Heimilistíminn - 09.11.1978, Page 15

Heimilistíminn - 09.11.1978, Page 15
Blómin okkar Mörg afbrigði eru til af drekatrjánum, eða dreka- blóðstrjám, eins og þau eru lika nefnd. Á latinu heita þau dracaena. Þau geta orðið hvorki meira né minna en 5000 ára gömul út i náttúrunni og stofninn getur orðið fimm metrar i þver- mál. Líklega þurfum við ekki að óttast að stofu- drekarnir okkar nái þessari stærð eða aldri. A sumum drekatij'inum aB minnsta kosti kemui rauöur safi ef stofninn verður fyrir hnjaski, og af þvi er dregiö nafniö drckablóöstré. Þessi rauði safi hefur lengi veriö notaöur til litunar. Hér á myndinni sjáiö þiö þr jár teg- undii dr°katrjáa. Þótt ekki sjáist þaö hér er sú fremst til hægri meö rauö- leitum blööum, en þar fyrir aftan er önnur meö hviti ^ndóttum blööum. Þettaeruallt hinarfaliegustu plöntur. Drekatren kunna vel viö sig i sól- birtu, en þau geta þó þrifizt á björtum staö i stofunni, þótt ekki skini beint á þau sól. Mjög æskilegt er aö plönturnar séu í fremur stórum pöttum, og moldin sé ekki allt of þétt. Þá vaxaogdafna plönturnar mætavel. Þaö á aö vera hægt aö koma til drekatrjám, t.d. ef þau taka að skjóta út frá sér litlum græölingum. Þá má skera af frá móöurplöntunni og fara meö þá eins oggræölinga, en það getur tekiö mjög langan tima aö fá á þá rætur. Bezt gengur þaö, ef þeir eru hafðir á einhverjum þeim staö, þar sem hiti kemur neöan aö þeim. Einnig er hægt að skera ofan af drekatrjánum, ef ykkur finnst þau vera farin aö veröa heldur rengluleg og blaðli'til aö neöan. Rætur eiga aö koma á topppinn, sem af er skorinn, ef allt gengur vel, og svo geta þá tekið aö skjótast út nýir angar bæði upp meö leggnum og út úr honum. Drekatrén mega helzt ekki vera i allt of miklum hita á veturna fremur en flest önnur blóm, sem við erum aö baka viö aö rækta i stofunum okkar. Heit hús, vetrarmyrkur og of mikil vökvun veröur margri plöntunni aö aldurtila. Drekatrén eru upprunnin i Afriku og einnig á Kanarieyjunum. —fb Mörg afbrigði eru til af drekatrjánum 15

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.