Heimilistíminn - 14.03.1974, Side 25
OG ANNAÐ FÓLK
eru frá miðjunni og afgangurinn prjónast
alveg eins og á afturstyHkinu.
Samsetning: Pressið stykkin. Saumið
blómin með lykkjuspori eins og myndinni.
Saumið hakið á afturstykkinu saman fyrir
hæl og siðan hliðar og innanfótarsaumana
saman, þannig að rendurnar standist á.
Heklið fastalykkjur umhverfis brúnirnar
að ofan og i leiðinni 2 lykkjur fyrir hnappa
á axlir framstykkisins. Saumið 2 litla
hnappa i hvora öxl á afturstykkinu.
LEISTARNIR
Fitjaðar upp 15 L og prjónað alveg eins og
skriðbuxurnar. Fellt er af framstykkinu,
þegar það er 7 cm, en afturstykkinu þegar
það er 10 1/2 sm. Saumið saman fyrir hæl
á afturstykkinu og saumið saman.
SOKKABUXURNAR:
Prjónaðar eins og skriðbuxurnar, en þeg-
ar stykkið er 9 sm frá miðjunni er
prjónaður snúningur (1 sl, 1 sn) og i 3.
prjóni er prjónuð gataröð: 1 sl, + slá um,
2sl saman, 1 sn, 1 sl + Endurtakið frá +
til + prjóninn á enda. Prjónið 3 prjóna
súning i viðbót og fellið af. A framstykk-
inu byrjar snúningurinn, þegar stykkið er
um 7 sm. Saumið saman eins og skrið-
buxurnar og dragið teygju i gataröðina.
PONCHO, HÚFA, TREFILL,
VETTLINGAR
1 allt settið þarf um tvær hnotur af hvitu
og afganga i hinum litunum.
Poncho: Prjónuð eru tvö eins stykki,
þannig: Fitjið upp 102 1 og prjónið beint
áfram með garðaprjóni, en jafnframt er
tekið úr á hverjum prjóni á réttunni alla
leiðina þannig: Prjóniðslétt, þartil 3 1 eru
að miðju, takið þá 21 öfugar saman, 2 sl og
2saman og ljúkið siðan við prjóninn. Eftir
10 prjóna garðaprjón er skipt yfir i slétt
prjón og röndótt (rendurnar eins og á
skriðbuxunum). Þegar 34 1 eru eftir, er
afturskipt yfir i garðaprjón og hvitt (enn
tekið úr i miðjunni). Eftir 6 prjóna er fellt
laust af.
Húfan: Fitjið upp 90 1 og prjónið 12 sm
beintuppi snúningi (2 sl, 2 sn). Skiptið yf-
ir i slétt prjón og prjónið 5 sm frá snún-
ingnum. I. úrtaka: + 7 sl, 2 sl saman +
Endurtakið frá + til + og prjónið siðan
einn prjón á röngunni. 2. úrtaka: + 6 sl, 2
sl. saman + Endurtakið frá + til +.
Prjónið einn prjón á röngunni. Haldið
áfram að taka úr og i hvert sinn er einni 1
færra á milli úrt. begar 2 1 eru á milli, eru
prjónaðar 2 saman allan prjóninn og end-
inn dreginn i gegn um 1 sem eftir eru.
Vettlingarnir: Fitjið 28 1 upp og prjónið 3
1/2 sm snúning (2 sl, 2 sn) Skiptið i slétt
prjón og prjónið 2 1/2 sm beint upp, svo er
tekið úr: + 5 sl, 2 sl saman + Endurtakið
frá + til + út prjóninn. Prjónið einn prjón
á röngunni. Takið siðan úr, þannig að
fækki um eina 1 á milli i hvert sinn, þar til
ein 1 er á milli. Dragið þá endann i gegn og
prjónið hinn vettlinginn alveg eins.
Trefillinn: Fitjið 14 1 upp og prjónið 45 sm
með garðaprjóni. Fellið af.
Samsetning: Pressið allt nema snúning-
ana. Saumið Poncho-inn saman i hliðun-
um og saumið út blóm með lykkjuspori á
við og dreif á það slétta á húfunni og vett-
lingunum. Saumið húfuna og vettlingana
saman frá röngunni á þvi slétta og varpið
snúningana.
Brúðufötin eru mátuleg flestum brúðum,
sem eru 45 sm háar, en þær sem vanar eru
að prjóna, finna fljótlega út, hvernig þau
eru minnkuð eða stækkuð. ef brúðan sem
á að fá þau, er stærri eða minni, nema
miklu muni.
HI^GIÐ
25