Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 49 ✝ Áslaug Jónsdótt-ir fæddist á Siglufirði 16. júní 1916. Hún lést á Ak- ureyri 8. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 20.1. 1887, d. 22.11. 1961 og Anna Egilsdóttir, f. 10.8. 1882, d. 9.1. 1959. Systkini Ás- laugar eru: Hólm- fríður Jónsdóttir, f. 17.6. 1914, d. 5.12. 1993, Jóhannes Jóns- son, f. 31.8. 1915, d. 7.3. 1967, Guðvarður Jónsson, f. 23.11. 1916, d. 22.12. 1996. Ingi- björg Jónsdóttir, f. 22.11. 1917, d. 8.1. 1989, Sigvaldi Jónsson, f. 25.1. 1919, d. 8.7. 1993, Guðbjörg Jóns- dóttir, f. 3.6. 1920, Marsibil Jóns- dóttir, f. 13.10. 1923, d. 30.12. 1991, og Þóra Jóns- dóttir, f. 19.9. 1926, d. 29.5. 1997. Eiginmaður Ás- laugar var Þorsteinn Þorsteinsson, f. 6.1. 1905, d. 4.1. 1985, frá Þrasastöðum á Höfðaströnd. Þeirra börn eru: 1) Þor- steinn Þorsteinsson, f. 1.6. 1936, d. 4.3. 1937. 2) Stefán Hólm, f. 9.11. 1942, maki Guðný Aðal- steinsdóttir, f. 10.6. 1941. Þeirra börn eru Þorsteinn Hólm, f. 10.6. 1962, Einar Hólm, f. 16.5. 1965, Guðni Hólm, f. 2.5. 1968, og Áslaug og Aðalbjörg, f. 7.5. 1976. Útför Áslaugar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stef.) Elsku amma Ása. Með söknuð í hjarta kveðjum við þig, en líka með þakklæti því það er svo dýrmætt að hafa átt þig að og eitt það besta sem börn geta átt er nefnilega amma. Ömmur hafa öðruvísi sýn á líf og leik með börnum en aðrir, þær búa yfir djúpri visku og mikilli þolinmæði. Handavinna var þitt líf og yndi og eigum við ófáar gjafirnar frá þér í þeim efnum, hvort heldur sem það voru sokkaplögg, vettlingar, dúkar eða gardínur. Allt var svo vandað og vel gert. Gjöfin varð dýrmætari því það var frá ömmu Ásu. Og einnig allt jóla- skrautið frá þér, elsku amma Ása, fleiri kassar með útsaumi, prjóni og hekli frá þér. Takk fyrir það allt, elsku amma Ása. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð. Lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Okkur þykir svo vænt um þig. Takk fyrir allt elsku amma Ása. Einar Hólm, Brynja, Arnar Hólm og Magnús Hólm. ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR ✝ Ásdís EsterGarðarsdóttir fæddist 8. ágúst 1948 á Njálsgötu 18 í Reykjavík. Hún lést á Landspítalanum deild 11 E 10. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðrún Magnúsdótt- ir, f. 8. júlí 1924, og Garðar Óskarsson, f. 27 júlí 1927, d. 30. janúar 1990. Ásdís var fjórða í röð sex systkina en fimm þeirra ólust upp á Njálsgötunni. Þau eru Hafdís B. Hannesdóttir, f. 12. júlí 1943, Magnús Garðarsson, f. 8. mars 1946, d. 31. maí. 1990; Sigurborg Garðarsdóttir, f. 27. ágúst 1947, Hafsteinn Garðarsson, f. 3. júlí 1952, og Bryndís Garðarsdóttir, f. 14. janúar 1960, d. 23. maí 1994. Ásdís giftist eftirlifandi eigin- manni sínum Svani Tryggvasyni, f. 20. mars 1943, syni Arnfríðar Benediktsdóttur, f. 1. september 1926, og Tryggva Bjarnasonar, f. 22 janúar 1917, d. 13. október 1997. Ásdís og Svan- ur bjuggu í Grund- arfirði frá árinu 1975. Börn þeirra eru: 1) Garðar, f. 17. nóvember 1968, maki Marzena Kil- anowska, f. 1973, þeirra börn eru: Sandra Anna, Pat- ryk, og Veronika. 2) Arna, f. 23. janúar 1970, maki Júlíus Jóhannsson, f. 1968, þeirra börn eru: Jó- hann Svanur, Linda Ósk og Hugrún Lind. 3) Tryggvi, f. 5. desember 1972, sambýliskona Auður Sig- urðardóttir, f. 1974, börn þeirra: Svanur Birkir, Gunnar Logi og Júlía Ósk. Ásdís starfaði hjá Fiskiðjunni í Grundarfirði í 20 ár og á Heilsu- gæslustöðinni í Grundarfirði í 20 ár. Hún tók einnig mikinn þátt í verkalýðsmálum og sat í stjórn og nefndum Verkalýðsfélagsins Stjörnunnar um árabil. Útför Ásdísar verður gerð frá Grundarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. „Heilsugæslan, góðan daginn, Ásdís.“ Hún hljómar ekki lengur hin geðþekka kveðja sem íbúar Grund- arfjarðar fengu að heyra þegar þeir þurftu að leita til heilsugæsl- unnar með erindi sín smá og stór. Ásdís starfaði með okkur í 20 ár, fyrst sem ræstitæknir og síðan sem móttökustjóri, og með kveðju sinni var hún andlit okkar út á við. Á svo litlum vinnustað sem Heilsugæslustöð Grundarfjarðar er skapast andrúmsloft fjölskyldu- banda og átti Ásdís sinn stóra þátt í að móta það. Fyrir jól og páska var allt skreytt hátt og lágt og heimatilbúna jólasíldin var fastur liður á aðventunni. Kaffitímarnir á morgnana voru alltaf tilhlökkunar- efni. Þeir byrjuðu venjulega svona: „Og hvað er nú að frétta úr bæj- arlífinu.