Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 32

Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 32
Frederick Stibbert, sem varsérvitur og smekkvís safn-ari, byggði þetta heimili eða safn sem hýsir safnmuni hans nú í Flórens á Ítalíu en hann viðaði að sér þessum munum á árunum 1870 til 1906. Þar á meðal eru mikilvæg- ustu japönsku vopnin og stríðsbún- ingar sem til eru utan Japans. Oft neyðast japanskir fræðimenn til að gera sér ferð til Flórens til að ljós- mynda dýrmætustu hjálmana og stríðsbúningana til að setja í bækur sínar er lúta að hernaðarsögu Jap- ans. Þegar gengið er um sali Stibbert- safnsins virðast stríðsbúningarnir vera verk eftir súrrealískan málara og þúsund ára gömul sverðin skera enn þann dag í dag eins og rakvél- arblöð. Stríðsbúningar og hnífsblöð Í Stibbert-safninu eru rétt innan við hundrað stríðsbúningar frá ár- unum 1520 til 1860, á þriðja hundrað hnífsblöð og um tvö hundruð hjálm- ar og er það mikilvægasta japanska hjálmasafnið í heimi. Auk þess er hægt að skoða fatnað, málverk, hnakka og lökkuð, skreytt ístöð, boga, örvar og fána. Það er meira að segja líkan í smámynd af sam- úræjum, sem er nákvæmlega eins og upprunanlegu líkönin sem voru búin til fyrir ríka safnara. Í Stib- bert-safninu er semsagt hægt að skoða allt það sem þarf til að kynn- ast hinum heillandi heimi stríðs- mannanna sem stjórnuðu pólitísku og hernaðarlegu lífi í Japan en auk þess höfðu þeir áhrif á list, ljóð og meira að segja smekk. Á japönsku þýðir samúræi sá sem þjónar, eða sá sem fer eftir hern- aðarlegum skipunum lénshöfðingja. Þessir atvinnustríðsmenn voru uppi frá 10. til loka 18. aldar og stjórnuðu Japan. Dulmálslykill samúræjanna gekk í erfðir frá föður til sonar þangað til í lok 17. aldar en síðan var dulmálslykillinn gerður skrif- legur. Á Stibbert-safninu geta áhugasamir fræðst nánar um stríðs- mennina. Málverka- og postulínssafn Í safninu er einnig málverkasafn frá 16. til 18. aldar. Í vistarveru sem kallast litla hollenska stofan eru málverk eftir flæmska listamenn. Elstu málverkin í safninu eru: María mey eftir Botticelli, María mey með Jesúbarnið eftir Verucchio og málverk af Francesco dei Medici sem er talið vera eftir Bronzino. Í postulínssafninu er mikilvægt safn af verðmætum keramík- og postulínsantíkhlutum. Einnig eru 19. aldar hlutir til að sýna þróunina í keramík- og postulínsgerð. Stibbert safnaði hern- aðarbúningum, vopnum og skotvopnum aðallega frá 17. til 19. aldar en einnig eru þar hlutir frá 15. öld og fornleifamunir. Búningarnir eru að stærstum hluta frá 16. öld og eru þeir ítalsk- ir, þýskir og franskir. Stibbert var mjög hrifinn af Napóleon I. og er í evrópska hersafninu búningur hans. Íslamska hersafnið er í tveimur söl- um og koma hlutirnir frá hinum múslimsku Mið-Austurlöndum. Lík- legast er hluti af því frá því þegar afi Fredericks var landstjóri í Ben- gal á Indlandi á seinni hluta 17. ald- ar. Fredrerick Stibbert keypti í lok 19. aldar eftir tvístrun vopnabúrs heilagrar Irene í Konstantínópel mikið magn af hernaðarhlutum. Japanska hersafnið er í þremur sölum en það er frá tímabili Morno- yama og Edo frá árunum 1568 til 1868. Þar eru einnig herbúningar frá Kína og Kóreu. Arkitektinn Poggi breytti garð- inum úr venjulegum garði í róm- antískan enskan garð en í garðinum eru lítil musteri, hellar og tjarnir. Þar eru garðhús þar sem Stibbert hafði sítrusávaxtatré og viðkvæmar plöntur á veturna og hesthús og egypskt musteri. Mikilvægir stríðsbúningar eru til sýnis sem og málverk og postulín.  