Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 38

Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 38
LISTIR 38 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Listahátíð í Reykjavík 14 . – 31. maí Dagskráin í dag Laugardagur Kl. 11 Miðborgin Litríkur laugardagur. Kl. 13 Hljómskálinn Fágæti, stuttir tónleikar á 20 mín. fresti. Kl. 14.30 Austur- stræti Loftfim- leikaflokkur Vesturports og Artbox. Kl. 15 Gallerí i8 Gabríela Friðriksdóttir opnar einkasýningu sína Kaþarsis. Kl. 15 Listasafnið á Akureyri Kenj- arnar eftir Francisco de Goya. Kl. 16 Listasafn ASÍ Trúnaður – inn- setning og uppákoma Ragnars Kjart- anssonar og Magnúsar Sigurðarsonar. Kl. 16 Háskólabíó Einleikstónleikar með Marc-André Hamelin, píanóleikara frá Kanada. Fyrri tónleikar. Kl. 17 Hallgrímskirkja Karlakór St. Basil-dómkirkjunnar í Moskvu. Fyrri tón- leikar. Kl. 20 Þjóðleikhúsið Þréttándakvöld Rustaveli-leikhússins. Seinni sýning. Kl. 23 Hallgrímskirkja Karlakór St. Basil-dómkirkjunnar. Seinni tónleikar. J eff Koons er ljúfur maður í viðkynningu og heillandi í senn. Hann talar lágri röddu, er brosmildur og hæverskur, atvinnumaður fram í fingurgóma. Hann er risi í heimi myndlistarinnar og eru verk hans af mörgum talin vera beint framhald á starfi brautryðjenda í greininni eins og Marcel Duchamp og Andy Warhol. Í Listasafni Íslands stendur nú yfir sýning á bandarískri samtímalist úr Astrup Fearnley-listasafninu í Osló, en þar er Koons á meðal sýnenda. Þú ert Bandaríkjamaður og notar gjarna hluti úr bandarískum veru- leika sem efnivið, t.d. Michel Jackson og Bleika pardusinn, körfubolta og ryksugur. Hvernig heldurðu að verk- in komi til með að höfða til Íslend- inga? „Ég er fæddur í Bandaríkjunum þannig að það er mitt umhverfi, mín saga, minn menningarbakgrunnur. Eftir því sem ég hef ferðast meira og orðið meiri hluti af hinum alþjóðlega listheimi þá hefur samtalið sem verð- ur til á milli listar minnar og áhorf- enda orðið sífellt alþjóðlegra. En þeg- ar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta allt um að vefja fólk örmum, bjóða það velkomið, sama úr hvaða menningarumhverfi það er. Ég vil hjálpa fólki að sjá og viðurkenna fyrir sjálfu sér að þeirra eigin persónulegi bakgrunnur er fullkominn. List getur látið fólki líða eins og það sé ófull- komið, hún lét mér líða þannig þegar ég var ungur listamaður. Þjóðfélagið og menningin geta látið manni líða eins og maður sé því ósamboðinn og því er list mín alltaf sett fram til að berjast gegn þessum aðskilnaði.“ Þú vilt hjálpa fólki með listinni? „List er það tæki sem ég hef unnið með og listin hefur verið mér örlát, en hvert sem tækið eða aðferðin er þá er málið að miðla til fólks að það sé full- komið eins og það er, með sinn bak- grunn og sögu. Maður á ekki að dæma annað fólk.“ Af viðtölum við þig að dæma, og verkum þínum þegar maður skoðar þau í kjölinn, sér maður að heiðarleiki skiptir þig miklu máli? „Já, það er rétt. Þegar fólk sá fyrst myndir mínar, myndir sem unnar voru undir áhrifum af umhverfi mínu eins það var þegar ég var að alast upp, og notaði hversdagslega hluti sem fólk vill ekki viðurkenna sem al- vöru list, þá voru ekki allir sáttir. Ég gerði þessa hluti til að fólk gæti séð reisnina yfir hlutunum, sómann í þeim, og gæti tekið þá í sátt. En þá vildi fólk ásaka mig um að vera að spila með það, sýna því Kitsch (list- líki-skrauthlutir) en það var alveg öf- ugt. En með tímanum hefur fólk farið að skilja að ég er mjög heiðarlegur í öllu sem ég geri og ég er mjög ánægður með það.