Heimilistíminn - 06.06.1974, Side 38
Ósýnileg
vera
ræðst
á stúlku
MAÍNÓTT eina árið 1951 hópuðust veg-
farendur um æpandi unglingsstúlku á
götu i Manila i Filippseyjum. Svo virtist
sem hún berðist við eitthvað ósynilegt, og
hún æpti af skelfingu. Hún veifaði hand-
leggjunum og reyndi jafnframt að slita
eitthvað af sér, eitthvað sem enginn sá.
Hún hrópaði: — Það bitur mig, það bitur
mig!
Hópurinn umhverfis gerði ekkert.
Fólkið leit brosandi hvert á annað og
hristi höfuðið. Það var greinilegt, að
stúlkan var brjáluð. Kannski var hún
hundir áhrifum ópiums, og ef vill var hún
drukkin. Nú, sjón hennar gat lika hafa
truflazt vegna hungrus. Greinilegt var, að
hún var ein af þeim heimilis- og munaðar-
lausu unglingum, sem þvælast um
göturnar.
Kallað var á lögregluna, og henni tókst
með erfiðismunum að koma æpandi og
sparkandi stúlkunni á stöðina. Þegar hún
loks róaðist, sagðist hún heita Clarita
Villaneuva og væri 18 ára. Hún grátbað
lögreglumennina að lita á hand-
legginn á sér, þegar þeir létu i
38