Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 61

Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 61
ALDARMINNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 61 Tangarhöfða 1 • 110 Reykjavík • Símar 567 2357 og 893 9957 150 þúsund kr. afsláttur til eldri borgara 60 ára og eldri af CLIPPER 70 Umboð á Akureyri Sigurður Valdimarsson Óseyri 5 Það er tekið að vora fyrir vestan, lömbin farin að jarma, kolla og bliki vaga um fjörusand og steina, lognið og himinblám- inn á vogum og við fjallseggjar, hvort öðru dýpra og tærara. Fáir speglar eiga sér fegurri umgjörð, eng- inn skilar betri mynd, hvort heldur er við undirleik morgun- eða kvöldkyrrðarinnar. Fáir sýndu átthögum sínum vestra meiri rækt í orði og verki en Sigríður Valdimarsdóttir. Sigríður fæddist 14. maí 1904 í Fremri-Arnardal við Skutulsfjörð í Ísafjarðardjúpi. Foreldrar hennar voru Valdimar Jónsson, bóndi og Elín Hannibalsdóttir, kona hans. Þau eignuðust tíu börn, synir þeirra tveir, bræður Sigríðar, Hannibal og Finnbogi Rútur urðu þjóðkunnir menn. Sigríður Valdimarsdóttir talaði oftar um fólkið fyrir vestan en náttúruna svo að ég heyrði. Fram á tíræðisaldur léku nöfn og staðir, ættfærsla, tilsvör og hvers kyns liðin tíðindi á vörum hennar. Áreynslu- og tilgerðarlaust ómaði þessi vestfirska fortíð fyrir eyrum okkar félaga hennar í Vestfirð- ingafélaginu, ekki alltaf mjög margra. Alltaf hins vegar í mikilli virðingu fyrir þessum lifandi sagnaheimi og mannlífi sem í senn var horfið en lifði þó með þessari konu. Sigríður var kona ekki hávaxin en hún hafði mikla nærveru, hljómmikla rödd, björt augu og eftirminnilega hlýtt viðmót þegar hún vildi það við hafa. Hitt fór heldur ekki fram hjá neinum þeg- ar henni mislíkaði. Hún talaði tæpitungulaust, hreinskiptin og frásagnargáfa hennar var blandin kímni og miklum mannskilningi. Hreyfingar hennar voru kvikar og léttar – þrátt fyrir að hún væri komin með staf – þá var hún alltaf að gleyma honum, hugur hennar fór á undan til þess að leggja sig alla í viðfangsefnið, viðmótið og al- úðina. Djúpið, Ísafjörður, Vestfirðirnir allir hafa verið merkileg deigla um 1900. Öldinni fyrr höfðu þau alið Jón Sigurðsson og áfram ólu þeir hvers kyns framtak. Vélbátaöldin, sem hófst við Djúpið, var nánast jafngömul Sigríði, iðnbylting þess tíma. Á unglingsárum þeirra systkina eru verkalýðsfélögin stofnuð og Eyri við Skutulsfjörð, Ísafjörður, verður vagga og vett- vangur átaka, stældi aflið og af- reksfólk. Þegar við komum að átthaga- félögum tvinnast þetta allt saman, náttúra landsins, vorblíðan, logn- værðin, skaflar snævar og sjávar. Hin ferska skynjun nýrra skilning- arvita barnsins, mótun fólksins, vandamanna, félaga og vináttunn- ar. Samkenndin sem í þessu felst SIGRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR og mörgum glöðum stundum er vafalítið fyrsti drifkraftur átt- hagafélaganna og löngunin til að upplifa með öðrum á ný. Henni fylgir, ef vel lætur, virðingin fyrir elju og erfiði foreldr- anna – löngunin til að sjá handarverkin dafna, arfinum haldið við, framfaradraum- ana verða að veru- leika. Það má sjá í fund- argerðabók Vestfirð- ingafélagsins frá 7. apríl 1953 að Sigríður tók ekki alls kostar fús við formennsku í Vestfirðinga- félaginu. Hún lætur þess getið að hún hafi verið kosin fjarstödd af aðalfundi vegna veikinda. Enginn átti hins vegar eftir að verða félag- inu drýgri í metnaði og rausn sem hún kórónaði með stofnun Menn- ingarsjóðs vestfirskrar æsku í minningu Matthildar Hannibals- dóttur móðursystur sinnar árið 1967. Úr þessum sjóði, sem hún lagði sjálf til allt fé, hefur milljónum króna verið varið til þess að styrkja vestfirsk ungmenni til mennta. Undir niðri skynjuðu aðrir löng- un hennar sjálfrar til skólagöngu og söknuð þess að svo gat ekki orðið að marki. Hún unni öðrum hins vegar alls hins besta. Tregða hennar til þess að taka við for- mennsku í félaginu var ekki sprottin af því að hún risi ekki undir því hlutskipti. Henni hefði verið óhætt að hafa sig meira í frammi en hún vildi ekki hreykja sér. Hún var kona hins innra starfs, mannlegra samskipta, ætt- rækni. Í öllu þessu var hún eins og lifandi ímynd alls þess besta sem átthagafélögin standa fyrir. Árin