Heimilistíminn - 06.10.1977, Síða 4

Heimilistíminn - 06.10.1977, Síða 4
Evrópa vin í eyði- mörk flóttafólksins Evrópa er eiginlega nokkurs kon- ar vin i eyðimörkinni fyrir flótta- fólk, og það drifur nú að hvaðanæva að úrheiminum. Stór hluti hinna 12- 14milljóna flóttamanna f heiminum hefur nú lagt þangað leið sina. Flóttamennirnir koma frá Suður- Ameriku, Asiu og Afriku, þar sem órói, blóðsúthellingar og valdarán verða þess valdandi, að miiljónir manna flýja heimili sin árlega. Þetta eru hinir nýju innflytjendur til álfu okkar. Flóttamaðurinn i Evrópu er að flýja frá austri til vesturs. Það eru her- mennirnir, sem brjóta sér leið í gegn- um gaddavirsgirðingarnar við Berlinarmúrinn, visindamennirnir af Gyðingaættum, sem fá með miklum erfiðismunum að yfirgefa Sovétrikin eða tékknesku stúdentarnir, sem kom- ast til Austurrikis gegnum skógana, sem skilja að löndin tvö. Það gerist enn, að fólk flýr yfir landamærin i Evrópu, en flóttamenn- irnir frá Austur-Evrópu er þó minnk- andi hluti þeirra 500 þúsund flótta- manna, sem nú eru i Evrópu. Nú eru lika Austur-Evrópulönd eins og Rúmenia, Sovétrikin og Austur- Þýzkaland farin aö taka á móti vax- andi fjölda flóttamanna frá Suður- Ameriku. Flóttamannastraumurinn frá þriðja heiminum, ekki slzt frá Chile, Argentinu og Brasillu, hefur orðið vandamál I allri Evrópu, þar með talið í Austantjaldslöndunum. Þess vegna var það, að Sovétrikin fóru að taka þátt i ráðstefnum, sem fjallað hafa um reglur sem gilda eiga um pólitiska fióttamenn og réttindi þeirra. Ein slik ráðstefna var haidin i Genf, og lauk henni i febrúar i vetur. Ráð- stefnan var haldin á vegum Samein- uðu þjóðanna, og þvi miöur varð árangurinn heldur rýr. Þau 92 rfki, sem þátt tóku í ráðstefnunni, mörg hver blóðug einræðisriki, gátu ekki komið sér saman um ráð, sem skyldi veita pólitiskum flóttamönnum ákveð- in réttindi til pólitisks hælis. Þessi réttur um pólitiskt hæli er al- varlegt og óleyst vandamál margra hinna nýju flóttamanna i Evrópu. Hin- ir „hefðbundnu” flóttamenn frá austri til vesturshafa sjaldan lent i nokkrum vandræðum með að sannfæra yfirvöld i Vestur-Evrópulöndunum um, að þeir séu I raun og veru pólitiskir flótta- menn sem rétt eiga á þvi að byrja nýtt lif i nýja landinu. En 1 sumum tilfellum getur verið erfitt fyrir fólk, sem kemur til nýs lands, sem er mjög ólíkt þvi landi, sem það kemur frá, að sanna, og sannfæra yfirvöld um, að það hafi verið ofsótt i heimalandi sinu. Svo að segja öll lönd i Evrópu taka á móti flóttamönnunum frá Suður Ame- riku. Flest löndin taka þó aðeins við vissum fjölda árlega. Frakkland og Vestur-Þýzkaland leyfa flestum flótta- mönnum að flytjast til sin. Þá hefurFrakkland, og önnur lönd i Evrópu, einnig opnað landamæri sin fyrir um 10 þúsund flóttamönnum frá Indó-Kina, og England hefur veitt um 50 þúsund Asiubúum landvistarleyfi, fólki, sem Amin rak frá Uganda. En jafnframt þessum mikla flótta- mannastraumi, sem streymdi til Evrópu á sjöunda áratugnum eru aðr- ir minni straumar flóttamanna, sem engar ákveðnar reglur gilda um, og