Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 69 SVEINUNG Fjelstad knattspyrnumaður hjá norska úrvalsdeildarliðinu Ham/Kam féll á lyfjaprófi sem tekið var af leikmanninum 21. apríl sl. Hann er fyrsti knattspyrnumaðurinn sem fellur á lyfjaprófi í Noregi, en hinn 26 ára gamli leikmaður reyndist hafa tekið inn stera- lyf. Fjelstad hefur viðurkennt að hafa tekið inn efni sem vinur hans hafði útvegað honum en hann hafi ekki tekið eftir innihaldslýsingu á þeim efnum sem hann hafði tekið inn. „Ég var einfaldlega heimskur að hafa tekið þessi efni inn. Ég bið félagið mitt afsökunar, leikmenn, þjálfara og stuðningsmenn, en þetta er vandræðalegt ástand sem ég hef komið félaginu í,“ segir Fjelstad við AFP- fréttastofuna. Norskur knatt- spyrnumaður féll á lyfjaprófiKYLFINGARNIR Tómas Salmon úr GR og Rúnar Óli EinarssonGS hefja í dag keppni á Opna enska höggleiksmótinu sem fram fer á West Lancashire-vellinum sem er skammt frá Liverpool. Fjórar landsliðskonur fara í næstu viku til Svíþjóðar og taka þátt á Opna sænska mótinu fyrir kylfinga undir 21 árs aldri. Þær eru Arna Rún Oddsdóttir GH, María Ósk Jónsdóttir GA, Sunna Sævarsdóttir GA og Tinna Jóhannsdóttir GK. Mótið hefst 21. maí og lýkur 23. maí og er leikið í bænum Vara á samnefndum velli. Á sama tíma verða fjórir íslenskir keppendur á Opna skoska högg- leiksmótinu sem fer fram á Lundin Links-vellinum. Íslenska liðið er þannig skipað: Magnús Lárusson GKJ, Ottó Sigurðsson GKG, Pétur Óskar Sigurðsson GR og Sigmundur Einar Másson GKG. Golfsambandið vonast til þess að koma að tveimur kylfingum til viðbótar sem eru á biðlista mótsins. Guðjón Henning Hilmarsson GKG, Haukur Már Ólafsson GKG, Kristján Þór Einarsson GKJ, Ólafur B. Loftsson NK og Sigurður Pétur Oddsson GR keppa síðan á Opna Welska mótinu sem fram fer 29.–30. maí en þetta er í þriðja sinn sem piltalandslið Íslands fer á þetta mót, sem að þessu sinni fer fram á Rolls of Monmouth. Íslenskir kylfingar á faraldsfæti Jackson tók leikhlé eftir aðDuncan hafði skorað, lagði á ráðin með leikmönnum sínum. Gary Payton tók innkast á varnarhelm- ing Spurs, flestir bjuggust við að Kobe Bryant myndi fá knöttinn en þess í stað kom bakvörðurinn Der- ek Fisher á móti Payton, hann fékk sendinguna, stökk upp og sneri sér á sama augnabliki að körfunni, og knötturinn fór beint ofaní körfuna. Dómarar leiksins skoðuðu atvikið af myndbandi áður en þeir dæmdu körfuna gilda. Forráðamenn Spurs hafa hins- vegar lagt inn formlega kæru þar sem þeir telja að leiktíminn hafi verið settur of seint af stað og skot Fishers hafi farið af stað eftir að leiktíminn rann út. Einn af þremur dómurum leiksins setur leikklukk- una af stað með þráðlausum búnaði sem hann er með í beltinu og að auki var hlutlaus tímavörður til staðar sem sá um að allt færi fram samkvæmt reglum. Popovich er efins „Leikklukkan fór of seint af stað, það er mitt mat,“ sagði Gregg Popovich þjálfari Spurs eftir leik- inn. Duncan er hinsvegar viss um að Spurs leggi Lakers að velli í sjötta leiknum og fái oddaleik á heimavelli sínum. „Baráttan í liðinu var til fyrir- myndar, við gáfumst aldrei upp. Við fengum tækifæri til þess að vinna leikinn og við verðum með mikið sjálfstraust þegar við mætum til leiks í Los Angeles,“ sagði Duncan. Ótrúlegur lokakafli og skot Fish- ers verður skráð í sögubækurnar, enda er Lakers með vænlega stöðu, 3:2, en sjötta viðureign liðanna fer fram í Los Angeles á laugardag og með sigri getur Lakers tryggt sér sæti í úrslitum Vesturstrandarinn- ar. Í hinni undanúrslitaviðureigninni á Vesturströndinni er staðan