Heimilistíminn - 14.03.1974, Page 14
í útlöndum eru búnir til margir gómsætir réttir
úr lifur, sem þykir finn matur. Hér heima þykir lif-
ur ekki sérlega spennandi og er oftast matreidd á
einn eða tvo vegu. Uppskriftir af lifur upp á grisk-
an og indverskan máta fylgja hér með ásamt fleiri
uppskriftum, sem ekkert mælir gegn,að séu finasti
helgarmatur.
LIFUR í
HELGARAAATINN
'M
DONEGAL
ÍWEED
Kjólatweed
káputweed
buxnatweed
10 litir
FLAUEL
Grófrifflað flauel
fínrifflað og
slétt flauel
Margir fallegir litir
VERZL.
CGRunp)
Laugavegi • Sími 1-90-52
U_____________
Lifur er hollur matur, sem gefur mikið
af næringarefnum og lamba- og kálfalifur
fæst i hverri almennilegri matvöruverzl-
un.
Mörgum hættir við að skemma lifrina,
með þvi að matreiða hana i of þykkum
sneiðum og setja of mikið af hveiti- og
eggjum á, áður en steikt er. Lifur á aðeins
að steikja i nokkrar minútur, þar til hún
er brúnuð utan, en bleik að innan.
Eftirfarandi uppskriftir eru frá ýmsum
löndum. I flestum þeirra er kálfalifur, en
að sjálfsögðu má nota lambalifur i stað-
inn. Laukur er ekki i neinni uppskrift-
anna, en vandalaust er að bæta honum i,
ef einhver vill það heldur. Tómatar,
steiktir i smjörliki og kryddaðir eru ákaf-
lega gott meðlæti með lifrarréttum. Og þá
eru það uppskriftirnar sem ætlaðar eru
fyrir fjóra i mat:
Eggjakaka veiðimannsins
Fylling i eggjakökuna:
100 gr. brytjað bacon
1 fint skorin púrra (má nota lauk)
1/4—1/2 kg. sveppir
salt, pipar, smjörliki
1 lifur
ldl. kjötsoð
3—5 msk. sýrður rjómi
Eggjakakan:
6 egg
12 msk. rjómj^ eða vatn
salt og pipar.
Ristið baconbitana á þurri pönnu og takið
þá af. Siðan er púrran (laukurinn) og
sveppirnir kraumað i smjörliki. Blandan
er krydduð með salti og pipar og siðan
sett saman við baconbitana. Ristið siðan
lifrina, sem skorin hefur verið i bita. Hún
á að brúnast vel að utan, en vera bleik að
innan. Kryddið hana og blandið siðan
saman við hitt. Haldið heitu.
Eggjakökublöndunni er hellt á heita
pönnu með dálitlu af smjörliki. A nokkr-
um minútum verður hún stif og hefar sig.
Fyllingin er sett á helming kökunnar og
hinn helmingurinn brotinn yfir. Siðan er
hún sett varlega á fatið. Soðið er upp á
pönnunni með kjötseyðinu (eftir að fyll-
ingin hefur verið brúnuð) og það jafnað i
sýrða rjómann. Úr þvi verður indælis sósa
með.
Lifur á grisku
Grikkir kunna manna bezt að matreiða
lifur. Oftast nota þeir lambalifur. 1 þessa
uppskrift má einnig nota kálfalifur.
1/2 kg. lifur
smjörliki, olifuolia
salt, pipar Merian
eða oregano, safi
úr 1/2 sitrónu
Með: Sitrónusneiðar,
merian, hvitlauks-
yoghurt búið til úr
1/4 1 hreinu yoghurt
1 msk. vinediki,
2 hvitlauksgeirum,
14