Heimilistíminn - 28.11.1974, Blaðsíða 10
Ef þið týnið öðrum
hanzkanum
ERTþú meðal þeirra, sem alltaf eru að týna öðrum
hanzkanum sínum? Ef svo er, þá veiztu líklega, að
ekkerter einsgremjulegtog að eiga bara hinn eftir.
Flestir f leygja honum einmitt bara þess vegna. En
bíðið aðeins, einn hanzki getur orðið til gagns. Til
dæmis má alltaf nota annan hanzkann við ýmiss
konar óþrifaverk, sem maður notar aðra höndina
að mestu við. Og ef maður á fleirj en tvo staka
hanzka, þá gerir ekki svo mikið til undir þeim
kringumstæðum, þó að þeir séu ekki samstæðir.
En f leira er hægt. Sé hanzkinn verulega fallegur,
er þjóðráð að fylla hann vel af sandi og loka honum
að neðan, þannig að hann geti staðið, upp á endann.
Sem slíkur er hann tilvalinn til að geyma skrautlega
hringa á. Þá má nota hanza sem mót og hella í hann
gipshræru og láta storkna. Klippið síðan hanzkann
utan af höndinni, pússið hana og lakkið og dragið
hringana á f ingur henni. Nú einnig má troða hanzk-
ann út með bómull eða öðru mjúku og nota hann
fyrir nálapúða Sem slíkur getur hann orðið til
ánægju fyrir augað. En hvað sem þið gerið, þá
fleygið ekki hanzkanum.
10