Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 65
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 65
Miðbæjarsýningin heldur áfram í
Höfuðborgarstofu Sýningu á til-
lögum sem bárust í hugmynda-
samkeppni Landsbankans um
miðbæ Reykjavíkur verður fram
haldið í Höfuðborgarstofu í Ingólfs-
nausti. Sýningin mun standa til loka
þessa mánaðar og er opin til kl. 18
alla daga vikunnar.
Í DAG
Flórgoðadagurinn Hinn árlegi flór-
goðadagur Fuglaverndar og Um-
hverfisnefndar Hafnarfjarðar verð-
ur við Ástjörn í Hafnarfirði á
morgun, sunnudaginn 16. maí, kl.
14–16. Fuglaskoðarar verða á staðn-
um og upplýsa gesti um flórgoðann
og sýna þeim fjölbreytt lífríki nátt-
úruperlunnar Ástjarnar. Ástjörn er
syðst í Hafnarfirði austan Reykja-
nesbrautar og er farið að tjörninni
um hið nýja Áshverfi. Mæting á
göngustígnum í Grísanesi.
Nánari upplýsingar á www.fugla-
vernd.is
Á MORGUN
Íþróttasamband fatlaðra tuttugu
og fimm ára. Í tilefni 25 ára af-
mælis Íþróttasambands fatlaðra
verður
„opið hús“ í kaffiteríu ÍSÍ, íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal, Engjavegi
6, mánudaginn 17. maí frá kl. 17–
19. Allir velkomnir.
Jarðfræði Hengils og nágrennis
Endurmenntun Háskóla Íslands
heldur námskeið sem ber titilinn
„Jarðfræði Hengils og nágrennis“
þar sem fjallað verður um Hengil
og umhverfi hans. Fjallað verður
um jarðsögu svæðisins, jarðhita og
nýtingu hans, landmótun og áhrif
ísalda á berggerðir, set, sjáv-
arstöðubreytingar o.fl. Námskeiðið
verður í húsnæði Endurmenntunar
að Dunhaga 7, mánudaginn 24. og
þriðjudaginn 25. maí kl. 20.15–
22.15. Farið verður í tvær dags-
ferðir, laugardaginn 29. og sunnu-
daginn 30. maí, til að skoða ýmsa
þætti jarðfræðinnar á staðnum,
jarðhitasvæði í Hengli og Hvera-
gerði.
Námskeiðið er ætlað almenningi,
kennurum, leiðsögumönnum og öllu
áhugafólki um jarðfræði og landið.
Kennarar á námskeiðinu eru þeir
dr. Helgi Torfason, sviðsstjóri jarð-
fræðasviðs Náttúrufræðistofnunar
Íslands, og dr. Hreggviður Norð-
dahl, sérfræðingur við Raunvís-
indastofnun HÍ.
Frekari upplýsingar um nám-
skeiðið er að finna á vef Endur-
menntunar www.endurmenntun.is.
Á NÆSTUNNI
OPIÐ hús verður í Háholti 10 á
Laugarvatni í dag og á morgun,
sunnudaginn 16. maí, kl. 14–18.
Til sýnis verður nýbyggt þriggja
íbúða raðhús sem Pétur Þorvalds-
son, byggingameistari á Laug-
arvatni, hefur byggt og verða tvær
íbúðanna afhentar nýjum eigendum
á laugardaginn.
Guðrún Matthíasdóttir, ein hinna
nýju eigenda, mun sýna myndverk
sín í íbúð þeirra hjóna í tilefni af-
hendingarinnar. Einnig mun Silja
Rós María Auðunsdóttir sýna
myndir sínar en hún er aðeins 11
ára gömul. Þá mun Erna Hrönn Ás-
geirsdóttir, leirlistakona á Hellu,
sýna verk unnin í leir.
Opið hús og
myndlistar-
sýningar
Pétur Þorvaldsson byggingameist-
ari, Hjördís Ásgeirsdóttir kona hans,
Guðrún Matthíasdóttir myndlistar-
kona og Silja Rós Auðunsdóttir.
Á FUNDI hjúkrunarfræðinga, sem
haldinn var á Alþjóðadegi hjúkrun-
arfræðinga 12. maí sl., var samþykkt
eftirfarandi ályktun þar sem stjórn-
völd eru hvött til að bregðast við fá-
tækt á Íslandi:
„Hjúkrunarfræðingar um allan
heim hafa helgað Alþjóðadag hjúkr-
unarfræðinga, 12. maí 2004, barátt-
unni gegn fátækt.
Fátækt er eitt af helstu vanda-
málum mannkynsins en talið er að
um 2,8 milljarðar manna búi við sára
fátækt og skorti þar með nauðsynjar,
svo sem mat, vatn, klæði, húsnæði og
aðgang að heilbrigðisþjónustu.
Sýnt hefur verið fram á að fátækt
er til á Íslandi. Vítahringur fátæktar
og sjúkdóma er þekktur, þar sem
hinir fátæku eru almennt við verri
heilsu en þeir sem betur eru settir fé-
lags- og efnalega í samfélaginu og að
verra heilsufar leiðir til minni vinnu-
getu og lægri tekna. Í samspili fá-
tæktar og sjúkdóma má greina
ákveðna lykilþætti í lífi og aðstæðum
fátæks fólks sem leiða til verra
heilsufars.
Í stefnu Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga í hjúkrunar- og heil-
brigðismálum er lögð áhersla á það
sjónarmið að heilbrigðisþjónusta sé
hluti mannréttinda og því beri að
tryggja að allir hafi jafnan aðgang að
henni.
Hjúkrunarfræðingar hvetja
stjórnvöld til að bregðast við fátækt
á Íslandi og gera þær ráðstafanir
sem þarf til að allir þegnar þessa
lands megi búa við mannsæmandi
kjör, gott heilsufar og jafnan aðgang
að heilbrigðisþjónustunni, þjóðinni
til heilla.“
Hvetja stjórnvöld til að
bregðast við fátækt