Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 45
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 45
TÓNLIST af nýútkomnum hljóm-
diski, Sálmar í sorg og von, verður
kynnt á útgáfutónleikum á morgun
sunnudag í Langholtskirkju kl. 17.
Flytjandi er Kammerkór Langholts-
kirkju ásamt Daða Kolbeinssyni á
óbó, Guðmundi Sigurðssyni á orgel,
Gunnari Gunnarssyni á orgel, Hall-
fríði Ólafsdóttur á flautu og Sigurði
Flosasyni á saxófón. Stjórnandi er
Jón Stefánsson.
„Þetta er annar diskurinn sem við
gefum út með sálmalögum í ferskum
útsetningum,“ segir Edda Möller,
framkvæmdastjóri Skálholtsútgáf-
unnar. Áður er kominn út hljómdisk-
urinn Sálmar í gleði með Schola
Cantorum undir stjórn Harðar
Áskelssonar en þar eru fluttir 27
sálmar úr sálmabókinni.
„Á nýja hljómdiskinum er að finna
26 sálma úr sálmabókinni sem allir
eiga það sameiginlegt að bera and-
blæ vonar í gleði og sorg. Margir
sálmanna eru mikið notaðir við ýmiss
konar helgihald en hér birtast þeir í
nýjum búningi og gera mismunandi
útsetningar geisladiskinn afar fjöl-
breyttan. Má nefna að í átta sálmum
flytja þeir félagar Gunnar Gunnars-
son og Sigurður Flosason spuna.
Nokkur laganna eru í hefðbundnum
útsetningum en nýju útsetningarnar
eru eftir Gunnar Gunnarsson, org-
anista og djasspíanista, og tónskáld-
in Hildigunni Rúnarsdóttur og Þor-
kel Sigurbjörnsson.“
Framundan er útgáfa á þriðja
diskinum með tónlist úr hinum nýja
hluta sálmabókarinnar. „Þetta verða
sálmar með sveiflu, þar sem útsetn-
ingar verða í djassaðri kantinum,“
segir Edda Möller.
Með diskinum fylgja allir textar
sálmanna ásamt númerum þeirra í
sálmabókinni, kápu hannaði Sigrún
Eldjárn og upptökur fóru fram í
Langholtskirkju í febrúar 2004 undir
stjórn Vigfúsar Ingvarssonar hjá
Stafræna hljóðupptökufélaginu.
Útgáfutónleikar
Sálmar
í sorg
og von
Kammerkór Langholtskirkju syngur á Sálmum í sorg og von.
Gjábakki, Kópavogi kl. 14 Vorsýn-
ing eldra fólks í Kópavogi. Meðal
þess sem sjá má á sýningunni eru
silfurmunir, vefnaður, leðurvinna,
postulínsmálun, tréútskurður, vatns-
litamálun, ljóðagerð auk fjöl-
breyttrar handavinnu. Sýningin er
opin til kl. 18, einnig á morgun.
Tónlistarskóli FÍH Rauðagerði 27,
kl. 14 Vortónleikar nemenda á öllum
stigum og hljómsveitir skólans leika.
Allir eru velkomir.
Bókasafn Kópavogs kl. 14 Bóka-
safnið opnar Rússlandsdeild sína en
safninu var úthlutað rússnesku sem
móðurmáli af stjórn samstarfsverk-
efnisins „Bækur og móðurmál“.
Hrafn Andrés Harðarson, forstöðu-
maður Bókasafns Kópavogs setur
dagskrána. Alexandr Rannikh sendi-
herra Rússneska sambandsríkisins
flytur ávarp og afhendir Sigurður
Geirdal bæjarstjóri bækurnar.
Harmonikkuleikari, Vadim Fedorov,
leikur nokkur rússnesk lög.
Hótel Selfoss Svandís Egilsdóttir
opnar sýningu sem hún tileinkar
minningu ömm sinni, Ágústu Krist-
ínu Ágústsdóttur. Sýningin heitir
„Kjólarnir hennar ömmu - Guz-
mania“ og stendur út sumarið.
Árnes kl. 20.30 Vörðukórinn heldur
danskt matar- og menningarkvöld.
Kórinn hefur undanfarin ár flutt tón-
list frá ýmsum löndum á samkomum
sem þessum. Kórinn mun flytja
danska tónlist, Guðrún Ásmunds-
dóttir leikkona segir frá kynnum sín-
um af Dönum og ýmislegt fleira
danskt verður til skemmtunar.
Stjórnandi Vörðukórsins er Stefán
Guðmundsson og píanóleikari Katrín
Sigurðardóttir.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
HÚSBÚNAÐ eftir 31 íslenskan
myndlistarmann er að finna á sýn-
ingunni Hagvirkni, sem opnuð verð-
ur í Sal Hönnunarsafns Íslands við
Garðatorg kl. 15 í dag, laugardag.
Á sýningunni er ýmiss konar hús-
búnaður sem íslenskir myndlistar-
menn frá árunum 1904-2004 hafa
smíðað, aðallega til eigin nota en
einnig til framleiðslu. Nokkrir af
frumkvöðlum íslenskrar myndlistar
voru ýmist handverksmenn að
mennt og/eða hagleiksmenn á tré
og járn, og því lá vel fyrir þeim að
smíða sér – eða láta smíða eftir for-
skrift sinni – húsgögn eða önnur
þarfaþing til einkanota. Í þessum
flokki eru t.d. Ásgrímur Jónsson,
Einar Jónsson, Kristín Jónsdóttir
og Gunnlaugur Blöndal. Með sýn-
ingunni vill Hönnunarsafnið auka
nýrri og lítt þekktri vídd við sögu
íslenskrar húsgagnahönnunar.
Sýningin stendur til 20. júní, en
verður síðan sett upp með viðauk-
um í Listasafninu á Akureyri í júlí.
Opin alla daga nema mánudaga kl.
14-18.
Sýningin er styrkt af Menningar-
borgarsjóði.
Sýning á húsbúnaði
íslenskra listamanna