Morgunblaðið - 15.05.2004, Page 70
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu beið lægri hlut fyrir
Englendingum, 1:0, í æfingaleik í
Peterborough á Englandi í gær-
kvöld. Eina mark leiksins leit
dagsins ljós á 42. mínútu.
„Ég var að mörgu leyti mjög
sátt við leik liðsins og þetta er
góður undirbúningur fyrir leikina
á móti Ungverjum og Frökkum í
EM. Við áttum í smá erfiðleikum í
fyrri hálfleik. Stelpurnar voru full
ragar að halda boltanum innan
liðsins og við vorum meira í að
verjast og koma okkur inn í leik-
inn. Seinni hálfleikurinn var miklu
betri af okkar hálfu. Liðinu gekk
betur að spila boltanum og við
náðum virkilega að ógna enska
markinu. Ég held að við höfum
fengum fimm mjög marktækifæri
en því miður náðum við ekki að
jafna. Ég er aldrei sátt við að tapa
en stelpurnar stóðu sig í heildina
virkilega vel,“ sagði Helena Ólafs-
dóttir landsliðsþjálfari við Morg-
unblaðið.
Naumt tap fyrir Englandi
ÍÞRÓTTIR
70 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRNI Gautur Arason, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, yfirgef-
ur herbúðir Manchester City eftir
leikinn við Everton í lokaumferð
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í dag en Árni fékk þau skila-
boð frá Kevin Keegan, stjóra City, í
gær að samningur hans yrði ekki
endurnýjaður. Árni gekk í raðir
City í janúar og gerði samning sem
gilti út leiktíðina þar sem tveir af
markvörðum liðsins heltust úr lest-
inni vegna meiðsla, David Seaman
og Nicky Weaver.
„Ég reiknaði svo sem alveg með
þessu og því komu tíðindin sem
Keegan flutti mér alls ekki á óvart.
Ég er alls ekki viss um hvort ég
hefði í raun viljað gera nýjan samn-
ing enda kitlar það mig að komast
að sem aðalmarkvörður en allir vita
að það er erfið samkeppni að keppa
við enska landsliðsmarkvörðinn,“
sagði Árni Gautur við Morg-
unblaðið í gær.
„Þetta er búinn að vera mjög
skemmtilegur tími hjá City og mikil
upplifun þó svo að ég hefði viljað fá
að spila meira,“ sagði Árni Gautur.
Kevin Keegan sagði á vef Man-
chester City að Árni Gautur væri of
góður markvörður til að vera núm-
er tvö. „Árni er of góður og er ekki
á réttum aldri til að vera varamark-
vörður. Að hluta til vildi ég halda
honum hjá okkur en ég átti við
hann gott spjall þar sem ég lýsti því
yfir við hann að hann þyrfti að spila
reglulega enda landsliðsmarkvörð-
ur,“ sagði Keegan.
ÞÓREY Edda Elísdóttir,
stangarstökkvari úr FH,
fagnaði sigri í stangarstökki á
alþjóðlegu stigamóti í frjáls-
íþróttum, Qatar Super Grand
Pix, í Doho í Katar í gær.
Þetta var fyrsta stigamót al-
þjóða frjálsíþróttasambands-
ins í ár.
Þórey Edda stökk 4,30
metra. Þórey Edda lét síðan
hækka rána og reyndi þríveg-
is við 4,43 m, en felldi naum-
lega.
Þýska stúlkan Floé Kü-
hnert varð í öðru sæti en hún
stökk 4,10 metra og sömu
hæð stökk Krisztina Molnár
frá Ungverjalandi, sem varð í
þriðja sæti.
Það er sannkallaður stórslagur ogKR-ingar eru eflaust staðráðn-
ir í að svara fyrir síðasta leik liðanna
í deildinni sem endaði víst 7:0 fyrir
FH. En það er mín tilfinning að FH
vinni KR, 2:1. Þeir eru einfaldlega
með gott lið, 16–17 manna hópur
liðsins er gríðarlega sterkur, og sam-
keppnin er mikil um stöður. Þessi lið
verða í baráttunni um titilinn allt
fram í lokaumferðina en ég tel að FH
hafi betur að þessu sinni, þeir strá
þar með salti í sár KR-inga frá því á
síðasta ári,“ sagði Aðalsteinn í gær
en hann er staddur í Frankfurt á
vegum Marel þar sem hann er starf-
andi. „Ég hef séð nokkra leiki í vor
og vetur, en maður er í fríi frá bolt-
anum og ég gríp í golfkylfurnar ann-
að slagið þegar tími gefst,“ bætti Að-
alsteinn við.
„Grindavík leikur gegn ÍBV á
heimavelli og það er eitthvað sem
segir mér að ekkert mark verði skor-
að í þessum leik. Steindautt jafntefli.
Grindvíkingar eru óþekkt stærð að
þessu sinni og ÍBV er að venju að
slípa saman leik sinn, þar sem liðið
æfir oftar en ekki í tvennu lagi yfir
vetrartímann.“
„Ég hef trú á því að Víkingur
vinni Fram á útivelli í Laugardaln-
um. Fæstir vita eitthvað um styrk-
leika Fram sem er með marga nýja
leikmenn, nýjan þjálfara en að sama
skapi eru væntingarnar miklar hjá
stuðningsmönnum liðsins. Sigurður
Jónsson, þjálfari Víkings, er með
kraftmikla stráka í sínum röðum og
ég tel að þeir vinni 3:1.
