Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 26
AKUREYRI
26 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FORNÁM - Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á
æðra skólastigi
Myndlistaskólinn á Akureyri ehf. býður upp á hnitmiðað 39 eininga
nám í sjónlistum veturinn 2004-2005. Námið er skipulagt með
hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og
tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar og
hönnunar.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 24. maí nk.
ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka.
Sérstök inntökunefnd fjallar um umsóknir og ákvarðar um inntöku.
Við inntöku er tekið tillit til fyrra náms og starfsreynslu. Auk þess
eru innsend verk umsækjenda metin af inntökunefnd skólans.
Miðað er við að umsækjandi hafi lokið a.m.k. 104 einingum í
framhaldsskóla eða hliðstæðu námi sem inntökunefnd metur gilt.
Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals
dagana 26. maí til 31. maí, telji hún ástæðu til.
Fagurlistadeild-myndlist.
Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem
veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega
þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík
viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni.
Listhönnunardeild-grafísk hönnun.
Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega
framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur
yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu sem gerir þá hæfa til að
fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla eða
margmiðlun.
Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum
með því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa
rannsóknarritgerð.
Með prófskírteini fylgir skrá um námsárangur nemenda allan
skólaferilinn ásamt umsögn prófdómara um lokaverkefni.
Námseiningar: 90
Myndlistaskólinn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 602 Akureyri
http://www.myndak.is/ - info@myndak.is
SÉRNÁMSDEILDIR
Umsóknarfrestur um skólavist er til 24. maí 2004.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 462 4958
Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku
nýrra nemenda fyrir skólaárið 2004-2005
ÍBÚUM í sambýlinu við Bakkahlíð
39 hefur borist góð gjöf, 8 sér-
hannaðir stólar fyrir aldraða, en
það var Félag aðstandenda als-
heimersjúklinga á Akureyri sem
kom færandi hendi og afhentu
stjórnarmenn í félaginu sambýlinu
gjöfina. Stólarnir eru þýskir, en á
þeim eru m.a. lítil hjól sem auð-
velda fólkinu að draga sig að borði
eða færa sig frá því. Heimilismenn
voru himinlifandi með þessa góðu
gjöf og sögðu að hún kæmi sér af-
ar vel. Stólarnir kostuðu um 200
þúsund krónur. Félagið hefur á
stefnu sinni að gefa eina stóra gjöf
á ári og skiptir sér á milli heimila
og stofnana bæjarins. Fyrir tveim-
ur árum kom gjöfin einnig í hlut
sambýlisins við Bakkahlíð, en þá
var gefinn svonefndur skemmtari
sem stytt hefur heimilisfólki
stundir. Fjár er aflað með fé-
lagsgjöldum sem og sölu minn-
ingar- og jólakorta. Brit Bieltvedt
forstöðumaður Öldrunarþjónustu
Akureyrarbæjar sagði stuðning
sem þennan ómetanlegan og þakk-
aði umhyggju og velvild félagsins í
garð íbúanna. „Þetta fólk leggur
mikið á sig, oft við erfiðar að-
stæður,“ sagði hún. Helga Frí-
mannsdóttir sem veitir heimilinu
forstöðu sagði íbúunum mikils
virði að fá heimsóknir, það væri
notalegt að finna þá tryggð sem
margir sýndu heimilinu.
Gaf sér-
hannaða
stóla
Morgunblaðið/Kristján
Íbúar í sambýlinu við Bakkahlíð 39 ánægðir með nýju stólana sem þeim voru færðir að gjöf.
BSO 75 ára
75 ár verða á mánudag, 17. maí, liðin
frá því Bifreiðastöð Oddeyrar tók til
starfa í húsi Axels Kristjánssonar
við Strandgötu á Akureyri. Það var
Vilhjálmur Jónsson sem stofnaði
stöðina samkvæmt upplýsingum frá
Stefáni Helgasyni bifreiðastjóra.
Í auglýsingu frá þessum tíma er
þess getið að Bifreiðastöð Oddeyrar
leigi opnar og lokaðar bifreiðir af ný-
tískugerð til lengri eða skemmri
ferða. Þá voru einnig til reiðu bifreið-
ir til vöruflutninga og afgreiðslan var
opin allan sólarhringinn.