jöfn, 2:2, en þar eigast við Minnesota Timberwolves og Sacramento Kings. Tim Duncan skoraði 21 stig fyrir Spurs og tók jafnmörg fráköst. Kobe Bryant skoraði 22 stig en það vekur athygli að Lakers vinnur leikinn þrátt fyrir að miðherjinn Shaquille O’Neal skori aðeins 11 stig en hann tók einnig 11 fráköst. Fisher óvænt hetja liðsins Fisher fagnaði skoti sínu með þeim hætti að hann hljóp fagnandi í átt að búningsherbergjum liðsins. „Ég vildi koma mér af svæðinu en ég fylgdist með ákvörðun dómara leiksins af risaskjá fyrir ofan leik- völlinn,“ sagði Fisher. O’Neal var með svör á reiðum höndum eftir leikinn. „Öll lið eiga skilið að fá heppnina með sér í lið, Duncan var heppinn með sitt skot og við vorum heppnir að fá síðasta skot leiksins,“ sagði O’Neal. Að venju hafa tölfræðingar vest- anhafs reiknað það út að líkurnar á sigri Spurs eru nánast engar, þar sem það lið sem hefur unnið fimmta leikinn í sjö leikja rimmu hefur haft betur í 95 tilvikum af 115. Derek Fisher tryggði LA Lakers sigur gegn meistaraliði San Antonio Spurs Ótrúlegur lokakafli LOKAKAFLI viðureignar meistaraliðs San Antonio Spurs gegn Los Angeles Lakers í fyrrinótt er líklega einn sá eftirminnilegasti í sögu NBA-deildarinnar í körfuknattleik. Leikmenn San Antonio fögnuðu gríðarlega þegar Tim Duncan kom liðinu yfir með stökkskoti, 73:72, og aðeins 0,4 sekúndur lifðu þá af leiknum. Leikmenn Spurs fögn- uðu of snemma þar sem Phil Jackson þjálfari Lakers var með tromp uppi í erminni sem tryggði Lakers sigur, 74:73, en staðan í einvíg- inu er 3:2, Lakers í vil. Reuters Derek Fisher fagnar sigur- körfu sinni gegn Spurs.  MAGNÚS Helgason körfuknatt- leiksmaður hefur ákveðið að skipta úr KR í Þór á Akureyri. Magnús er uppalinn í Þór en hefur verið tvö keppnistímabil í KR og þar áður eitt ár í Stjörnunni. Magnús er 24 ára skotbakvörður. Hann er rúmlega 1,90 m á hæð og verulegur liðsstyrk- ur fyrir Þórsara að sögn Þorgils Sævarssonar, formanns körfuknatt- leiksdeildar Þórs. Þorgils segir von á fleiri nýjum leikmönnum til Þórs fyrir næsta vetur.  Á HEIMASÍÐU körfuknattleiks- deildar Njarðvíkur er greint frá því að búið sé að ganga frá samkomu- lagi við þrjá af lykilmönnum liðsins, landsliðsmennina Friðrik Stefáns- son og Pál Kristinsson, auk Hall- dórs Karlssonar.  Í FRÉTTINNI er sagt frá því að Keflvíkingar hafi verið á höttunum eftir einhverjum af þessum leik- mönnum, auk annarra liða í úrvals- deild karla.  NJARÐVÍK sigraði í Hópbílabik- arkeppni KKÍ í vetur, tapaði í úrslit- um bikarkeppninnar gegn Keflavík og féll úr leik í undanúrslitum Ís- landsmótsins gegn Snæfelli, 3:0. Einar Árni Jóhannsson mun stýra liðinu á næstu leiktíð en hann tekur við af Friðriki Ragnarssyni sem ætlar að taka sér frí frá störfum á næstu leiktíð.  HERMANN Helgason hefur tekið við formennsku í körfuknattleiks- deild Keflavíkur. Hrannar Hólm óskaði ekki eftir að vera formaður á ný. Aðrir í stjórn félagsins eru Birg- ir Már Bragason, Einar Skaftason, Guðsveinn Ólafur Gestsson, Jón Guðmundsson, Kristján Guðlaugs- son, Rúnar Georgsson, Særún Guð- jónsdóttir og Sigurður B. Magnús- son.  REYNIR í Sandgerði hefur boðið Jóhannesi Kristbjörnssyni að taka að sér þjálfun körfuknattleiksliðs fé- lagsins sem spilar í 2. deildinni. Jó- hannes lék á sínum tíma með Njarð- vík og KR en hann hefur einnig leikið með Reynismönnum undan- farin ár. Á vef Víkurfrétta segir að Jóhannes ætli að svara Reynis- mönnum á næstu dögum.  TÚNIS hefur dregið til baka um- sókn sína um að halda heimsmeist- aramótið í knattspyrnu árið 2010. Á morgun verður ákveðið hvar keppn- in fer fram og stendur valið á milli Suður-Afríku, Egyptalands, Mar- okkó og Líbýu.  