„Það er gaman að vita af því að
Akureyrarvöllur sé til reiðu á þess-
um árstíma en ekkert lið getur átt
von á auðveldum leik gegn KA á
þeirra heimavelli. Þar geta öll lið lent
í vandræðum og ég tel að nýliðarnir
úr Keflavík tapi með minnsta mun að
þessu sinni, 1:0. Keflavík leikur
skemmtilega knattspyrnu, þar sem
sóknarleikurinn er í fyrirrúmi. En
það dugir ekki til gegn KA.“
Aðalsteinn þekkir vel til liðanna
sem eigast við á æskustöðvum hans á
Akranesi, þar sem heimamenn taka
á móti Fylki, en Aðalsteinn var þjálf-
ari Fylkis undanfarin tvö keppnis-
tímabil. „Sá leikur verður opinn og
skemmtilegur. Bæði lið ætla sér
stóra hluti á tímabilinu og þetta er
annar af stórleikjum umferðarinnar.
Þegar Skagamenn eru með alla sína
menn heila og keyra af krafti í leikj-
um sínum verða þeir illviðráðanlegir.
Þeir hafa verið sveiflukenndir í vor-
leikjunum en fyrrum félagar mínir
úr Fylki eiga erfitt verkefni fyrir
höndum á Skaganum. Þeir munu þó
ná jafntefli gegn ÍA, 2:2.
Morgunblaðið/Kristinn
Jónas Grani Garðarsson skoraði tvö mörk í 3:2-sigri FH-inga gegn Íslandsmeistaraliði KR í und-
anúrslitum bikarkeppni KSÍ á Laugardalsvellinum í fyrra.
Skagamaðurinn Aðalsteinn Víglundsson og fyrrverandi þjálfari Fylkis rýnir í fyrstu
umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu, sem hefst með leik KR og FH í Frostaskjóli
„FH stráir salti
í sár KR-inga“
„ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu verður gríðarlega jafnt og ég vona
að sem flestir leikir verði skemmtilegir fyrir áhorfendur,“ sagði Að-
alsteinn Víglundsson, fyrrum þjálfari Fylkismanna, er hann var innt-
ur eftir tilfinningu sinni um gang mála í fyrstu umferðinni í barátt-
unni um Íslandsmeistaratitlinn, sem hefst í dag með leik KR og FH.
Árni Gautur kveður
Manchester City
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
KR-völlur: KR – FH ..................................17
Sunnudagur:
Bikarkeppni KSÍ, karlar, VISA-bikar-
keppnin:
Neskaupst.: Boltaf. Norðfj. – Leiknir ......14
Efsta deild karla, Landsbankadeildin:
Grindavík: Grindavík – ÍBV ......................14
Akureyri: KA – Keflavík............................14
Akranes: ÍA – Fylkir..................................14
Laugardalsv.: Fram – Víkingur R. ......19.15
1. deild karla:
Hlíðarendi: Valur – Þór .............................16
Húsavík: Völsungur – Þróttur R. .............16
2. deild karla:
Helgafellsvöllur: KFS – KS ......................14
Selfoss: Selfoss – Leiftur/Dalvík ..............14
Garður: Víðir – Afturelding.......................16
Leiknisvöllur: Leiknir R. – ÍR ..................16
Sauðárkrókur: Tindastóll – Víkingur Ó. ..16
Mánudagur:
1. deild karla:
Kópavogsvöllur: HK – Fjölnir ..................20
Ásvellir: Haukar – Stjarnan......................20
Njarðvík: Njarðvík – Breiðablik...............20
HANDKNATTLEIKUR
Vináttulandsleikir kvenna:
Laugardagur:
Seltjarnarnes: Ísland – Danmörk........16.15
Sunnudagur:
Vestmannaeyjar: Ísland – Danmörk........13
UM HELGINA
KNATTSPYRNA
England - Ísland 1:0
Peterborough, Englandi, vináttulandsleik-
ur kvenna, föstudaginn 14. maí 2004.
Mörk Englands: Fara Williams 40.
Lið Íslands: Þóra B. Helgadóttir - Íris
Andrésdóttir (Málfríður Erna Sigurðar-
dóttir 46.), Björg Ásta Þórðardóttir, Erla
Hendriksdóttir, Guðrún Sóley Gunnars-
dóttir - Edda Garðarsdóttir (Dóra Stefáns-
dóttir 75.), Erna B. Sigurðardóttir (Rakel
Logadóttir 57.), Hólmfríður Magnúsdóttir
(Dóra María Lárusdóttir 80.), Margrét
Lára Viðarsdóttir, Laufey Ólafsdóttir -
Olga Færseth.
Deildabikar kvenna
Neðri deild:
Þór/KA/KS - HK/Víkingur.......................1:1
England
Úrslitakeppni um úrvalsdeildarsæti, und-
anúrslit, fyrri leikur:
Crystal Palace - Sunderland ................... 3:2
Spánn
Villarreal - Valencia................................ 2:1
Sonny Anderson 13., Juan Riquelme 26. -
Mauricio Pellegrino 35.
Staða efstu liða:
Valencia 37 23 8 6 71:26 77
Real Madrid 36 21 7 8 70:48 70
Barcelona 36 20 9 7 61:37 69
Deportivo 36 19 8 9 56:34 65
Villarreal 37 15 9 13 47:46 54
Bilbao 36 14 11 11 48:44 53
Atl. Madrid 36 14 10 12 46:48 52
Málaga 36 15 5 16 47:51 50
Sevilla 36 13 10 13 51:44 49
Osasuna 36 11 15 10 37:34 48
Belgía
Germinal Beerschot - Standard Liege ... 1:2
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Vesturdeild, undanúrslit:
San Antonio - LA Lakers..................... 73:74
LA Lakers er yfir, 3:2.
ÚRSLIT Þórey Edda
fagnaði sigri
í Katar