Árið 1936 keypti Þorvaldur Stef-
ánsson BSO af Vilhjálmi og rak í 16
ár. Þá keyptu Pétur og Valdimar
Jónssynir stöðina en ári seinna, 1.
mars 1953, keyptu 13 bifreiðastjórar
stöðina í sameiningu og stofnuðu
Starfsmannafélag BSO hf. Þetta
voru þeir Áki Kristjánsson, Garðar
Guðjónsson, Garðar Svanlaugsson,
Georg Jónsson, Gísli Sigurjónsson,
Guðmundur Jónasson, Höskuldur
Helgason, Jóhann Jónsson, Júlíus
Ingimarsson, Magnús Snæbjörns-
son, Ólafur Jónsson, Stefán Helga-
son og Tryggvi Gestsson.
MILDI þykir að ekki fór verr þegar
bíl var ekið út af þjóðvegi 1, við bæinn
Hrísgerði í Fnjóskadal, í gærmorgun.
Óvíst er um tildrög slyssins, en bíllinn
fór yfir veginn, niður eftir gili og hafn-
aði á hvolfi yfir læk, rétt við bakkann
á Fnjóskánni. Ekki mátti miklu muna
að bifreiðin lenti ofan í ánni. Bílstjór-
inn var einn á ferð og á austurleið
þegar óhappið varð. Hann sat fastur í
bílnum hátt í klukkustund áður en að
var komið, samkvæmt upplýsingum
frá Slökkviliði Akureyrar, sem sendi
tvær sjúkrabifreiðar á staðinn og
tækjabíl. Hann gat sjálfur látið vita af
sér til Neyðarlínu. Tókst honum að
finna farsíma sinn og tilkynna um
slysið. Bíllinn sást ekki frá veginum,
sem er töluvert ofar en slysstaðurinn,
og hafði ökumaður heyrt í bílum fara
hjá á meðan hann sat fastur og bjarg-
arlaus í bifreið sinni. Grunur lék á að
maðurinn hefði hlotið háls- og
hryggáverka í slysinu.
Ljósmynd/Björgvin Kolbeinsson
Mildi þykir að ekki fór verr þegar bíll lenti út af þjóðveginum í Fnjóskadal
og var nálægt því að hafna út í ánni.
Fastur í bílnum og
heyrði bílum ekið hjá
Sumarstarf
í Laufási
SUMARSTARF í Laufási hefst í
dag, laugardaginn 15. maí. Fardag-
ar eru í gamla bænum og hefur ver-
ið sett upp sýning á munum tengd-
um þeim. Veitingar verða seldar í
gamla prestshúsinu í Laufási.
Búsetu í Laufási má rekja allt aft-
ur til heiðni en í elsta hluta gamla
bæjarins sem nú stendur er talið að
séu viðir allt frá 16. og 17. öld. Bær-
inn var endurbyggður af mikilli
reisn í tíð séra Björns Halldórsson-
ar sem sat staðinn árin 1853–1882.
Laufásbærinn er stílhreinn bursta-
bær, dæmigerður fyrir íslenska
bæjagerð þess tíma, en þó allmiklu
stærri. Algengt var að tuttugu til
þrjátíu manns væru til heimilis í
Laufási, því margt vinnufólk þurfti
til að nytja þessa gróðursælu kosta-
jörð en henni fylgdu mikil hlunnindi.
Laufásbærinn er nú búinn hús-
munum og áhöldum líkast því sem
tíðkaðist í kringum aldamótin 1900.
Í kirkjunni, sem var byggð 1865, er
meðal annars predikunarstóll sem
ber ártalið 1698. Við austurgafl
kirkjunnar stendur eitt elsta reyni-
tré landsins frá 1855.
Í fyrra heimsóttu rúmlega 14.000
ferðamenn Laufás.
Gamli bærinn er opinn daglega
frá 15. maí til 15. september frá 10–
18.
