Heimilistíminn - 28.11.1974, Page 32

Heimilistíminn - 28.11.1974, Page 32
Okumannslausir bílar hræða fólk — tilraunir með ökumannslausa bíla eru komnar vel ó veg í Englandi Farþegarnir eru löngu orönir vanir þvi aöökumannssætið sé tómt. Þannig ekur strætisvagninn eftir hraöbrautinni. ökumannslaus, en öruggari þrátt fyrir þaö. 32 FRÚ Patricia Hawkins hneig i yfirlið, þegar hún gekk yfir götuna á grænu ljósi. Þetta var i fyrsta sinn i 20 ár, sem hún kom til fæðingarbæjar sins, Crowthorne i Berkshire á Englandi. Astæðan fyrir yfir- liðinu var Ford Cortina-bifreið, sem nam staðar við gangbrautina á rauðu ljósi. Billinn, sem hún hafði fylgzt með, þar til hann nam staðar, var tómur! Frú Hawkins vissi ekki, að brezka vegamálarannsóknarstofnunin var flutt til Crowthorne og lagðir höfðu verið margra kilómetra langir vegir i tilrauna- skyni. Þarna aka margir bilar ökumanns- lausir um, meira að segja 42 manna áæltunarbilar, Slikir bilar flytja starfs- fólk rannsóknarstofnunarinnar milli verkstæða og húsa fyrirtækisins. — ökumannslausir bilar eru það sem koma skal, segir talsmaður rannsóknar- stofnunarinnar — I mörg ár hafa flug- vélar hafið sig til flugs og lent án flug- manna. ökumannslausi strætisvagninn okkar er öruggari en vagn, sem stýrt er af ökumanni. ökumaður getur orðið þreyttur af að aka á hraðbraut, einkum ef landslagið er tilbreytingarsnautt. öku- maður getur gert mistök, oft hörmuleg, en slikt er ekki möguleiki með sjálf- stýrðum vagni. Kerfið er þannig, að tiu sentimetrum undir yfirborði vegarins er kapall og apparat, sem er neðan á bilnum, sér um að billinn sé alltaf beint yfir kaplinum. Bilnum er stýrt, skipt er um gir og .mlaö með sjálfvirkni. Litill radarút- búnaðar á vélarhlifinni sér um að hemlað sé á réttum stöðum, til dæmis við rautt ljós og farið af stað á ný, þegar leiðin er greið. — Hugmyndin er að innleiða ökumanns- lausa strætisvagna eftir nokkur ár, einkum á hraðbrautum. Vagnarnir fara af stað þar sem vegurinn byrjar og nema staðar, þar sem hann endar. Þar kemur svo inn bilstjóri, sem ekur gegn um þorp eða bæ og tekur upp farþega. Siðan sendir hann vagninn ökumannslausan til bil- stjóra I næsta þorpi eða bæ, segir tals- maðurinn aftur. Fyrsti 120 km langi vegurinn með kapii hefur þegar verið áætlaður á Englandi. En ennþá er það bara i Crowthorne, sem ökumannslausir bilar eru á götunum.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.