Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 40

Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 40
0 Einstæðingar misskilningur, sem hvorki þér eða hann ráðið við. Andlit fröken Prehn var orðið náfölt, og það fóru viprur um munnvik hennar. Orð- in höfðu komið illa við hana, þvi að hún fann. að það var mikili sannleikur i þeim. En hún brynjaði sig með þrjósku — og stóð teinrétt og ákveðin, þegar Anne fór út úr ibúðinni. Næsta sunnudag fóru þau Holger Kragh og fröken Prehn út i skemmtigarðinn eins og svo oft áður. Þar sem þau sátu á bekk undir grænum trjánum, fannst henni hún ekki lengur geta afborið þennan skripa- leik. Tilfinningar hennar voru allar i báli, og hún þráði svo að taka um hönd hans — undur blitt. Og hún gerði það — starði sem i leiðslu á svera fingur sina, er þeir lögð- ust um úlnlið hans. En hvað hann var grannur og vesældarlegur, hugsaði hún i vandræðum sinum. Hann var að veröa gamalmenni. Hún minntist hans frá fyrri dögum — kraftarlegra, sólbrenndra handleggja hans. Þetta var liklega allt um seinan, þvi að hann sneri höfðinu og starði i undrun á hana. Hún dró höndina aðsr. Roðinn færðist l'rarn i vanga hennar — og hjarta hennar hamaðist svo æðis- legta, að henni fannst hann hlyti að heyra það. Og svo skildi hann — i fyrsta skipti. Ó guð minn góður — henni sortnaði fyrir augum, og það var eins og hún hrapaði og hrapaði. Hugsanirnar drukknuðu i örvæntingu og skyndilegri skeifingu. En henni þótti þó vænt um hann, hugsaði hún örvingluð og brast i grát. Hvers vegna hafði hún alls ekki fengið leyfi til að lifa lifinu? Hvers vegna var það svo hlægilegt, að hún skyldi verða ástfangin, þar sem hún var feitlagin og ónett? Hló hann að henni? Hún þarfnaðist þess að fá að lifa — fá að veita karlmanni allt — og hún fékk ekkert. — F'röken Prehn, sagði hann rólega. Mér hefur þótt vænt um vináttu yðar. Þér hafið verið góöar við mig. Ég var ein- mana. Mér kom það aldrei til hugar, að þér bæruð nokkrar aörar tilfinningar til min. Konan min sagði alltaí, að ég væri afar barnalegur. Það er vist alveg rétt. Fyrirgefið mér, fröken Prehn — það er vist bezt. að við förum heim núna. Þurrk- ið yður um augun. Þér megið ekki gráta svona. Hann rétti henni vasaklút. Gegnum tár- in sá hún, að i klútinn voru saumaðir stafirnir L.K. — LeilaKragh. Hún snökti enn ákafar en áður. Hún hafði vonazt eftir ást hans — og hún hafði ekki íengið annað en að úthella tárum i einn af vasaklútum konunnar hans sálugu. Hann bætti lágt við: — Það hefur aldrei veriö nokkur önnur kona i lifi minu en eiginkona min — og það verður aldrei nein önnur. Það er erfitt að vera einmana, en mannleg byrði er svo margvisleg. Það er svo fáum hjónum leyft að deyja á sama tima. I flestum til- fellum verður annar aðilinn að ganga siðasta og erfiðasta spölinn algjörlega einn. En öðruvisi getur það ekki verið. Og jafnframt er ég fullkomlega sáttur við sjálfan mig — þvi að endurminningarnar getur enginn frá mér tekið... Þegar Holger Kragh kom heim — eftir að hafa fylgt fröken Prehn, snöktandi og i uppnámi, heim til sin — fannst honum hann þreyttur og ringlaður. En hugsunin um hjálp Leilu hjálpaði honum. Honum fannst hann geta séð hana brosa og heyrt hana segja: — Holger þó, kjáninn þinn, sem alltaf ert að leggja aumingja kvenna- hjörtu að fótum þér. Aumingja fröken Prehn! Já, hann hafði innilega samúð með henni. Það stoðaði ekkert. Hún hafði sagt, að hún vildi aldrei sjá hann framar. Og þannig fór það næstum þvi, enda þótt hún hefði i hugaræsingu sinni gert heldur mikið úr þessu, þvi að Holger Kragh hélt áfram að kaupa álegg i verzluninni, sem orðin var örlög hennar. Og dæturnar hringdu til hans á hverjum degi. Þær nefndu fröken Prehn aldrei á nafn — en gerðu allt til að kæta hann og telja i hann kjark. Smám saman róaðist hann aftur. Oft sat hann og hugsaði um Leilu — um allt, sem þau höfðu átt sameiginlegt. Og hann var rólegur og skapgóður, þvi að lifið hafði fundið nýja farvegi. Honum féll þaö bara illa, að frök- en Prehn skyldi alls ekki vilja sættast. Stundum hittust þau af tilviljun á götunni, þegar þau voru á kvöldgöngu — og þá kerrti hún hnakkann, horfði beint fram fyrir sig og gekk fram hjá honum án þess að heilsa. 0 Sniðugur þakið i upphafi þessa máls. Það var að vonum. Djarflegt litaval hans þá dró dilk á eftir sér, ekki aðeins i næsta nágrenni, heldur og um allan bæ. Hverja sólskins- stund i fyrrasumar voru menn um alla Keflavik önnum kafnir við að mála hús sin i alls konar litum, sem engum hafði til hugar komið að setja utan á hús áður, án þess að eiga á hættu háð og svivirðingar. Gömlu húsin við Suðurgötu ljómuðu svo fagurlega i siðsumarsólinni, að menn spurðu sjálfa sig, hvort hún væri ekki bara fallegasta gatan i bænum. En sjón er sögu rikari, og svo fer einnig hér. Meðfylgjandi myndir bera handlagni Sævars á hinum fjölmörgu sviðum marg- falt betra vitni en orðaflóð á ritvél. Með orð skáldsins i huga, ,,Sá máttur fylgir meistarans höndum að leysa fjötraða fegurð úr böndum” skulum við virða myndirnar fyrir okkur og reyna að gera okkur grein fyrir þvi hugviti og erfiði, sem i langflestum tilfell- um liggur að baki verkinu. B.H. Attu margar brúður? Eða á litla systir þin eða önnur stúlka, sem þú þekkir margar brúður. Sé svo, er hægur vandinn fyrir þig, að búa til svona rúm fyrir brúðurnar hennar. Allt sem þarf, eru þrir jafn- stórir trékassar og hliðarstykki úr ein- hvers konar plötu. Kassarnir eru klæddir með fallegum pappir eða sjálflimandi veggfóðri. Og þannig er bezt að fara að þessu öllu: Klæddu fyrst kassana utan og innan, en þó ekki á endunum að utan. Þegar það er búið, neglirðu hliðarstykkin á endana og það má klæða þau lika með pappir ef þess þarf. Passaðu, að naglarnir gangi ekki inn i kassana, svo dúkkurnar rispi sig ekki, þegar þær fara að hátta. Rúmföt- in eru pokar úr bómullarefni, sem fylltir eru af bómuli. 40

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.