Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Leikskólanemar útskrifast | Það
voru átján hressir krakkar sem útskrif-
uðust frá tveimur deildum úr leikskól-
anum Klettaborg sl. fimmtudagskvöld.
Að sögn Steinunnar Baldursdóttur leik-
skólastjóra tókst útskriftin frábærlega
vel. Annar hópurinn flutti kvæðið Ef eft-
ir Böðvar Guðmundsson, og hinn hóp-
urinn flutti söngleikinn Mógli. Krakk-
arnir sungu saman og sýndu dans sem
þau lærðu í danskennslu í vetur. Eftir
útskriftina voru veitingar í boði foreldra-
félagsins og foreldra barnanna sem lögðu
til á sameiginlegt hlaðborð. Nokkrir af
krökkunum hætta í leikskólanum strax
um næstu mánaðamót, en önnur síðar í
sumar. Öll hefja þau nám í Grunnskól-
anum í haust og mynda óvenju fjölmenn-
an árgang.
Íþróttakennslan utanhúss | Mikið
fjör hefur færst íþróttalíf nemenda
Grunnskólans sem nú iðka allar íþróttir
og æfingar utandyra. Í fyrstu gæti
manni virst að markmiðið væri að nýta
góða veðrið til útiveru og að fá ferskt
,,vor-súrefni“ í lungun. Ástæðan mun þó
fyrst og fremst vera sú að verið er að
leggja nýtt parket á gólfið í sal íþrótta-
miðstöðvarinnar og því ekki möguleiki á
innanhúsleikfimi. Efir sem áður fara allir
í sturtu og sundlaugin stendur alltaf fyr-
ir sínu.
,,Survivor“ SPM | Nú stendur yfir
sýning í Sparisjóðnum, bæði á Borg-
arbraut 14 og í Hyrnutorgi, á myndum
sem teknar voru í „Survivor-ferð“ Spari-
sjóðsins. Krökkum á aldrinum 13–16 ára
sem lögðu launin sín inn á reikninga í
Sparisjóðnum var boðið í slíka ferð í
fyrrasumar. Leikurinn verður endurtek-
inn í sumar og þeim sem hafa áhuga á að
vera með er bent á að skrá sig hjá þjón-
ustufulltrúum í Sparisjóðnum.
Nýr forstöðumaður | Ása Harð-
ardóttir hefur verið ráðin til Safnahúss
Borgarfjarðar í stöðu forstöðumanns.
Safnahúsið er stofnun í eigu sveitarfélag-
anna í Borgarfirði og sunnan Skarðs-
heiðar. Það hefur að geyma héraðs-
bókasafn, skjalasafn, listasafn,
byggðasafn og náttúrugripasafn. Vegna
fjárhagsvanda hefur verið dregið úr
starfsemi stofnunarinnar tímabundið en
sýningar verða eftir sem áður í sumar á
afgreiðslutíma hússins.
Úr
bæjarlífinu
BORGARNES
EFTIR GUÐRÚNU VÖLU ELÍSDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Sýningin Handverkog list verður opnuðí Íþróttahúsinu við
Sunnubraut í Keflavík í
dag, klukkan 12. Sýningin
verður opin laugardag og
sunnudag frá klukkan 12
til 18.
Menningar-, íþrótta- og
tómstundasvið Reykja-
nesbæjar stendur fyrir
sýningunni og er þetta í
þriðja sinn sem hún er
haldin. Að þessu sinni er
hún liður í Frístundahelgi
í Reykjanesbæ.
Þátttakendur koma víða
að en stærstur hluti þeirra
er af Reykjanesi. Sýningin
á að gefa góða mynd af því
handverki sem unnið er á
Íslandi og þar gefst hand-
verks- og listafólki tæki-
færi á að vekja athygli á
verkum sínum.
Handverk
BLÁA lónið og Samtök
psoriasis- og exem-
sjúklinga (SPOEX) hafa
gert með sér samstarfs-
samning sem meðal ann-
ars felur í sér stuðning
Bláa lónsins við samtökin.
Grímur Sæmundsen,
framkvæmdastjóri Bláa
lónsins, og Valgerður
Auðunsdóttir, formaður
SPOEX, undirrituðu.
Bláa lónið styður meðal
annars formann SPOEX
til ferðalaga til að kynna
starfsemi samtakanna og
öðlast alþjóðleg tengsl og
þekkingu, að því er fram
kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Bláa lónið styður SPOEX
Í kennaraverkfalli varort limra um AlbertGuðmundsson fjár-
málaráðherra – áður
knattspyrnumann:
Liðin er tíð minnar trúar á
tuddann sem launþega púar á
og ég held að héðan
sé fljótfarið með’hann
í bílferð austur að Brúará!
