Heimilistíminn - 20.02.1975, Page 24
Karlmaðurinn var þar meö orðinn fast-
ur i atvinnulifinu og fjölskyldunni, sem
lykilpersóna. Þess vegna varð atvinnu-
leysið enn skelfilegra, þvl um leið og karl-
maðurinn kom ekki heim með launin, var
hann ekki lengur sá sem útvegaði allt og
þá gat hann ekki krafizt réttinda sinna I
staðinn. Hvernig átti hann að skipa fyrir,
þegar hann útvegaði ekki peninga?
Hvernig gat hann leyft sér að leggjast upp
i sófann og hvila sig, þegar hann hafði
ekki verið að vinna?
I viðbót við fjárhagslegt sjónarmið at-
vinnuleysisins kom annað sálfræðilegt.
Karlmaðurinn var ekki aöeins óþarfur i
vinnu, heldur grófst fljótlega undan stöðu
hans á heimilinu. Hvernig gat honum
fundizt hann vera karlmaður og leikið
hlutverk sitt, þegar grundvöllurinn var
horfinn? Þunglyndi, veikindi og drykkju-
skapur jókst hrööum skrefum og það voru
afleiðingarnar.
Karlmaðurinn 1930 bjó við önnur kjör.
En voru þau góð? Arið 1975 er konan I
öðru hlutverki. Hún er jafningi karl-
mannsins i launum, menntun og að
minnsta kosti i orði i starfi. Hún hefur
fengið frelsi i hjónabandinu, sem sé án
þess að þurfa að stela af heimilispening-
um. Konan árið 1975 getur bjargað sér,
ekki auðveldlega, en hún getur það og
margar konur gera það. Hún vinnur fyrir
daglegu brauði á vinnustöðum karlmanna
og ekkert er sjálfsagðara. Hún stjórnar-
krönum og ekur bilum, er skrifstofustjóri
og lögfræðingur.
Hún hefur viðurkennt þetta nýja hlut-
verk sitt f samfélaginu og fjölskyldunni.
Karlmaðurinn hefur gert það lika. En það
sem erfiðara hefur reynzt fyrir karl-
manninn er að viðurkenna sitt eigið nýja
hlutverk. Aöur var allt undir honum
komið, en er það ekki lengur.
Karlmaðurinn 1975 hefur ekki losað sig
við gamlar venjur og hugsjónir. Hann
skal ennþá vera sá, sem ákveður hlutina
og ræður fram úr öllu, þegar vandinn
steðjar aö. Þó ekki sé annaö en stiflað
niöurfall, þá hjálpar það honum aö halda
sjálfstraustinu gagnvart konunni. Hann
vill ennþá vera sá sterkari, bæði andlega
og likamlega. Hann þarfnast þess að finn-
ast hann meiri. Gallinn er bara sá, að
hann er það ekki lengur.
Hann er alinn upp til að verða mikill
karl. Strákar gráta ekki. Þeir harka af
sér, þvi þeir eiga að læra aö bjarga sér.
Þeir eiga að vera beztir i skólanum og
eignast félaga. Utan hópsins visna þeir.
Siðar eiga þeir lika að bjarga sér, þá i
samkeppni. Þótt umsækjendur séu 27, er
það hann, sem á að verða fyrir valinu.
Hann á að sjá um að fjárhagurinn sé i lagi
og raða stöðutáknum umhverfis sig. Loks
gerir hann kröfur til sjálfs sin sem afreks-
manns á kynlffsviðinu og heldur að aðrir
geri það lika.
Getnaðarvarnarlyfin bæta ekki tauga-
ástandið hjá karlmönnum 1975, þvi þau
gera konuna að jafningja þeirra á kynlifs-
sviðinu og óháða. Hún kemur til móts við
hann með kröfur og er' ekki Iengur þolin-
móð undirlægja. Nú á að athuga, hvort
hann er nýtilegur og gagnvart þessu
guggna jafnvel beztu menn i bólinu.
Eins og ástandið er og kemur vel i ljós,
verður að muna að það gerir karlmenn
beinlinis veika, að vera atvinnulausir og
hanga heima og það bætir ekki úr, ef
konan vinnur fyrir heimilinu. Karimaöur-
inn lifir ennþá á árinu 1930.
Margt bendir til að þróun eigi sér ekki
stað á öliurn sviðum samtimis. Enn er það
þannig, að færri fá menntun i lágstéttum
og færri stúlkur en drengir. Enn er það
lika þannig, að drengir i lágstéttum
hjálpa litið sem ekkert til við heimilis-
verkin.
Þó okkur finnist það merki um frjáls-
lyndi og miklar framfarir að sjá karl-
mann aka barnavagni eða með svuntu i
eldhúsinu, erum við enn ekki laus við 1930.
Það er gaman að skoöa árið 1930 á þessu
ári, ekki sizt végna þeirra mörgu hluta,
sem eru alveg eins nú og þá.
HVAÐ VEIZTU
1. llvað hétu synir Nóa?
2. Svastika er gamalt, indverskt tákn,
sem við þekkjum betur undir öðru
nafni. Hvcrju?
3. Var Róbinson Krúsó raunveruiega
tii?
4. Nefnið fjögur lönd þar sem eru
heitir hverir.
5. Hvar er Waterloo?
6. Hvað er langt i loftlinu frá Spitz-
bcrgen til Svalbaröa?
7. Hvar er aldrei vestanvindur?
8. Hvað varð um Quisling eftir strið-
iö?
9. Hvernig ferðast sá sem notar hesta
postulanna?
10. Hvað er merkilegt viö árið 1961?
Hugsaðu þig vandlega um — en svörin
er að finna á bls. 39.
— Var þetta bréf nægilega sterkt
orðað sem hótun?
— Þetta er bara olia.
24