Heimilistíminn - 28.11.1974, Blaðsíða 28
Þeir rændu
„hertogaynjunni"
Þegar Worth og menn hans rændu frægu Gainsborough-
mólverki, hófust deilur, sem stóðu í 25 ór
t>ó aö hertogaynjan hafi veriö 25 ár á töskubotni, er hún jafngóö og áöur.
28
Aöstandendur listmunafyrirtækisins
Agnew’s i London voru með réttu ákaf-
lega hreyknir af málverkinu „Hertoga-
ynjan af Devonshire” eftir Thomas
Gainsborough, sem þeir höfðu nýlega
eignazt. Þeir komu málverkinu fyrir i
sýningarsal sinum og listunnendur viðs-
vegar að úr heiminum komu til að dást að
þvi.
En einn aðdáandinn, Adam Worth hafði
öllu meiri áhuga á skipulagningu hús-
næðis safnsins og öryggisútbúnaði, en
fegurð hertogaynjunnar.
— Við stelum henni, sagði hann lágt við
vin sinn, Jack Philips.
— Nei, svaraði hann. — Það er ekki
hægt og þar að auki kaupir enginn hana.
— Nei, svaraði Wort, — en ég held, að
Agnew’s muni greiða 3000 pund fyrir að fá
hana aftur.
Philips kinkaði kolli og ákvað að láta
Worth um skipulagningu verknaðarins.
Þvl Worth var snillingur á sinu sviði,
haföi framið sitt af hverju, sem ómögu-
legt var að sanna á hann og um þessar
mundir var Pinkerton’s frægt bandariskt
leynilögreglufyrirtæki að leita hans.
Þaö var svo snemma morguns 26. mai
1876, að Worth og nokkrir félagar hans
brutust inn hjá Agnew’s, en þeir vissu að
næturvörðurinn var annars staðar i hús-
inu þá stundina. Worth skar hertogaynj-
una úr rammanum með snöggum hand-
tökum, vafði strigann upp og lét hann
detta út um gluggann, þar sem fleiri biðu
og klifraði siðan út aftur.
Þegar ránið var uppgötvað, voru Worth
og félagar komnir á öruggan stað i NV-
London og myndin stolna var vel falin i
tösku með fölskum botni.
Daginn eftir bauð Agnew’s 1000 pund
fyrir myndina, en það var ekki nóg fyrir.
Worth. Hann var sannfærður um, að geta
fengið meiri peninga.
Vikurliðu, án þess að nokkur spor fynd-
ust eftir ránsmennina. Allt útlit var fyrir