Heimilistíminn - 06.06.1974, Side 10

Heimilistíminn - 06.06.1974, Side 10
Blómunum finnst gott að láta hæla sér BLÓMAUNNENDUR hafa lengi haft það fyrir satt, að blómin vaxi betur, ef talað er vingjarnlega við þau annað slagið. Marg- ir hafa skemmt sér yfir þessari fullyrð- ingu. En nú er komið i ljós, aö þetta eru ekki hindurvitni, heldur visindaleg staðreynd. Blóm vaxa betur, ef sá, sem hugsar um þau, er vinur þeirra og lætur sér annt um velferð þeirra, og þau vaxa verr, ef þeim er bölvað. Hugsaði um byggakur Einn frægasti náttúrulæknir Dana, Kindt Flyborg, verkfræðingur, gerði fyrir nokkrum árum tilraun i samráði við kandidat frá Búnaðarháskólanum. Þeir skiptu litlum byggakri i 100 fleti, sem voru einn fermetri hver og settu snúrur á milli. Siðan reyndu þeir að hafa áhrif á fletina með ýmsu móti, t.d. með ultrahljóðum, til að vita hvort þeir gætu aukið haustupp- skeruna með einhverju móti. — Engin aðferðin hafði nokkur teljandi áhrif á vöxt byggsins — nema i einum fleti, sem ég hugsaði sérstaklega til. Við tókum myndir af öllum akrinum og einn flötinn klippti ég út og stakk myndinni i vasann. Að mnmsta kosti einu sinni i viku allan vaxtartimann tók ég myndina fram, horfði á hana og hugsaði stift um, að ein- mitt i þessum fleti skyldi kornið verða verulega gott og mikið. Þegar uppskeran var siðar mæld og metin á rannsóknarstofu, kom i ljós, að hún var 22,4% meiri úr þessum fleti en nokkrum öðrum. Bölvaði korninu Flyborg er alls ekki sá fyrsti, sem reynt hefur þetta. Þegar árið 1924 gerðu frönsk læknishjón, Vasse að nafni, svipaða til- raun i Paris. Þau sáðu korni i tvo stóra bala og i fimmtán minútur á hverjum degi stóðu þau og töluðu við hornið i bölunum. Annar balinn fékk allar góðar óskir um að vaxa vel og rikulega, en hinum var bólvað og þess óskað af öllum mætti, að þar mætti kornið visna og deyja. Enginn efað- ist um árangurinn, sem hann sá. Þó að að- stæður og skilyröi öll i báðum bölunum væru nákvæmíega eins, óx kornið vel I öðrum balanum, en hinn bar öll merki vanþrifa. Blóm hafa taugar Bandariski presturinn Franklin Loehr frá Los Angeles reyndi að endurtaka til- raunina. Hann útvegaði sér heilmikið af fræi og ungum plöntum og fékk 150 sókn- arbörn sin til að taka þátt i þessu með sér. Helmingurinn bað daglega bænir um að vissar plöntur mættu dafna vel og hinn helmingurinn bað jafn innilega um að aðrar plöntur mættu visna og deyja. Nokkrum mánuðum siðar lá árangurinn ljóst fyrir. Fordæmdu blómin voru að visna, en hin voru I fyrsta flokks ástandi. Þessar tilraunir vöktu athygli fjölda visindamanna og þeir tóku að velta fyrir sér, hvort plöntur hefðu taugakerfi, sem tæki áhrif frá mannlegum hugsunum. Danski eðlisfræðingurinn Leif Karlsson er einna fremstur á þessu sviði. Hann hefur um árabil fengizt við rannsóknir á indverskum gúmmiplöntum og hann not- ar sömu tæki og notuð eru við rannsóknir á heila- og hjartastarfsemi mannfólksins. Lygamælir á blóm Rannsóknirnar sýna greinilega, að plöntur hafa eins konar taugakerfi. Greinilegur munur er á þeim „merkjum” sem blómin senda frá sér við ýmsar að- stæður. A næturnar hvilast þau og senda þá frá sér merki, sem minna ótvírætt á merki, sem koma frá sofandi manni. Á daginn eru þau vakandi. Auk þess kom í ljós, að blómin eru slappari yfir veturinn og kom- ast ekki i fulla starfsemi fyrr en sólin og sumarið koma. alveg eins og menn og dýr. Nýlega tók rússneski sálfræðingur- inn V.M. Pusjkin af allan vafa um að blóm hafa taugakerfi, sem tekur við manníeg- um hugsunum. Hann lét dáleiða tilrauna- fóik þannig að það varð sérlega næmt fyrir áhrifum. Siðan var fólkinu til skiptis hótað og hrósað og lygamælir, sem tengd- ur var við úlnlið fólksins, sýndi nákvæm- lega sömu viðbrögð og mælir, sem tengd- ur var við blóm i herberginu. —-=Þegar tilraunamanneskjan brosti, teygði blómið úr krónublöðum sinum og þegar ég taldi manneskjunni trú um að henni væri kalt, tóku blöð blómsins að titra, segir Pusjkin. Hann hefur sett fram þá kenningu, að vera hljóti náið samband milli-taugakerfa manna og jurta, eins konar fjarhrif. Jurtirnar finna á einn eða annan hátt, hvernig fólkinu liður, alveg eins og húsdýr tengjast eigendum sinum föstum böndum. Nema streitu Bandariskur áhugagrasafræðingur Clive Baxter að nafni hefur fundið all- nokkur dæmi þess að jurtir nemi streitu annarra. Baxter er fyrrverandi starfs- maður bandarisku leyniþjónustunnar og þar var hann sérhæfður i meðferð lyga- mælis. Nú er hann meðeigandi i fyrirtæki sem framieiðir þá og hæg eru heimatökin. Nú notar hann lygamæli á blóm. Lyga- mælir mælir m.a. rafstraum i húð þess sem yfirheyrður er. Fyrir nokkrum árum reyndi Baxter nánast að gamni sinu að tengja lygamæli við eitt stofublóma sinna. Hann setti skaut mælisins á eitt blaðið og sá sér til undrun- ar, að mælirinn féll, eins og hjá mann- eskju, sem er þreytt eða leiðist. Þá varð Baxter forvitinn fyrir alvöru og hóf umgangsmiklar tilraunir i þessa átt. Hann ógnaði blóminu með heitu kaffi eða eldspýtu og mælirinn þaut upp úr öllu valdi. Aðrar tilraunir hans haf sýnt, að stofublóm taka til sin áhrif frá eigandan- um, ef honum Iiður illa, jafnvel þótt hann sé langt burtu frá heimili sinu. Blómið varð hrætt! t þessu öllu saman liggur ef til vill skýr- ingin á þvi að sumum gengur svo vel að fá blóm til að vaxa, en aðrir geta ekki haldið lifi i þeim, hvað sem þeir reyna. Ung, dönsk húsmóðir segir að hún hafi aldrei getað haldið blómum lifandi — þar til hún var skorin upp við meinsemd i skjaldkirtlinum. Siðan hefur henni liðið betur og blómunum lika. Hinn danski Leif Karlsson, sem áður er getið, hefur einnig reynt að ógna blómum sinum með eldi og kaffi, en það hafði ekki minnstu áhrif. Kannski hefur blómin grunað, að hann meinti það ekki alvar- lega. En Karlsson fékk þó sönnur á þvi, að hugsanir hafa áhrif á blóm. Hann velti ó- vart vinflösku á sófaborðinu og mælirinn á gúmmiplöntunni við hliðina rauk i topp svo small i! Slöar reyndi hann að hella Framhald af 47. siöu. 10

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.