HÖLDUR ehf. á Akureyri heldur um
þessar mundir upp á 30 ára afmæli
fyrirtækisins. Af því tilefni verður
fyrirtækið með veigamikla afmælis-
dagskrá á fjórum starfsstöðvum sín-
um á Akureyri í dag, laugardaginn 15.
maí frá 12–16. Ýmislegt verður til
gamans gert, Karlakór Eyjafjarðar,
Afabandið og Circus Atlantis með
eldlistafólk, trúða o.fl. munu
skemmta fólki, léttar veitingar verða í
boði á öllum stöðum, leiktæki fyrir
börnin verða og laufléttur spurninga-
leikur í gangi þar sem 30 veglegir
vinningar eru í boði. Höldur ehf. var
stofnað 1. apríl 1974 og lengi kennt
við svokallaða Kennedy-bræður, en á
síðasta ári urðu eigendaskipti á fyr-
irtækinu þegar Steingrímur Birgis-
son, Bergþór Karlsson o.fl. starfs-
menn fyrirtækisins keyptu
fyrirtækið. Það hefur lengi verið eitt
af stærri fyrirtækjum á Akureyri og
sennilega hvað þekktast fyrir Bíla-
leigu Akureyrar sem er ein stærsta
bílaleiga landsins með um 800 bíla í
rekstri í sumar. Stærsta starfsstöð
bílaleigunnar er í Reykjavík en alls
eru útibúin 10 víðsvegar um landið. Á
Akureyri rekur fyrirtækið ásamt bíla-
leigunni, bílasölu nýrra og notaðra
bíla í umboði Heklu og Bernhard, bif-
reiðaverkstæði og dekkjaverkstæði,
og þar eru aðalstöðvar fyrirtækisins.
Hjá Höldi vinna í dag 85 manns en
fjölgar þegar líður á sumarið.
Bílbeltasleði VÍS verður á Bílasölu
Hölds á Þórsstíg og þar getur fólk
fengið að reyna hvernig það er að
lenda í árekstri á 20 km hraða, þar
verður einnig glæsileg bílasýning þar
sem allir nýjustu bílarnir frá Heklu
og Bernhard verða sýndir, sem og
tjaldvagnar og húsbílar frá Segla-
gerðinni Ægi.
Höldur heldur upp
á 30 ára afmæli
Fræðsludagur | Kynningar- og
fræðsludagur um öldrunarmál
verður í Glerárkirkju í dag, laug-
ardaginn 15. maí, frá kl. 10 til 16.
Þar verða flutt erindi um ýmis mál
er varða aldraða, s.s. félagslíf, nær-
ingarráðgjafi flytur erindi og eins
verður fjallað um það þegar fólk
hættir að vinna sem og um virka
aldraða, en með þessum fræðslu-
degi lýkur vikudagskrá með yf-
irskriftinni: Litríkt vor – virkir
eldri borgarar.
Vorfundur | Aglow-samtökin halda
árlegan vorfund sinn í sam-
komusalnum í Víðilundi 22 á mánu-
dagskvöld, 17. maí, kl. 20. Hafliði
Kristinsson fjölskyldu- og hjónaráð-
gjafi flytur hugleiðingu.
ELLEFU nýjar sýningar verða opn-
aðar á Safnasafninu á Svalbarðs-
strönd á morgun, laugardaginn 15.
maí, kl. 13. Á neðri hæð eru listamenn
á flöskum eftir Jón Laxdal Halldórs-
son á Akureyri, málverk eftir Valdi-
mar Bjarnfreðsson í Reykjavík og lítil
kynning á íslenska þjóðbúningnum.
Á annarri hæð eru myndir eftir
Stefán Jónsson frá Möðrudal, tálgað-
ir fuglar eftir Ágúst Jóhannsson og
leirverk eftir Olgu Dmitirevu á
Hvammstanga, einnig málaðir trjá-
bútar eftir Hallfríði Svavarsdóttur á
Svalbarðseyri, sýnishorn af saum-
gerðum eftir Sigrúnu Ingibjörgu
Ingimarsdóttur í Reykjavík og kynn-
ing á verkum eftir 19 nemendur Fjöl-
menntar á Akureyri.
Í Hornstofu er innsetning á verk-
um eftir Joris Rademaker og í garð-
inum tvær sýningar, önnur á skraut-
fuglum eftir nemendur Valsárskóla,
en hin á tréskúlptúrum eftir Aðalheiði
S. Eysteinsdóttur á Akureyri.
Safnasafnið er opið daglega frá kl.
10 til 18.
Safnasafnið á
Svalbarðsstönd
Ellefu
sýningar