“ Notarðu Kitsch-hlutina sem tæki til að ná til fjöldans, eins og þú hefur oft sagt að þú hafir áhuga á? „Ástæðan fyrir því að ég vinn með hversdagslega hluti eins og þessa er að ég vil að við viðurkennum um- hverfi okkar og tökum það í sátt, auk þess sem mér finnst umhverfi mitt svo áhugavert. Í grunninn er áhugi minn sprottinn af spurningunni um hið innra líf í líkamanum, og hið ytra líf, og þetta samtal milli hins ytra og innra, sem okkur finnst öllum áhuga- vert. Þetta er ástæðan fyrir því að ég fór að vinna með tilbúninga (ready- made). Ég sá þá aldrei sem Kitsch- hluti, heldur sem fallega áhugaverða hluti. Þetta eru bara hlutir úr um- hverfinu sem segja áhorfandanum að allir hlutir í kringum okkur séu hluti af gangverki lífsins og náttúrunnar, að allt hafi hlutverk. Í hversdagsleikaseríunni (Banality series) voru verkin handgerð og litu út eins og hlutir í minjagripabúð. Þá vildi ég sýna fólki einhverja hluti eins og þá sem það hafði kannski heillast af sem barn, eins og þegar ég heill- aðist af litlum postulínsstyttum úti í glugga hjá ömmu. Og sú reynsla er rétt eins mikilvægt og sú upplifun sem maður fær af því að horfa á verk eftir Jackson Pollock eða Velasques, jafnvel mikilfenglegri. Þannig að allt er þetta um að láta fólki líða vel með sig og sína eigin reynslu og sögu en ekki láta stjórnast af fylgispekt við samfélagið eða menninguna sem það býr við.“ Talandi um eitt lykilverk þitt á sýningunni, „Michael Jackson og Bubbles“. Þekkist þið Jackson? „Nei. Ég hef þrisvar sinnum átt stefnumót við hann en hann hefur aldrei látið sjá sig. Þegar ég hófst handa við gerð verksins árið 1987 bað ég lögmann minn að hafa samband við Jackson og fá hjá honum myndir og slíkt til að nota við gerð verksins. Hann sendi mér ljósmyndir og Jack- son vissi að ég var að búa verkið til. Í framhaldinu vildi hann koma á vinnu- stofuna og sjá verkið en ég útskýrði fyrir honum að í rauninni væri verkið í smíðum á vinnustofu á Ítalíu. Eitt sinn var hann svo í New York, og spurði hvort ég gæti hitt sig. Ég sam- þykkti það og flaug gagngert frá Evr- ópu til fundar við hann, en hann lét ekki sjá sig. Þá var ég einu sinni í Los Angeles og starfsmenn hans báðust afsökunar á því að hann hefði ekki látið sjá sig í New York og sögðu að hann vildi hitta mig í Los Angeles, en það var sama sagan. Þá hringdu þeir enn einu sinni og báðust afsökunar en ég sagði þeim bara að gleyma þessu, ég nennti þessu ekki. En ástæða þess að ég vann meðMichael í Hversdagsleika-sýningunni var að ég vildi að fólk myndi frelsast, þ.e. verða frjálst til að viðurkenna að þeir hlutir sem komu úr dægurmenninguni væru góðir og gildir sem menning og við- urkenna fyrir sjálfum sér að allt sem þú upplifir er fullkomið. Á sýningunni voru margar aðrar höggmyndir sem voru svona myndlíkingar, eins og til dæmis var höggmynd af Buster Keaton ríðandi á smáhesti myndlík- ing fyrir Jesú að ríða inn í Jerúsalem. Michael Jackson var þarna sem yf- irlýsing um stórstjörnumenninguna og hvernig við blásum stjörnurnar upp. Hann var þarna sem einskonar nútíma Jesú Kristur. Hann minnti mig líka á egypska faraóinn Tutank- hamun, en saga hans er átakanleg eins og saga Jacksons. Það er sorg- legt hvað við leggjum mikið upp úr dýrkun á fræga fólkinu en þetta hef- ur að gera með hið innra og ytra sem ég talaði um hér á undan.