Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 46
LISTIR
46 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
fyrir píanóleik í alþjóðakeppnum,
m.a. á Spáni, Ítalíu og í Tékklandi.
Síðan árið 1999 hefur Aladár starf-
að sem tónlistarkennari við Tón-
listarskóla Húsavíkur, leikið með
ýmsum kórum og söngvurum á
Norður- og Austurlandi (s.s. Leik-
húskórnum á Akureyri og Kamm-
erkór Austurlands) og leikið ein-
leik með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands í píanókonsert nr. 1
eftir Ludwig van Beethoven.
PÍANÓTÓNLEIKAR með ung-
verska píanóleikaranum Aladár
Rácz verða í Egilsstaðakirkju kl.
20 á sunnudagskvöld. Hann flytur
píanódansa frá síðustu öldum og
fram til okkar daga. M.a. verk eft-
ir J.S. Bach, W.A. Mozart, Fr.
Liszt og Sveinbjörn Sveinbjörns-
son. Aladár fer síðan með þessa
sömu efnisskrá víðar um landið og
í júní leikur hann einnig í Fær-
eyjum.
Aladár Rácz er fæddur í Rúm-
eníu árið 1967. Hann stundaði
fyrst nám í píanóleik við Georges
Enescu tónlistarskólann í Búk-
arest en síðan framhaldsnám við
Tónlistarháskólana í Búkarest og
Búdapest. Einnig hefur Aladár
tekið þátt í mörgum námskeiðum í
Evrópu og sjálfur haldið master-
classnámskeið fyrir píanónemend-
ur. Hann hefur leikið á tónleikum
víðsvegar um heiminn, leikið inn á
geisladiska og unnið til verðlauna
Dansar síðustu alda
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Píanóleikarinn Aladár Rácz.
LEIKHÚSHÁTÍÐ Assitej á Ís-
landi, fyrir börn og unglinga hefst í
dag með sérstakri vígsluhátíð í
Hljómskálagarðinum kl. 13. Upp-
ljómað naut, sem tvær listakonur frá
Ástralíu hafa verið að smíða með
börnum í grunnskólum, þrammar
frá Ráðhúsinu í Hljómskálagarðinn í
fylgd íslenskra og norrænna leikara,
íslenskra kennara, barna og for-
eldra.
Fimm sýningar frá Norðurlönd-
unum og þrjár frá Íslandi verða
sýndar á hátíðinni og er aðgangur
ókeypis á þær allar.Tvær sýningar
eru í Möguleikhúsinu, Tveir menn
og kassi kl. 14 í dag og áþriðjudag kl.
10. Mín jörð þín jörð frá Danmörku
á morgun sunnudag kl. 12 og mánu-
dag kl. 10.30. Í Iðnó eru einnig tvær
sýningar: Sjaldgæfur dagur á lag-
ernum hjá Larsson frá Svíþjóð er
sýnd kl. 15 í dag og á mánudag kl.
17. Íslenska sýningin Rauðu skórnir
er sýnd á sunnudag kl. 16 og mið-
vikudag kl. 10. Öskubuska frá Finn-
landi er sýnd í Klink og Bank í
Brautarholti kl. 15 í dag og þriðju-
dag kl. 17. Gengið er inn Stakkholts-
megin. Í gegnum eldinn frá Íslandi
er sýnt í Tjarnarbíó sunnudag kl. 17
og miðvikudag kl. 11. Íbúarnir –
kubbaleikur frá Noregi er sýnt í
Íþróttahúsi Austurbæjarskóla á
sunnudag kl. 15 og mánudag kl. 11
og Metamorphoses er sýnt í Nor-
ræna húsinu þriðjudag kl. 15 og 19.
Að auki verður Mín jörð þín jörð
sýnd í Samkomuhúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 18. maí kl 10 og 14 og
Sjaldgæfur dagur verður sýndur í
Fjarðabyggð miðvikudaginn 19. maí.
Ókeypis
aðgangur
á barnaleik-
sýningar
Listasafn Kópavogs,
Gerðarsafn
Sýningum Rögnu Fróðadóttur í
vestursal og Rebekku Ránar Sam-
per í austursal lýkur sunnudag.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11–17.
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi
Sýningu nemenda Brekkubæjar-
skóla á Akranesi lýkur á sunnudag.
Þar gefur að líta sýnishorn af verk-
um nemenda í list- og verkgreinum
og þátttöku skólans í Comeniusar-
verkefninu.
Opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 15–18.
Sýningum lýkur
BJÖRG Þorsteinsdóttir opnar sýn-
ingu í sýningarsal félagsins Íslenskr-
ar grafíkur í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu kl. 14 í dag, laugardag.
Yfirskrift sýningarinanr er Streymi
og eru þar 27 vatnslitamyndir, til-
brigði við vatn og ljós, allar unnar á
síðasta ári. Björg hefur um skeið
einkum unnið með vatnslitum og tók
síðastliðið sumar m.a. þátt í
„International Symposium of Baltic
& Nordic Modern Watercolour
2003“ sem haldið var í Zvartavahöll í
nágrenni Riga í Lettlandi.
Björg lauk námi frá Handíða- og
myndlistaskóla Íslands árið 1964 og
stundaði framhaldsnám við listahá-
skóla í Stuttgart og París. Á ferli sín-
um hefur hún málað, teiknað, unnið í
grafík og gert collageverk, haldið yf-
ir 30 einkasýningar og tekið þátt í
fjölda alþjóðlegra samsýninga víða
um heim.
Sýningin stendur til 30. maí og er
opin alla daga nema mánudaga frá
kl. 14–18. Aðgangur er ókeypis.
Tilbrigði við vatn og ljós
Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson
Björg Þorsteinsdóttir við myndir sínar.
♦♦♦
HVAR ætti meiri trúnaður milli
tveggja manna að ríkja en einmitt á
krossinum með sjálfan Jesú Krist á
milli sín? spyrja myndlistarmenn-
irnir Magnús Sigurðarson og Ragn-
ar Kjartansson. Spurningin vaknar
í tilefni af sýningu þeirra sem opn-
uð verður í Listasafni ASÍ í dag.
Innsetningin og uppákoman sem
fram fer í dag bera heitið Trún-
aður, þar sem vinátta listamann-
anna tveggja er gerð að viðfangs-
efni, en þar fara listamennirnir í
hlutverk ræningjanna tveggja sem
krossfestir voru um leið og Jesú
Kristur.
„Þessi sýning byggist öll á þessu
fallega fyrirbæri sem við þekkjum
öll, sem er trúnóið. Vináttan fær út-
rás þegar maður er kominn á
trúnó,“ segir Ragnar Kjartansson
yfir smávindli í Klink og Bank.
„Staðsetningin á krossinum er hins
vegar valin með það í huga, að
hvergi annars staðar í veraldarsög-
unni gæti meira trúnaðarsamtal átt
sér stað,“ bætir Magnús Sigurð-
arson við, líka með vindil.
Hann segir vísunina í ræningjana
á Golgötu þó einungis til þess fallna
að mynda áhugaverða umgjörð um
vináttusamtal þeirra, sem er út-
gangspunktur sýningarinnar. „En
samtalið sjálft – trúnóið – er al-
gjörlega okkar. Við fengum okkur
rauðvín og þegar við vorum orðnir
meyrir, stilltum við okkur upp á
krossunum og tókum samtalið
upp.“
Afrakstur þessa er meðal þess
sem prýðir innsetninguna í Lista-
safni ASÍ, en þar er líka að finna
aldingarð, ljósmyndaskúlptúra og
tíu trúbadora. „Þeir leika allir sama
lagið, sem við höfum samið sjálfir
og heitir Hjartasár. Þarna eru á
ferðinni nokkrir mjög færir og inni-
legir tónlistarmenn.“
Magnús og Ragnar verða sjálfir á
staðnum á uppákomunni í dag,
kannski fullmikið af þeim, að sögn.
„Einn hluti íslenskrar myndlistar
gengur út á að þú heldur sýningu
og vinir þínir koma. Okkar hlutverk
á opnuninni er að faðma vini okkar
og bjóða þá velkomna,“ segir
Magnús. „Og fylgjast með þessum
fallega performans, sem trúbador-
arnir eru,“ bætir Ragnar við.
Af samtalinu við þá Magnús og
Ragnar er ljóst að þeir eru miklir
vinir. Þeir virðast sammála um
hlutina og klára setningar fyrir
hvor annan. „Vinátta okkar er það
sem sýningin byggist á. Þessi stað-
fasta, trausta, þó alltaf brothætta
vinátta. Og okkur fannst liggja
beinast við að nota hana sem efni-
við í sameiginlega sýningu okkar,“
segja vinirnir að lokum.
