Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 17.08.1978, Qupperneq 23

Heimilistíminn - 17.08.1978, Qupperneq 23
komu, sem Hugh hafði bæði gagnvart sjúklin- um og starfsliðinu. Allir söknuðu Hughs. Barbara saknaði hans lika. Rósirnar, sem hann hafði sent henni höfðu þegar fölnað, en spjaldið sem hafði fylgt þeim, var vel geymt i borðskúffunni hennar. Hún ákvað, að hún skyldi ekki skrifa honum. Hann skyldi fá tækifæri til þess að byrja nýtt lif. Karlmenn voru fljótir að gleyma. Án efa myndi Hugh ekki reynast nein undantekning frá þeirri reglu. Hún hafði eytt þremur kvöldum til viðbótar i návist John Davidson, og eitt þeirra hafði hann komið heim til hennar. Það var engan veginn eðlilegt, að sjá hann hreiðra um sig i uppáhalds stól Hughs. En hún var orðin vön þvi að sitja og hlusta á hann tala um áhugamál sin. Þegar hann nú kvaddi hana, kyssti hann hana alltaf. Hann talaði ekki um, að sér þætti vænt um hana. Hann talaði heldur ekki um útlit hennar, enda þótt hún reyndi alltaf að lita sem best út, þegar þau hittust. í undirmeðvitundinni var henni ljóst, að John Davidson var maður, sem hafði komist að raun um að hann þarfnaðist þess að hafa konu i ná- munda við sig. Hún var nokkurs konar smyrsi á sárin eftir erfiðan vinnudag á sjúkrahúsinu. En hún gat ekki stjórnað tilfinningum sinum, þegar hann var nærri henni. Hann hlaut að finna til einhvers, þegar hann kyssti hana, finna hvernig henni leið, þegar hann hélt henni i örmum sinum. Þegar hann var farinn var hún bæði æst og hamingjusöm, en svo varð hún döpur og miður sin á eftir. Hvert ætlaði þetta að leiða hana? Það var ekkert sem benti til þess, að John Davidson væri að hugsa um framtið, sem þau væru bæði þátttakendur i. Þannig var málum komið, þegar Jennie kom aftur á nýársdag. Hún kom beint á sjúkrahúsið. Hún var i rauðri kápu og berhöfðuð, en blásvart hárið þyrlaðist um höfuð hennar. Hún virtist þreytt, og það voru dökkir baugar undir augunum. — Ég er komin með inflúensuna, sagði hún óþolinmóð. Hún mætti til vinnu þennan dag en lét sig engu skipta hvernig hún vann verk sin og Bar- bara varð að ávita hana. Allt i einu fór Jennie að gráta. — Mér liður alveg hræðilega sagði hún loks. — Farðu úr sloppnum og ég skal aka þér heim. Það var svo ólikt Jennie að vera áhuga- laus um útlit sitt, að Barböru var brugðið. Hún gaf nýju stúlkunni fyrirmæli um að taka við stjórninni þar til hún kæmi aftur frá þvi að hafa ekið Jennie heim i ibúðina hennar. Þetta var heldur óaðlaðandi staður og kalt var inni. Þegar Jennie brast svo i grát, sagð'i Barbara ákveðin — Þú kemur heim til min og verður þar, þar til þér er batnað kvefið. Þú lit- ur óttalega illa út Jennie>ú ættir að vita betur en að koma i vinnuna svona lasin. Létta lundin sem alltaf var skammt undan hjá Jennie, var ekki fyrir hendi i þetta sinn. Hún lét Barböru um það að tina saman nokkra smáhluti til þess að taka með sér en á meðan sat hún á rúmbrikinni og beið. Svo fylgdi hún á eftir henni út um dyrnar. Barbara lét ekki á þvi bera að hún var farin að óttast að eitthvað meira en kvef væri að aumingja stúlkunni. Þegar þær voru komnar yfir i hlýja og nota- lega ibúð Barböru virtist heldur glaðna yfir stúlkunni. Barbara hafði komið henni i rúmið, áður en hún yfirgaf hana, gefið henni magnyl- töflur og könnu með isköldu vatni, sem hún setti við hlið hennar við rúmið, og svo hafði hún látið hitapoka við fætur hennar. Barbara sneri aftur til sjúkrahússins, og leið stöðugt verr og verr. Það batnaði ekki eftir þvi sem á daginn leið. Rétt áður en loka átti búð- inni kom John Davidson inn til þess að fá sér kaffibolla og Barbara gekk til hans og settist niður við borðið hjá honum. — Hvar er Jennie? spurði hann. Þetta var heldur óvenjuleg spurning af hans hálfu, þar sem hann virtist aldrei taka eftir þvi, þótt ein- hver væri fjarstaddur. í dag var hann i hrein- um slopp i staðinn fyrir að vera alltaf i sama velkta sloppnum. Helst leit lika út fyrir, að hann hefði rennt greiðu i gegn um hárið. Barbara var alltaf hálffeimin i nærveru hans. Það var sama þótt hann væri með þenn- an stranga svip, sem hélt svo mörgum i hæfi- legri fjarlægð, hún hafði séð glampa i djúp- stæðum augunum, glampa, sem hún hafði haldið, að gæti táknað ást. Hér i búðinni fannst henni þó, sem hann nyndi aldrei geta orðið öðru visi en þessi strangi maður. Hann var á allan hátt eins og hann var vanur i dag. Hann hafði komið með læknablað með sér, og breiddi nú úr þvi fyrir framan sig, og hann fagnaði henni ekki, þegar hún kom. — Mig langar til þess að tala við þig, sagði hún. 23

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.