“ Hefurðu alltaf stefnt að því að verða „dýr“ listamaður eins og þú ert í dag? „Nei, það var ekki mitt markmið. Mitt markmið með því að gera mynd- list var að vera þátttakandi. Ég vil að verkin mín séu virk í umræðunni, ég hef ekki áhuga á peningum nema vegna þeirrar staðreyndar að ef lista- verk fara að hafa fjárhagslegt gildi þá njóta þau verndar. Annars var ég al- inn upp með það að sjónarmiði að geta séð mér farborða í lífinu og vera sjálfum mér nægur. Þetta snýst líka um að gera það sem mann langar að gera og helga sig því, treysta sjálfum sér og fylgja innsæinu. Þetta eru tækin og tólin sem þú sem ein- staklingur hefur, og ef annað fólk fer að fá áhuga á því, þá er það gott, en þetta er allt sem þú getur gert. En þetta hefur aldrei snúist um pen- inga.“ Heldurðu að það geti truflað skynj- un áhorfanda á myndlistarverk, ef hann er mjög meðvitaður um hátt fjárhagslegt gildi þess? „Ég veit það ekki. Þetta er eins og með annað í lífinu, allt er tengt á ein- hvern hátt. Ég held að fólk hafi alltaf haft áhuga á verkinu [Michael Jack- son og Bubbles] og ég held að pen- ingalegt gildið sem lagt er í það sé bara í samræmi við áhuga fólks á því, og því held ég að peningalegt gildi verksins trufli ekki.“ Á sýningunni er eitt verk úr „Made in Heaven“-seríu þinni með fyrrver- andi eiginkonu þinni, klámstjörnunni Ilonu Staller, Cicciolinu. Hvernig er sambandi þínu við hana og son ykkar háttað í dag? „Syni mínum Ludwig var rænt af heimili mínu árið 1994 og hann num- inn á brott til Ítalíu. Það var mjög átakanlegt fyrir okkur báða, og þetta óréttlæti hefur ekki enn verið leiðrétt og syni mínum ekki skilað þrátt fyrir dómsúrskurði þar um. Þannig að það var mikið óréttlæti framið. En þessi sorgarsaga hefur hjálpað mér að skilja betur skyldur mínar gagnvart mannkyninu, því ég var ekki undir óréttlæti búinn. Það eina sem ég hafði til að halla mér að eftir þetta var myndlistin, og ég reyndi að búa til listaverk sem væru þess eðlis að son- ur minn gæti komið til baka, séð þau og sagt: „Vá, pabbi hætti aldrei að hugsa til mín.“ Þetta var „Hátíðar- serían“ (Celebration). Þessvegna gerði ég verk eins og Blöðru hund (Balloon dog) og fleiri á tíunda áratug síðustu aldar. Ég gaf seríunni þetta nafn eftir að syni mínum var rænt, því verkin áttu að var hátíð til að fagna heimkomu hans, sem varð aldr- ei. Ég var fullkomin manneskjafyrir fyrrverandi konu mína,því öll verk mín snúast um að umbera alla og viðurkenna og skilja fólk og bakgrunn þess, finna reisnina í öllum hlutum. Konan mín fyrrver- andi sagði mér að hún vildi snúa við blaðinu og byrja nýtt líf. Þannig að ég sætti mig við hennar fyrra líf, sögu hennar, bakgrunn. En hún gat hins- vegar ekki sleppt hendinni af sínu fyrra lífi, því persónan sem hún hafði skapað, Cicciolina, færði henni vel- gengni í lífinu, frægð og peninga. Hún er frá fátæku heimili í Ungverja- landi og hafði ekki nægt sjálfstraust til að hætta þessu lífi sem hún lifði. Þannig að þetta er átakanleg saga, en svona er þetta.“ Er enn stirt á milli ykkar? „Ég fæ ekki enn að hitta son minn, þrátt fyrir dómsúrskurði þar um, þannig að við tölum ekki saman, sem er verst fyrir son minn. Ég og Ilona áttum í myndaseríunni að vera tákn fyrir alla menn og allar konur. Myndirnar fjölluðu að vissu leyti um lífið eftir syndafallið, en hefðu líka verið um lífið fyrir synda- fallið því við erum í eins konar Edens- garði. En ég sýni þarna fram á tvær leiðir til að nálgast eilífðina, líffræðilega eða í gegnum kynlíf, og svo á and- legan hátt.