapaá-
kærur, hafnaði tveim ákærulið-
anna og úrskurðaði að sá þriðji
– brot á lögum um óhlutdrægni
í kosningum – væri ekki nægj-
anleg forsenda embættissvipt-
ingar.
Þrír hægriflokkar í stjórn-
arandstöðunni fengu þingið til
að samþykkja ákæruna, þrátt
fyrir að skoðanakannanir
sýndu að sjö af hverjum tíu
landsmanna væru henni and-
vígir. Í fyrra notuðu andstæð-
ingar Rohs meirihlutastöðu
sína á þinginu til að vinna
gegn efnahagsumbótastefnu
forsetans og friðarumleitunum
við Norður-Kóreu.
Andstæðingar Rohs Moo-Hyun, forseta Suður-Kóreu, hrópa slagorð
gegn honum fyrir utan stjórnarskrárdómstólinn í Seoul í gær.
Roh tekur aftur
við í S-Kóreu
Seoul. AFP.
Dómstóll hafnar ákæru á hendur
forsetanum fyrir embættisafglöp
Reuters