“ Síðan var farið yfir tíð- indi þorpsins síðasta sólarhringinn og í þeirri yfirferð naut frásagn- argleði Ásdísar sín til fulls. Eftir bæjaryfirferðina var rætt um hitt og þetta en furðu oft voru nýjar mataruppskriftir á dagskrá og góð ráð gefin. Við hugsum með miklum söknuði til þessara stunda og minningin um þær mun fylgja okk- ur lengi. Ásdís var virkur þátttakandi í bæjarlífinu og hafði sterkar skoð- anir á landsmálum og lét þær óspart í ljós. Hún sat í stjórn verkalýðsfélagsins Stjörnunnar í fjölda ára og vann þar óeigingjarnt starf. Í fyrrasumar varð hún alvarlega veik og um haustið var ljóst hvert stefndi. Síðan hafa skipst á skin og skúr- ir en aldrei lét Ásdís neinn bilbug á sér finna. Hennar heitasta ósk, að geta verið heima hjá sínu fólki, gaf henni kaftinn sem til þurfti. Við viljum þakka starfsfólki 11E fyrir þeirra umönnun og handleiðslu í veikindum hennar. Nú er þessi ágæta vinkona okkar farin. Fyrir okkur sem þekktum hana er það mikill missir. Við biðjum guð að styrkja Svan, börn og barnabörnin hennar Ásdís- ar sem voru henni svo ómetanlega kær. Hafi hún þökk fyrir samfylgd- ina. Fyrir hönd starfsfólks Heilsu- gæslustöðvar Grundarfjarðar, Alda Björnsdóttir, Hildur Sæmundsdóttir, Hallgrímur Magnússon. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú, að ljósið bjarta skæra, veki þig með sól að morgni. Veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þegar ég heyrði að Ásdís hefði verið kölluð til starfa á öðrum vett- vangi svo ung, þá setti mig hljóða um stund en síðan varð mér ljóst hún myndi vakna aftur með sól að morgni. Horfandi til baka þá varð mér ljóst að hún hafði haft veruleg áhrif á líf mitt og minna. Fyrir það er ég þakklát og ríkari fyrir vikið. Ég kveð hana með orðum Bubba: Farðu í friði, vinur minn kær. Faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær. Aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Svanur, Garðar, Arna, Tryggvi og allir sem syrgja Ásdísi á þessari stundu, megi æðri máttur styrkja ykkur. Inga syss og Amma Villa eru með ykkur í huganum. Hafdís Lilja Pétursdóttir. ÁSDÍS E. GARÐARSDÓTTIR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni und- ir greinunum. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför JÓNASAR SVAFÁRS EINARSSONAR skálds. Fyrir hönd aðstandenda, Sólveig Einarsdóttir, Herdís Björnsdóttir. Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÁMUNDADÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis í Vogatungu 67, Kópavogi, sem lést sunnudaginn 9. maí, verður jarðsung- in frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 18. maí kl. 13.30. Bjarni Hermann Finnbogason, Ragna Jóhannsdóttir, Gissur Axelsson, Hildur Jóhannsdóttir, Grétar S. Kristjánsson, Hlöðver Jóhannsson, Jónína Jónsdóttir, Munda Jóhannsdóttir, Hörður Runólfsson, Steinþór Jóhannsson, Monthiya Hoshi, Magnús Már Kristinsson, Sigrún Grímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug í veikindum og við andlát elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og dóttur, ODDNÝJAR S. AÐALSTEINSDÓTTUR, Stararima 55, Reykjavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks krabba- meinsdeildar Landspíalans (deild 11-E). Halldór Guðjónsson, Aðalheiður G. Halldórsdóttir, Davíð Gunnarsson, Inga Dóra Halldórsdóttir, Magnús Guðfinnsson, Sævar Dór Halldórsson, Hrund Guðjónsdóttir og barnabörn, Guðmunda O. Sigurðardóttir, systkini og makar. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eigin- manns, föður okkar, tengdaföður og afa, BJÖRNS MAGNÚSSONAR, Þórðarsveig 3, Reykjavík. Ingibjörg Björnsdóttir, Ragnheiður B. Björnsdóttir, Ingólfur Ingólfsson, Snorri Björnsson, Sigríður Jakobsdóttir, Björn Björnsson, Ingibjörg Andrésdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför drengsins okkar, ÞÓRÐAR WILLARDSSONAR frá Dalvík, Kárastíg 9, Reykjavík. Þórunn Þórðardóttir, Willard Helgason, Birna Willardsdóttir, Kjartan Guðbergsson, Össur Willardsson, Halldóra Smáradóttir, Birna Kristjánsdóttir, Helgi Jakobsson, Margrét Árnadóttir og ástvinir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.