Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 53

Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 53
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 53 Laugavegi 32 sími 561 0075 REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070 - thor.is GÓÐAR VÉLAR Í GARÐINN OG SUMARBÚSTAÐINN „Bumbubaninn“ sívinsæli gerir sitt gagn. Sláttuorf Hörkuorf fyrir alla sláttumenn. Rafmagnssláttuvélar Öflugir öruggir mótorar. Léttar og meðfærilegar. Grasbox fylgir. Sláttuorf Þau mest seldu. Tilvalin í garðinn og sumarbústaðinn. Dagana 14.-19. júní býðst þér að setjast á skólabekk í Háskóla Íslands og taka þátt í umræðum, tilraunum, vettvangsferðum og heilabrotum um flest milli himins og jarðar. Einvalalið kennara úr hópi starfsfólks og nemenda Háskóla Íslands sjá um kennsluna. Tuttugu og tvö námskeið eru í boði og þú setur saman þína eigin stundatöflu. Hvað vekur áhuga þinn? Viltu vita meira? Skráning í Háskóla unga fólksins er hafin. Líttu inn á www.ung.is og skoðaðu þig um. www.ung.is Skráning er hafin á vefsíðunni HÁSKÓLI UNGA FÓLKSINS Ertu á aldrinum 12-16 ára?* *Háskóli unga fólksins er opinn unglingum fæddum á árunum 1988-1991. NÚ á útmánuðum hefur orðið mikil umræða um valdið í þjóð- félaginu og hvar það lægi. Háskóli Íslands efndi til fróðlegs málþings undir yfirskrift þessa pistils. Á málþinginu voru skiptar skoðanir. Við höfum stjórn- arskrárbundna þrí- skiptingu valdsins, löggjafarvald, fram- kvæmdavald og dóms- vald. Sumir ræðu- menn töldu að framkvæmdavaldið hefði hrifsað vald frá Alþingi. Aðrir töldu að Alþingi væri sá að- ili sem réði. Ég starf- aði á Alþingi nokkra hríð, var formaður þingflokks framsókn- armanna í 14 ár og átti sæti í ríkisstjórn í tvö kjörtímabil og ég hika ekki við að full- yrða að valdið liggur hjá Alþingi. Stjórn- arandstaða á hverjum tíma kvartar undan yfirgangi rík- isstjórnar. Það verður að hafa í huga að í okkar þingræðisskipulagi er hefð fyrir meirihlutastjórnum og að ráð- herrar séu valdir úr hópi þing- manna. Þar af leiðir að ráðherrar eru líka þingmenn og eðli málsins samkvæmt koma þeir að lagasetn- ingu bæði sem frumkvöðlar laga- setningar sem ráðherrar og að af- greiðslu mála sem þingmenn. Ráðherrar eru nú rúm 19% þing- mannahópsins og 35,3% stjórn- arliðsins, þannig að ekki er óeðli- legt að ráðherrar hafi áhrif á Alþingi. Fjórða valdið Fjölmiðlamenn telja ekki alla sög- una sagða með kenningunni um þrískiptingu valdsins og segjast vera fjórða valdið. Vissulega móta fjölmiðlar almenningsálitið og stundum reynir á siðferðisþrek þingmanna að hlaupa ekki eftir kvi- kulu almenningsáliti. Eigendur fjöl- miðlanna hafa þannig aðstöðu til þess að hafa bein eða óbein áhrif. Nærtækasta dæmið er hvernig fjöl- miðlafólk fer hamförum þegar horf- ur eru á að eignarhaldi á hluta Norðurljósasamsteypunnar verði breytt með lagasetningu. Hús- bóndahollusta er forn og lofsverð dyggð. Ég er þeirrar skoðunar að stjórnvöld komist ekki hjá því að reisa skorður við að fjölmiðlar komist allir á örfáar hendur, það væri lýðræðislegri umræðu hættu- legt. Þetta hefðu stjórnvöld þurft að gera fyrr. Hefðu þessi lög verið sett í haust, áður en Baugur keypti Norðurljós, hefði ekki orðið veru- legt fjaðrafok og enginn þurft að vakna upp við „vondan draum“. Betra er þó að vakna upp við vond- an draum en vakna ekki. Ég tel rétt að hindra að Morgunblaðið geti yfirtekið Ríkisútvarpið hf., svo dæmi sé tekið. Aug- ljóslega skiptir máli hver á fjölmiðil, annars hefði eignarhaldi á Fréttablaðinu ekki ver- ið haldið leyndu svo misserum skipti. Öryggisventill Þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms- son, tilkynnti framboð sitt í vor boðaði hann hvassari þátttöku í stjórnmálaumræðunni. Snörp þátttaka í stjórnmálaumræðu kallar á hörð andsvör og gagnrýni. Síðan hefur verið nokkur umræða um valdsvið forseta Íslands. Sam- kvæmt 13. gr. stjórn- arskrárinnar lætur for- seti „ráðherra framkvæma vald sitt“ og í 14. gr. segir að „ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarfram- kvæmdum öllum“. Í 11 gr. segir: „Forseti lýðveldisins er ábyrgð- arlaus af stjórnarathöfnum“. 26 grein stjórnarskrárinnar gerir ráð fyrir að forseti geti synjað laga- frumvarpi staðfestingar, öðlast þá frumvarpið engu að síður gildi „en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosn- ingabærra manna í landinu til sam- þykktar eða synjunnar“. Þetta er þó ekki einfalt mál, þótt ég hafi einu sinni tekið þátt í að skora á forseta að synja lagafrumvarpi staðfestingar. Forseti væri þá op- inberlega kominn í stríð við rík- isstjórn og meirihluta Alþingis og fullkominn trúnaðarbrestur væri þar á milli. Atbeina stjórnvalda þarf augljóslega til þess að þjóð- aratkvæðagreiðsla geti farið fram. Setjum svo að sjónarmið forseta hefði meirihluta í þjóðaratkvæða- greiðslu, þá væri ríkisstjórn ekki sætt lengur og hlyti hún að segja af sér. Sama máli hlyti að gegna um forseta ef hann yrði undir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Forseti Íslands er sameining- artákn þjóðarinnar og fulltrúi hennar út á við, þessu hlutverki hefur núverandi forseti gegnt með sóma hingað til. Það beina vald sem forseti hefur er ef Alþingi kemur sér ekki saman um myndun ríkisstjórnar, þá getur hann skipað utanþingsstjórn sem sæti þangað til Alþingi kysi að samþykkja van- traust á hana. Sveinn Björnsson skipaði utanþingsstjórn 1942, en þá var hann ríkisstjóri. Kristján Eld- járn hótaði tvisvar að skipa ut- anþingsstjórn, annað skiptið um sumarið 1974 þegar stjórnarkreppa varði á þriðja mánuð áður en stjórn Geirs Hallgrímssonar var mynduð. 2. desember 1979 fóru fram alþing- iskosningar og stjórnarkreppa leystist ekki fyrr en 8. febrúar þeg- ar ríksstjórn Gunnars Thoroddsens settist að völdum. Í báðum tilvikum neyddust þingmenn til að grafa stríðsaxirnar og koma sér saman um starfhæfan stjórnarmeirihluta, fremur en þurfa að taka við ut- anþingsstjórn. Samkvæmt áður sögðu er valdið tvímælalaust hjá Alþingi og þar á það að vera. Hvar liggur valdið? Páll Pétursson skrifar um valdið í þjóðfélaginu Páll Pétursson ’Samkvæmt áð-ur sögðu er valdið tvímæla- laust hjá Alþingi og þar á það að vera.‘ Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.