síðan Sigríður dó hefur Vestfirðingafélagið í félagsanda hennar efnt til samkomu á afmæl- isdegi hennar 14. maí. Svo var enn í gærkvöld þegar efnt var til hinn- ar árlegu menningarvöku félagsins í félagsheimilinu Gullsmára í Kópavogi. Aðalsteinn Eiríksson. Fæst í apótekum og lyfjaverslunum ER NEFIÐ STÍFLAÐ? STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. FRÉTTIR 170 STARFSMENN Orkuveitunnar fá fræðslu í vistvænum akstri. Er það fyrst og fremst um að ræða þá starfsmenn, sem að staðaldri aka bílum á vegum fyrirtækisins. Nám- skeiðið er liður í umhverfisstefnu fyrirtækisins og er jafnframt þátt- ur í orkusparnaði, að draga úr kostnaði og auka öryggi starfs- manna í starfi. Kennslan fer þannig fram, að nemandinn ekur tiltekinn hring á sína vísu, en síðan sama hring undir leiðsögn kennarans. Sérstök mæli- tæki í bifreiðinni sýna aksturslag nemandans, mæla bensíneyðslu, hraða og aksturstíma. Á myndinni eru Auður Björg Sig- urjónsdóttir starfsmaður Orkuveit- unnar, og Guðbrandur Bogason ökukennari við sérútbúna kennslu- bifreið. Starfsmenn Orkuveitunnar læra vistvænan akstur SAMTÖK verslunar og þjónustu (SVÞ) mótmæla uppsögn Íslensks markaðar á starfsemi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Uppsögnin er að mati SVÞ gerð í hefndarskyni fyrir þá ákvörðun Íslensks markaðar að kæra Flugstöðina fyrir brot á sam- keppnislögum. Ætla má að uppsögn- in sé öðrum fyrirtækjum í Flugstöð- inni til viðvörunar um að vefengja ekki hin umdeilanlegu vinnubrögð Flugstöðvarinnar sem starfar í skjóli ríkisins. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá SVÞ. „Fyrirtækið, sem þar til fyrir fáum árum var að töluverðum hluta í eigu íslenska ríkisins, rekur aðeins starf- semi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þegar forval var auglýst vegna endurúthlutunar verslunarrýmis í FLE fyrir um tveimur árum var fyr- irtækið mjög ósátt við ákvæði sem þar voru og þrengdu kosti þess. Því sendi það erindi til Samkeppnis- stofnunar og kvartaði yfir þeim at- riðum sem þóttu óviðunandi. Þarna bar e.t.v. mest á því að FLE væri báðum megin borðs, þ.e.a.s. sem leigusali en jafnframt verslunar- eigandi og rekstraraðili sem úthlut- aði sjálfum sér feitustu bitana úr því vöruvali sem boðið er í FLE. Samkeppnisstofnun samþykkti rök Íslensks markaðar og málið gekk þá áfram og héraðsdómur stað- festi úrskurð Samkeppnisstofnunar. Þá var áfrýjað til Hæstaréttar sem úrskurðaði FLE í vil nú fyrir skömmu. Tæpum sólarhring síðar barst Ís- lenskum markaði uppsagnarbréf vegna leigu í FLE og jafnframt kom fram að fyrirtækið var ekki talið hæft til þátttöku í áðurnefndu forvali sem á nú að fara fram. SVÞ telja að skýringar stjórnenda FLE séu ekki trúverðugar og fráleitt sé að telja fyrirtækið Íslenskan markað, eftir 35 ára rekstur í flug- stöðinni, óhæft til þátttöku í forvali um aðstöðu í FLE. Þarna ráða ekki ferðinni sanngirnissjónarmið og jafnræðisregla. SVÞ telja að í þessari stöðu eigi að heimila Íslenskum markaði þátttöku í umræddu forvali og við samninga í kjölfarið verði öðrum en þeim aðilum hjá FLE og ÍM sem mest hafa deilt falið að ganga frá málum,“ segir í fréttatilkynningunni. Mótmæla uppsögn Íslensks markaðar Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 Sængur, koddar og dýnuhlífar Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 HINN 10. maí sl. rann út um- sóknarfrestur um embætti hér- aðsdómara, sem fyrst um sinn mun ekki eiga fast sæti við til- tekinn héraðsdómstól, sbr. heimild í 1. mgr. 15. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998, en eiga fyrstu starfsstöð við Héraðs- dóm Reykjavíkur. Auk starfa þar verða honum einnig falin verkefni við aðra héraðsdómstóla. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. sept- ember 2004. Um embættið sóttu: Arnfríð- ur Einarsdóttir skrifstofustjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, nú settur héraðsdómari við sama dómstól, Ásgeir Magnús- son hæstaréttarlögmaður, Sig- rún Guðmundsdóttir hæsta- réttarlögmaður og Þorsteinn Pétursson héraðsdómslögmað- ur, starfar nú sem löglærður fulltrúi sýslumannsins á Sel- fossi. Umsækjend- ur um emb- ætti héraðs- dómara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.