MARTIN Keown leikur í dag sinn síðasta leik fyrir Arsenal þegar Englandsmeistararnir taka á móti Leicester í lokaumferð ensku úr- valsdeildarinnar. Keown, sem er 38 ára gamall, hefur verið í herbúðum Arsenal allar götur síðan 1982 en Arsene Wenger hefur ákveðið að samningur hans verði ekki fram- lengdur. FÓLK Þróttur R. Komnir: Daníel Hafliðason frá Víkingi R. Davíð Logi Gunnarsson frá Haukum Grétar Már Sveinsson frá HK Hans Sævarsson frá Aftureldingu Jónas Guðmannsson frá Selfossi Sigurður Hallvarðsson frá Fjölni Stefán Logi Magnússon frá Víkingi R. Tryggvi Björnsson frá Víkingi R. Valgarður Finnbogason frá Fjölni Farnir: Björgólfur Takefusa í Fylki Charles McCormick í írskt lið Gestur Pálsson í Odense BK Valur Komnir: Andri Már Óttarsson frá Aftureldingu Ágúst Guðmundsson frá Korup Baldur Aðalsteinsson frá ÍA Jóhannes Gíslason frá ÍA Þórður Jensson frá HK Þórhallur Hinriksson frá KR Farnir: Ármann Smári Björnsson í FH Ellert Jón Björnsson í ÍA Guðni Rúnar Helgason í Fylki Hjörvar Hafliðason í KR Thomas Maale í Hvidovre Þór Komnir: Andri Rúnar Karlsson frá Vaski Dragan Stojanovic frá Fjarðabyggð Heimir Björnsson frá KA Ibra Jagne frá Gambíu Jón Stefán Jónsson frá Vaski Júlíus Tryggvason frá KA Lee Sharkey frá Bandaríkjunum Sigurður Donys Sigurðsson frá Einherja Steinn Símonarson frá Fjölni Vilmar Freyr Sævarsson frá Hetti Farnir: Arnljótur Ástvaldsson í KR Helgi Þór Jónasson í Einherja Jóhann Þórhallsson í KA Kristján Elí Örnólfsson í KA Orri Freyr Hjaltalín í Grindavík Pétur Kristjánsson í danskt lið Stjarnan Komnir: Dalibor Lazic frá Serbíu Mihajlo Bibercic frá Serbíu Farnir: Gunnar Guðmundsson í HK Vilhjálmur R. Vilhjálmsson í Víking R. Haukar Komnir: Arnar Steinn Einarsson frá Víkingi R. Luke Wildy frá Wimbledon Ryan Mouter frá Wimbledon Valþór Halldórsson frá KR Zoran Panic frá HK Farnir: Birgir Rafn Birgisson í HK Davíð Logi Gunnarsson í Þrótt R. Gunnar Sveinsson í Njarðvík Hilmar Rafn Kristinsson í HK Sigmundur Ástþórsson í FH Njarðvík Komnir: Alfreð Jóhannsson frá Grindavík Aron Már Smárason frá Keflavík Guðmundur Brynjarsson frá Víði Gunnar Sveinsson frá Haukum Einar Oddsson frá Víkingi R. Kristján H. Jóhannsson frá Keflavík Milan Janosevic frá Serbíu Ólafur Þór Gylfason frá Víði Farnir: Arjen Kats til Nieuwdorp Jóhann H. Aðalgeirsson í Grindavík Óskar Örn Hauksson í Grindavík Breiðablik Komnir: Friðrik Ómarsson frá Stjörnunni Kjartan Antonsson frá Fylki Pétur Sigurðsson frá FH Sverrir Sverrisson frá Fylki Þorsteinn V. Einarsson frá Fjölni Farnir: Engir. HK Komnir: Árni Thor Guðmundsson frá Leiftri/Dalvík Birgir Rafn Birgisson frá Haukum Brynjar Skúlason frá Fjarðabyggð Gunnar Guðmundsson frá Stjörnunni Hilmar Rafn Kristinsson frá Haukum Jóhann Björnsson frá ÍR Júlíus Valgeirsson frá Sindra Pálmar Hreinsson frá Aftureldingu Pétur Guðmundsson frá Létti Farnir: Atli Þór Jakobsson í BÍ Grétar Már Sveinsson í Þrótt R. Ólafur V. Júlíusson í Fylki Zoran Panic í Hauka Þorsteinn Gestsson í Tindastól Þórður Jensson í Val Völsungur Komnir: Borislav Lalic frá Serbíu Heiðar Ingi Ólafsson frá Fram Oddur H. Guðmundsson frá KR Farnir: Enginn. Fjölnir Komnir: Garpur I. Elísabetarson frá KR Hallur K. Ásgeirsson frá Víkingi Ó. Svavar Hjaltested frá Víkingi R. Farnir: Ilija Kitic til Austurríkis Sigurður Hallvarðsson í Þrótt R. Steinn Símonarson í Þór Valgarður Finnbogason í Þrótt R. Þorsteinn V. Einarsson í Breiðablik Mannabreytingar ÍÞRÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.