Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 56
SÖNGVAKEPPNI EVRÓPSKRA SJÓNVARPSSTÖÐVA
56 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
´Jónsi er ákaflega afslappaðurog ánægður eftir fyrstulokaæfinguna sem hófstklukkan þrjú á föstudegi að
tyrkneskum tíma. Netverjarnir á
www.esctoday.com voru þegar bún-
ir að kveða upp sinn dóm: „Jónsi frá
Íslandi flutti lagið „Heaven“ af ör-
yggi og leikni.“
Hvernig líður þér, Jón Jósep Snæ-
björnsson, eftir þessa fyrstu loka-
æfingu af þremur?
„Mjög vel, æfingin fór nokkurn
veginn eins og ég ætlaði mér að láta
hana fara. Loksins núna kom þó að
því að ég fengi smá stresssting um
tíu mínútum áður en ég átti að koma
fram. Mér fannst ég gleyma text-
anum, gleyma rútínunni og ruglast
fram og aftur og var rosalega
spenntur. En um leið og ég hóf að
syngja upphafsorðin rifjaðist allt
upp aftur og mér fór að ganga mjög
vel.“
Ekkert stress
Blaðamaður Morgunblaðsins sam-
sinnir því að honum hafi gengið vel.
Og annað sannaðist í eitt skipti fyrir
öll en það er hve vel Jónsi tekur sig
út á sjónvarpsskjánum. Meira má
ekki láta uppi enda er reynt að
halda sem mestu leyndu svo eitthvað
eigi eftir að koma áhorfendum á
óvart í kvöld, laugardagskvöld.
„Það kom mér á óvart að ég skyldi
ekki vera meira stressaður,“ heldur
Jón Jósep áfram og skeytir engu um
skjallið. „Svavar Örn, hár-
greiðslumaður og sminka, tók út
stressið fyrir okkur báða.“ Um-
ræddur útlitssnyrtir staðfestir þetta
og segist hafa fengið ákafan sting í
magann. Þá er að vita hvort eitthvað
hafi komið þessari sjóuðu popp-
stjörnu á óvart.
„Æ, bara hvað þetta var þægilegt
– helv... þægilegt. Þ.e.a.s. hvað það
var notalegt að vera þarna á svið-
inu.“
Það er greinilegt ef borinn er
saman flutningur Jónsa á laginu á
þessari æfingu og á blaðamanna-
fundi fyrr í vikunni að hann heldur
ýmsum möguleikum opnum. Eins og
kona hans, Rósa, skaut að blaða-
manni Morgunblaðsins hefur hann
verið að prófa sig áfram með ýmis
blæbrigði en nú líður að því að hann
negli atriðið niður.
Nú bar á hljóðtruflunum og
vandamálum í sambandi við hljóð-
nema hjá a.m.k. þremur eða fjórum
flytjendum á sviðinu, að þeim ótöld-
um sem kusu einfaldlega að hvíla
raddböndin og syngja ekki á æfing-
unni. Hafðir þú áhyggjur af hljóðinu
hvað þig sjálfan varðaði?
„Það er ákveðinn kostur að vera
aftarlega í röðinni, þá er mikið til
búið að leysa öll tæknivandamál.“
Er eitthvað sem þú gerir alltaf áð-
ur en þú ferð inn á svið eða eitthvað
sem þú varast að gera þessa dag-
ana?
„Ég reyni bara að slaka aðeins á
áður en ég fer inn á sviðið. Ég reyni
ekkert sérstaklega að hvíla röddina,
heldur passa ég að fara snemma að
sofa, vera ekki í sígarettureyk,
drekk ekki einu sinni vín með mat
heldur nóg af vatni og fæ mér svo
einstaka soprano-töflu fyrir háls-
inn.“
Spurður hvort hann hafi kynnst
einhverjum hinna þátttakendanna
sérstaklega segir hann að margir
þeirra séu skemmtilegir en aðrir
reynist ákaflega kaldir. Hann vill
ekki fara lengra út í neikvæða
sálma, enda eigi það ekki við í svona
keppni, en skýtur þó inn í að það sé
ekki skrýtið þó að sumir séu afundn-
ir við aðra keppendur þegar tillit er
tekið til þess að þeir leggi allt undir
til að koma sér á framfæri í þessari
keppni. Hann segist ekki hafa haft
samskipti við marga af hinum kepp-
endunum, meðal örfárra undantekn-
inga sé bosníski þátttakandinn,
Deen, sem sé rosalega vænn og
skemmtilegur strákur. Ruslönu hina
úkraínsku hafi hann hitt og hún sé
mjög hress – alveg svona „himpi-
gimpigella“. Serbneski söngvarinn,
Zeljko Joksimovic, sé líka mjög fínn
en Jónsi segist sjálfur hafa eytt
mestum tíma með Írunum, þeir séu
á sama hóteli og íslenski hópurinn
og séu alveg frábærir.