ekki er tekið á móti með opnum örm- um eftir að þeir hafa komizt inn i flóttamannavinina, sem Evrópa er orðin að. Það eru þeir, sem flýja léleg llfs- kjör. Stundum hefur þetta fólk neyðzt til þess að greiða mann- smyglurum allar eigur slnar til þess eins að fá þá til þess að koma sér til Evrópu. Margir þessara manna geta ekki farið til yfirvaldanna og sagt, með von um, að þeim vcröi trúað, að þeir séu ofsóttir. Evrópulöndin hafa enn ekki getað komið sér saman um, hvaða aðferðum skalbeita við þetta fólk. Það fær nokk- urs konar „biðstööu”, sem veitir þvi rétt til þess að dveljast i landinu skamma hrið, og ákveðna tryggingu þess, að það verði ekki sent aftur til baka, og ef vel lætur fær það út- lendingavegabréf. Þetta fólk nýtur sjaldnast þeirra réttinda, sem pólit- iskir flóttamenn njóta. Hin bitra reynsla margra þessara flóttamanna, sem ef til vill hafa búið við margra ára ofsóknir og áhyggjur, er sú, að Evrópa er þeim algjörlega lokuð. GYÐ- INGAR Við erum stödd á flóa- markaðinum i Róm, og það er sunnudagsmorgunn. Fjöldi fólks er hér á ferð, og fólkið ryður sér braut um borgar- hliðið Porta Portese. Þarna eru óendanlegar raðir söluborða með alls konar varningi, en þó rekumst við á borð, sem eru nokkuð öðru visi en hin. Þar má ? sjá grammófónplötur i haugum, og textinn á plötunum er á rúss- nesku. Konurnar bjóða þarna hálsfestar úr rauðum kóröllum, og enn aðrar bjóða okkur til kaups rússnesku trébrúðurnar, sem flestir kannast við, og svo má sjá dýrgripi úr dýrgripaskrinum fjölskyld- unnar. Róm er viðkomustaður Það verur stöðugt aigengara að rekast á hópa rússneskra útflytjenda á götum Rómar. Róm er nokkurs konar viðkomu- staður þeirra, á langri leið, biðstofa. Þetta fólk þarf að biða stundum mánuði, stundum allt upp i ár i Róm, og á meðan það biður þar eftir vegabréfsáritun er ekki um annað aðræða, en reyna að halda einhvern veginn i sér lifinu, og þá er oftast gripið til þess ráðs að selja það, sem þetta fólk hefur haft með sér frá Sovétrikjun- um. Flestir útflytjendurnir rússnesku búa i úthverfum Rómar, aðallega i Ostia, við sjóinn, en þar er húsaleiga mjög lág. Það er aðeins töluð rússneska i sumum vögn- unum i neðanjarðarlestinni á leið inn til borgarinnar á morgnana. Það að vera flóttamaður, er að hafa á sér nokkurs konar stimpil. A þvi augna- bliki, sem flóttafólkið yfirgefur Sovét- rfkin, tapar það rfkisborgararétti sln- um þar. Það þýðir, að samkvæmt al- þjóðalögum er þetta fólk rlkisfangs- laust flóttafólk. En það getur nú lika haft sina kosti, eins ogviðeigum eftir að heyra hér siðar. Meðal hinna mörgu, sem staddir eru hér á flóamarkaðinum hittum við Lev (þetta er reyndar ekki hans rétta nafn), Flest þetta fólk á ættingja heima i gamla landinu. Þaðóttast þvi, að þeim verði gert mein, ef það segir eitthvað, sem ekki fell- ur i kramið, um það sem á undan er geng- iðheima i Sovétrikjunum. Enginn vill láta taka af sér mynd, né heldur segja til nafns. Fólkið segir ekki sögu sina nema þessum skilyrðum sé fullnægt. 4

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.