Heimilistíminn - 28.11.1974, Blaðsíða 33

Heimilistíminn - 28.11.1974, Blaðsíða 33
Gunhild Hesting: ■> t í j <& <D- IAC ó' tt ur /° n n 3t*sL! tsn af stærri flöksunni og byrjaði að lepja af öllum körftum. En þessi mjólk var eitthvað undarleg á bragðið. — Hvers konar mjólk er þetta? spurði Basti- an. — Ummm svaraði sá bröndótti. — Þetta ei alveg ekta ný súrmjóik. — Er lika súrmjólk i þinni flösku? spurði Bastian. — Nei. Eiginlega ekki, svarði hinn. —Það ei eiginlega rjómi, skilurðu. Ég þoli ekki súr- mjólk, þvi miður. — Einmitt það, sagði Bastian og hugsaði með sér að þarna hefði hinn platað sig laglega. — Jæja, nú er ég búinn með allt saman, sagði þá sá bröndótti. — Það er eitthvað svo lit- ið i þessum litlu flöskum. Hann sleikti út um beggja mcgin og strauk á sér kviðinn. En i sama bili heyrði Bastian konurödd hrópa reiðilega: —Nú eru árans kettirnir enn einu sinni búnir með mjólkina. Ég skal svei mér ná i þá núna! Svo tók hún sóp og fleygði á eftir þeim og sópurinn flaug rétt við eyrun á Bastian og þá tók hann undir sig stökk út um dyrnar og út á götuna. Hann vissi ekki, hvert hann átti að hlaupa og þess vegna hljóp hann bara á eftir þeim bröndótta. Nokkur hundruð metrum neðar við götuna, hlupu þeir yfir byggingarlóð og bak við skúra. Þar hvarf sá bröndótti inn um gluggann á ein- um skúrnum. Bastian elti. — Það munaði litlu, að hún hitti okkur, stundi Bastian, þegar þeir voru orðnir öruggir i skúrnum. — Æ, ert það þú aftur? hvæsti sá bröndótti. — Ég hafði nú ekki hugsað mér að bjóða þér i hádegismat, en þú býður kannske? — Heyrðu mig nú, sagði Batian svolitið reið- ur. — Þú áttir áreiðanlega ekkert i mjólkinni var það? — Það fer eftir þvi hvernig á það er litið, svaraði hinn. — Nú á ég hana, þvi hún er i maganum á mér og ef maður á ekki það, sem maður hefur i maganum, hver á það þá? —Við vorum að drekka mjólkina sem konan átti og það veiztu vel, sagði Bastian. — Ég er ekki viss um það, sagði sá bröndótti. — Ég held, að mjólkurpósturinn hafi átt hana. Konan var nefnilega ekki búin að borga hana og þess vegna átti hún hana ekki. — Þá stalstu henni frá honum, sagði Batian. — Þú skalt ekki vera að ásaka mig um þjófn- að, hvæsti sá bröndótti. — Ég þoli ekki að fólk Ijúgi upp i opið ginið á mér. Það hefur enginn stolið neinu frá mjókurpóstinum og hann vill gjarnan losna við mjólkina, áður en hún súrn- ar. Bara að hann fái peninga fyrir hana. Og hann fær þá hjá konunni, sem hann seldi mjólkina. Þarna sérðu! Þú skalt ekki koma hér og þjófkenna mig! — Fyrirgefðu, sagði Bastian. Hann botnaði ekki lengur neitt i neinu. En samt var hann al- veg viss um, að þetta væri ekki alveg eins og það ætti að vera. — Allt i lagi, sagði sá bröndótti, — en ég skal láta þig vita að ég segi alltaf sannleikann og 33

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.