Þegar hann er inntur eftir því
hvort einhverjir þátttakendanna séu
með prímadonnustæla segist hann
efast um að nokkur komist upp með
slíkt kjaftæði í keppni sem þessari.
Fólk verði að halda sig á mottunni.
Hann kveðst ánægður með allt
skipulag, enda hafi allt gengið rosa-
lega vel. Undirbúningur og útfærsla
svona keppni sé ákaflega stórt og
flókið dæmi og fátt sem geti rústað
jafn endanlega tónlistarkeppni í
sjónvarpi og mistök í upptöku en
fyrir utan smávandamál með hljóð-
nemana sé allt að ganga upp.
Þegar spurt er um hvort borið
hafi á atkvæðaveiðum meðal kepp-
enda segir hann þær gegnumgang-
andi, enda er þetta fyrsta keppnin
þar sem úrslit símakosningar ræður
í löndunum öllum.
„Allir eru að reyna að næla sér í
sem flest atkvæði, m.a. með því að
hrósa lögunum frá þeim löndum
sem fjölmiðlafólkið kemur frá
hverju sinni í hástert, segja þau vera
uppáhaldslögin sín og fleira í þá
veru.“
Sambönd í Svíþjóð
Dæmi um fjölmiðlaumfjöllun af
þessu tagi er þegar sænskur sjón-
varpsmaður krafði Jónsa um ein-
hverja tengingu við Svíþjóð á sam-
norræna blaðamannafundinum fyrr
í vikunni. Jónsi svaraði að bragði að
hann keyrði um á Volvo og að hann
hefði komid fram í ABBA-sýning-
unni á Broadway þrjú ár í röð. Það
kom líka á daginn að hann virtist
vera eini norræni keppandinn sem
var með allan textann við lagið Wat-
erloo á hreinu þegar þeim var gert
að söngla lagið meðan teknar væru
af þeim ljósmyndir í lok fundarins.
En Jónsi bætir alvarlegur við: „En
nú eru bara eftir tvær æfingar og
svo bara aðalmálið og þetta leggst
ákaflega vel í mig allt saman. Ég
þarf að leggja mig alveg ofboðslega
mikið fram. Ég er ánægður með ár-
angurinn sem náðist á þessari æf-
ingu enda hef ég alltaf verið ákveð-
inn að vera einn þeirra söngvara
sem syngja í gegnum allt lagið við
öll tækifæri og slá aldrei af. Þetta
var það sem ég gerði og mér fannst
ég klikka lítið sem ekkert.
Ég held ég haldi mig sönglega séð
við það sem ég hef verið að gera
hingað til en ég kannski bæti aðeins
í það sem ég hef verið að gera á svið-
inu. Við erum náttúrlega með ball-
öðu og ballöðu verður að umgangast
með töluverðri virðingu, það gengur
ekki að vera að stökkva og taka spí-
köt og heljarstökk og svoleiðis. Ég
ætla bara að reyna að syngja með
hjartanu.
Það er töluvert audveldara í
svona keppni að vera með stuðlög,
en áskorunin sem er fólgin í að
syngja ballöðu er meiri.
Fólk verður að muna eftir laginu,
það eru svo mörg lög í keppninni,
vonandi tengist okkar lag einhverju
jákvæðu í huga áhorfenda.
Nú er útkoman bara í höndum ör-
laganornanna.“
/. &-,)$ %(0 $ )0 (%.10%% 02.0-$3 &0 .0.0, %.10(, 0%4 %1 (. /1$% ,%55%036 02.0 7%6 ,08&.0 $ 0 ,$(, (36-.0'$)&%.109
!
!
"#$%##
&
'
()
!
*
+,
- '.#
-
/0
& ,
1
2
3 4
2
5,
-
+)
67
/08
"9%,:
"#$%&& &% &#
' ()
*%'
+, -
808"#
";::
3 4<
Útkoman í höndum
örlaganornanna
Morgunblaðið/Sverrir
Jónsi hefur verið umsetinn af blaðamönnum úti í Istanbúl.
Víða/73
Gerviheimur/74
Jónsi, Jón Jósep Snæbjörnsson, svífur
til himins í kvöld, frammi fyrir allri
Evrópu. Okkar maður í Istanbúl, Sveinn
Haraldsson, ræddi við söngvarann.