Albert átti þá tík sem
hann hélt í trássi við lög
og rétt í Reykjavík og
Stefán Þ. Þorláksson orti:
Menn eru teknir að trúa á
að tíkarhirðirinn snúi á
BSRB
og sennilegt sé
að hann syndi fimlega í Brúará!
Er forseti Íslands flýtti
heimkomu út af fjölmiðla-
frumvarpinu, barst limra:
Hver einasti fjölmiðill fjallar
um forsetans heimsreisur allar:
Hann forðum á tíðum
var fjarri á skíðum
en fer heim þegar Baugurinn kallar.
Synt í Brúará
pebl@mbl.is
Reyðarfjörður | Þessi litli pjakkur, Hreimur Máni
Kristinsson, klifraði upp í voldugan lyftara á véla-
verkstæði Heklu á Austurlandi ehf., tók í stýrið og
hefur ef til vill hugsað: Vild’ ég væri vélakall!
Hann hafði, eins og svo margt ungviðið, brennandi
áhuga á öllum þeim vélum og bílum sem voru til
sýnis þar á opnunardegi fyrirtækisins fyrir
skömmu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Vild’ ég væri vélakall!
Sýning
SVEITARFÉLAGIÐ Ölfus hefur lýst yfir
vilja sínum til þess að koma að uppbygg-
ingu sædýrasafns í Þorlákshöfn í framhaldi
af þingsályktunartillögu sem fram kom á
Alþingi. Einnig hefur bærinn boðist til að
taka við hluta af starfsemi Hafrannsókna-
stofnunar og tengja báta- og vélasafn Þjóð-
minjasafnsins við þessa starfsemi.
Í ályktun sem samþykkt var í bæjarráði
á dögunum er þeirri skoðun lýst að sæ-
dýrasafn falli einstaklega vel að ímynd
Þorlákshafnar, sem er sjávarþorp í fimm-
tíu kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.
Bæjarstjóri Ölfuss hefur sent forsætis-
ráðherra bréf þar sem hann kemur þessari
samþykkt á framfæri og er það birt á vefn-
um sudurland.net. Jafnframt kemur fram
að bæjarstjórn telji að líta beri á málið í
víðara samhengi og skoða þann möguleika
að flytja skipastól og hluta af starfsemi
Hafrannsóknastofnunar til Þorlákshafnar.
Verið sé að stækka höfnina og auðvelt
verði að koma til móts við þarfir stofnunar-
innnar.
Loks er stungið upp á því að báta- og
vélasafn Þjóðminjasafnsins sem sagt er að
sé húsnæðislaust verði tengt þessari starf-
semi. Er því lýst yfir að bæjarstjórn sé
reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að
koma upp varanlegu húsnæði og sýning-
araðstöðu fyrir safnið.
Bjóða aðstöðu
fyrir sædýra-
og bátasafn
Reykjanesbær | Bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar á von á svari frá heilbrigð-
isráðherra í þessum mánuði við umsókn
bæjarins um framkvæmdaleyfi fyrir
hjúkrunarheimili í bænum.
Árni Sigfússon sagði á íbúafundi í
Innri-Njarðvík í vikunni að mestar líkur
væru á að hjúkrunarheimilið yrði byggt
þar sem Njarðvíkurvöllurinn er nú ásamt
annarri þjónustu í þágu eldri borgara.
Verið er að skipuleggja svæðið og jafn-
framt unnið að grunnlýsingu fyrir hús-
næði hjúkrunarheimilisins.
Ekkert hjúkrunarheimili er í Reykja-
nesbæ en bærinn á aðild að Garðvangi í
Garði. Þá hafa áherslur breyst í rekstri
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Í D-
álmu stofnunarinnar er nú almenn
sjúkradeild en því er haldið fram að upp-
haflega hafi átt að vera þar hjúkrunar-
deild. Í framhaldi af umræðum um vanda
aldraðra sótti bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar um framkvæmdaleyfi við nýtt
hjúkrunarheimili og er svars að vænta í
mánuðinum.
Svar væntanlegt
í mánuðinum
♦♦♦
Húsavík | Sigurður Kr. Guðmunds-
son, hamskeri frá Akureyri, hélt á
dögunum sýningu á Húsavík, þar
sem hann sýndi fugla og önnur dýr
sem hann hefur stoppað upp. Verkin
voru um þrjátíu og af þrjátíu til
fjörutíu tegundum. Flest uppstopp-
uðu dýrin eru í einkaeigu. Sýningin
stóð yfir helgi og var stöðugur
straumur fólks á hana alla helgina.
Sigurður kvaðst vera mjög ánægður
með aðsóknina og taldi að á fjórða
hundrað manns hafi komið og séð
verk hans.
Morgunblaðið/Hafþór
Sigurður Kr. Guðmundsson við einn glæsilegan uppstoppaðan fugl.
Sýndi uppstoppaða fugla og dýr
Áhugi á verkum hamskerans