STIBBERT-SAFNIÐ | Flórens á Ítalíu Japanskir stríðsbúning- ar og vopn Kvikmyndin Síðasti samúræinn vakti athygli og ekki síst fyrir búninga stríðsmannanna. Dýrgripir samúræjanna eru ekki geymdir í Japan heldur í 19. aldar villu í Flórens á Ítalíu. Bergljót Leifsdóttir Mensuali skoðaði safnið. Stibbert-safnið í Flórens Vefslóð: www.museostibbert.it Opið: mánud.–miðvikud. 10:00–14:00, föstud.–sunnud. 10:00–18:00 Lokað á fimmtudögum. Stræt- isvagn nr. 4 frá járnbrautarstöð- inni (stoppistöð Fabroni 3). FERÐALÖG 32 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Góð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgr. gjöld á ugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshver , Danskfolkeferie orlofshver Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk GSM símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU NÆR tveggja alda gamalt fangelsi í Philadelphiu í Bandaríkjunum, Eastern State Penitentiary, er orð- ið vinsæll ferðamannastaður sem laðar að sér um 65 þúsund gesti ár hvert. Fangelsið var tekið í notkun árið 1829 og var það þá einhver vegleg- asta opinbera byggingin sem hafði verið reist í Bandaríkjunum. Fyrstu áratugina var starfsemin rekin samkvæmt kenningum þeirra tíma um „betrunarvist“, en fangarnir 250 hýrðust í einangrun í örlitlum klef- um, þeim var meinað að umgangast hver annan og fengu helst ekki að líta fangaverðina augum. Með til- komu mannúðlegri sjónarmiða varðandi refsivist var einangrunin aflögð, en þegar fangelsinu var lok- að árið 1970 þótti aðbúnaður þó lítt mannbætandi, en þar voru þá vist- aðir um þúsund fangar. Einn þekktasti fanginn sem gisti Eastern State Penitentiary var Al Capone, en hann afplánaði þar dóm frá 1929 til 1930. Gefst ferðamönnum kostur á að skoða klefa hans. Skipulagðar skoðunarferðir um fangelsið voru hafnar árið 1994 og þar er nú rekið safn um sögu þess, sem sífellt fleiri ferðamenn sækja ár hvert.  ÁHUGAVERÐUR STAÐUR | Bandaríkin Fangelsi nú vin- sælt safn Eastern State Penitentiary, 2124 Fairmont Avenue, Phila- delphia, PA 19130. Vefslóð: www.easternstate.org. Nýtt í Kaupmannahöfn Um þessar mundir er verið að opna nýja upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn í Kaupmannahöfn. „Copen- hagen Right Now“ er rétt hjá Tívolínu og þar eru veittar allar upplýsingar um borgina. Auk þess er kaffihús á staðnum og ókeypis aðgangur að Netinu. Fyrsta H.C. Andersen safnið í Kaup- mannahöfn verður opnað 1. júní nk. á Ráðhústorginu. Á næsta ári verða 200 ár liðin frá fæðingu danska skáldsins og verður ýmislegt gert í Danmörku og víðar til að minnast þess. Safnið ber heitið H.C. Andersen Eventyrhuset. Gisting og golf á Mallorca Gistiþjónustan Mallorca Escape býður upp á tuttugu hótel á eyjunni sem Ís- lendingar hafa oft heimsótt í gegnum tíðina. Hótelin eru mismunandi og henta öllum ferðamönnum. Á sömu eyju er hentugt að fara í golf en þar eru alls 19 golfvellir. Matreiðslunámskeið í London Í London er nú hægt að læra hand- tökin af meistarakokkum á veit- ingastöðum þar í borg. Námskeið eru haldin í Holland park og á nokkrum veitingastöðum. Kokkarnir eru m.a. Alan Bird á The Ivy, Mark Edwards á Nobu og Monisha Bharadwaj sem fékk verðlaun fyrir bestu mat- reiðslubókina árið 2003. Námskeið- inu lýkur með hádegisverði. Sjö til tólf manns eru á hverju námskeiði og er verðið frá 140 pundum á mann. Morgunblaðið/Golli www.hcandersen.com www.golfinmallorca.com www.mallorcaescape.com www.tastingplaces.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.