“ Eftir þessa seríu varstu lítið áber- andi og það leit út eins og þú værir hættur að vinna í listinni? „Nei, ég hætti ekki. Ég vann mjög vel á þessum tíma, en ég skipti um gallerista sem síðan hætti að fjár- magna framleiðslu verka minna, og það var ein helsta ástæðan fyrir því að ég sýndi ekkert. En ég dró mig líka dálítið til baka vegna þessara forræðismála. Ég svaraði ekki í símann, því ég fékk slæma reynslu af hneykslisfjöl- miðlun, sem var mikil í kringum Ilonu. Ég hélt að blaðamennskan væri starf þar sem reynt væri að koma staðreyndum á framfæri, þar væru siðferðislegar skyldur að baki.“ Hvernig hagarðu framleiðslu á verkum þínum í dag? „Ég er með 32–35 manns í vinnu. Einn hópur vinnur við að mála fyrir mig málverk, annar hópur vinnur að höggmyndum og styttum og enn ann- ar hjálpar mér við tölvuvinnu þar sem ég skipulegg og hanna verkin.“ Er mikil eftirspurn eftir verkunum þínum? „Ég framleiði í raun ekki svo mik- ið. Ég reyni að vanda mig og endur- hanna þar til allt er orðið eins „sterkt“ og mögulega er hægt. Til dæmis gerði ég blómaúti-listaverkið Hvolpinn (Puppy)árið 1992 fyrir utan Bilbao- safnið á Spáni og í kjölfarið vildu allir að ég gerði fyrir þá blómaskúlptúra, sem ég gerði ekki, ekki fyrr en árið 2000 fyrir sýninguna „Le Beauty“ í Frakklandi. Svo er ég með annað stórt útilistaverk í smíðum núna þannig að á tíu árum hef ég bara gert þrjá opinbera skúlptúra, því ég vil að þeir séu sterkir.“ Þú ert með fjölskyldu þína með þér á Íslandi? „Já við reynum að ferðast sem mest saman. Við konan mín Justine, eigum tvo syni, Sean sem er þriggja ára og Kirk sem er 10 mánaða. Við ætlum að reyna að sjá hesta, fossa, heita hveri og jafnvel hvali.“ Gætirðu að lokum sagt mér eitt- hvað um myndlistina í dag, hvert hún er að fara og hvernig þú lítur á þína stöðu innan listheimsins? „Ég þakka fyrir það á hverjum degi að fá að taka þátt í umræðunni, ég tek það ekki sem sjálfsagðan hlut. Ég er þakklátur fólki fyrir að hafa gefið mér tækifæri til að gera þetta, því ég vil leggja mitt af mörkum. Ég held að mín verk, og annarra listamanna undir lok 20. aldarinnar og í byrjun þessarar, snúist um áhorf- andann. Listamaðurinn vill taka ut- anum áhorfandann og verk hans eru þeirra sameiginlega ákvörðun. Ég klára aldrei verk nema að hugsa um hvað áhorfandanum finnst. Ef ég nota grænan og ætla að bæta gulum út í, þá sný ég mér næstum að áhorf- andanum og spyr, hvort sé betra. Á 20. öldinni var þetta nær óhugsandi og var talið veikja listaverkið. Þetta er um samskipti og ást. Þessi til- færsla frá hinni há persónulegu myndgerð yfir til fjöldans er málið. Það sem er hinsvegar mikilvægt er að listhluturinn er alltaf með öllu verðlaus í sjálfu sér og hefur ekkert gildi, fyrr en hann fer að hafa áhrif á fólk og líf þess. Verðmætin verða til þegar áhorfandinn gengur frá verk- inu eftir að hafa upplifað verkið.“ tobj@mbl.is Jeff Koons er einn þekktasti og áhrifamesti listamaður samtímans. Þóroddur Bjarnason ræddi við Koons um myndlistina, peningana, Michael Jackson, Cicciolinu og hversdagsleikann, sem er Koons hugleikinn. Þú ert fullkominn eins og þú ert Morgunblaðið/Einar Falur „Listhluturinn er alltaf með öllu verðlaus í sjálfu sér og hefur ekkert gildi, fyrr en hann fer að hafa áhrif á fólk og líf þess. Verðmætin verða til þegar áhorfandinn gengur frá verkinu eftir að hafa upplifað verkið.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.