Sýningin Trúnaður verður opnuð
í dag kl. 16. Hún stendur til 6. júní
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13–17.
Trúnaður á milli vina
Morgunblaðið/Ásdís
Magnús Sigurðarson og Ragnar
Kjartansson eru miklir vinir.
ÚR VESTURHEIMI
JOHN Harvard, sem er af íslensk-
um ættum, verður næsti fylkis-
stjóri Manitoba í Kanada, en hann
hefur verið þingmaður á kanadíska
þinginu undanfarin 16 ár. Glen
Murray lét í vikunni af störfum
sem borgarstjóri í Winnipeg og
tekur sæti Harvards fyrir Frjáls-
lynda flokkinn (the Liberal Party) í
næstu þingkosningum.
John Harvard var þingmaður
fyrir hverfin Charleswood St.
James-Assiniboia í Winnipeg í
fjögur kjörtímabil eða síðan 1988.
Áður var hann fréttamaður í 30 ár,
þar af síðustu 18 árin hjá kanad-
íska sjónvarpinu, CBC, en leysir
nú Peter Liba af hólmi sem fylk-
isstjóri. Harvard er 65 ára.
Gary Doer, forsætisráðherra
Manitoba, fór fyrir sendinefnd frá
fylkinu, sem heimsótti Ísland í
ágúst 2001, og var John Harvard í
hópnum, en hann hefur sýnt ís-
lenskum málefnum mikinn áhuga.
John Harvard verður 23. fylk-
isstjóri Manitoba, en aðeins einu
sinni áður hefur fylkisstjórinn ver-
ið af íslenskum ættum. George
Johnson, læknir frá Gimli, þing-
maður í Manitoba og ráðherra með
meiru, var fylkisstjóri frá 1986 til
1993.
Glen Murray, sem er 46 ára, hef-
ur verið borgarstjóri síðan 1998 og
notið mikilla vinsælda, en hann fór
í opinbera heimsókn til Reykjavík-
ur í ágúst í fyrra. Paul Martin, for-
sætisráðherra Kanada, vildi fá
hann í landsmálin fyrir Frjálslynda
flokkinn og frá því var endanlega
gengið í liðinni viku.
Morgunblaðið/Steinþór
John Harvard til vinstri og Paul Martin, forsætisráðherra Kanada.
John Harvard
verður fylkisstjóri
KANADÍSKA félagið Nordic
Trails hefur opnað skrifstofu á
Skúlagötu 56 í Reykjavík og hefur
þar jafnframt litla íbúð til leigu,
sem er hugsuð fyrir alla en hönn-
uð fyrir Kanadamenn, að sögn
Kents Lárusar Björnssonar frá
Kanada, sem stendur að Nordic
Trails ásamt Vilmundi Kristjáns-
syni.
Kent Lárus Björnsson er frá
Fraserwood í Nýja-Íslandi í Mani-
toba, en hefur starfað á Íslandi
síðan sumarið 2001. Hann hefur
unnið mikið að samskiptamálum
Íslands og Kanada og í fyrravetur
skipulögðu þeir Vilmundur meðal
annars tveggja kvölda kanadíska
menningarhátíð í Reykjavík.
,,Skrifstofan og íbúðin eru liður
í þessu kanadíska-íslenska starfi,“
segir Kent, en félagarnir hafa
ýmsar upplýsingar um Ísland í
íbúðinni, s.s. bækur um Ísland, ís-
lenska geisladiska, kasettur og
myndbönd.
,,Ég hef hugleitt lengi hvernig
ég get best aðstoðað kanadíska
gesti á Íslandi og þetta er viðleitni
í þá átt,“ segir Kent, en félagið
heldur m.a. úti vefnum www.nor-
dictrails.org þar sem allar upplýs-
ingar má finna um starfsemina.
Fjöldi gesta var viðstaddur opn-
unina, þar á meðal Richard Tétu,
sendiherra Kanada gagnvart Ís-
landi, og Almar Grímsson, formað-
ur Þjóðræknisfélags Íslendinga.
Morgunblaðið/Steinþór
Vilmundur Kristjánsson, t.v., tekur á móti gestum en næst honum til hægri
eru Þórey Sveinbergsdóttir, Ásgrímur Jónasson og Almar Grímsson.
Kanadahús opnað
í Reykjavík